Heimilisritið - 01.09.1957, Qupperneq 41
maður af skerandi birtu, en
undir þiljum lá manni við köfn-
un. Gerillo kapteinn, sem var
eina tilbreyting Holroyds frá
þessum líkamlegu þjáningum,
varð óþolandi leiðinlegur, sagði
hinar litlausu ástarsögur sínar
upp aftur og aftur dag eítir dag,
af nafnlausum kvenmönnum,
sem liann taldi samvizkusam-
lega eins og tölur á talnabandi.
Stöku sinnum hittu þeir fyrir
mannabústaði í þessari grænu
eyðimörk, þeir fóru í land, sátu
og drukku og dönsuðu við kyn-
blendingsstúlkurnar, sem fannst
hin bágborna spænska Holroyds
brúkleg til þeirra nota. En
þetta voru ekki nema smávegis
glæta í löngu, gráu tilbreyting-
arleysi ferðarinnar upp fljótið.
En Gerillo frétti meira um
maurana á hverjum viðkomu-
stað, og fékk æ meiri áhuga á
hlutverki sínu.
„Þeir eru ný tegund af maur-
um,“ sagði hann. „Stórir. Fimm
sentimetrar; Sumir stærri! Það
er hlægilegt. Við erum eins og
apar — sendir til að tína óþrif.
. . . En þeir eru að eta upp
landið."
Hann sagði móðgaður: „Setj-
um svo, að allt í einu — við
lendum í klandri við Evrópu-
ríki. Og hér er ég — bráðum
erum við komnir upp fvrir Rio
HEIMILISRITIÐ
Negro — óg byssan mín. gagns-
laus!“
Hann nuddaði linéð á sér
þungt hugsandi.
„Þetta fólk, sem var þarna
á dansstaðnum, það hefur kom-
ið niður eftir. Það hefur misst
allt, sem það ætti. Maurarnir
komu í húsin þeirra eitt kvöld.
Allir hlupu út. Þú veizt, þegar
maurar koma, verða allir að
hlaupa. Ef þú værir kyrr inni,
myndu þeir eta þig. SérðuP
Jæja, brátt kom fólkið aftur,
það sagði: Maurarnir eru farnir
... en maurarnir voru ekki
farnir. Það reynir að fara inn —
sonurinn, hann fer inn. Maur-
arnir verjast.“
„Skríða á hann?“
„Bíta hann. Svo kemur hann
út aftur — hlaupandi og æp-
andi. Hann hleypur framhjá
þeim út í fljótið. Sérðu? Hann
fer út í vatnið og drekkir maur-
unum — já.“ Gerillo þagnaði,
kom fast upp að andlitinu á
Holroyd og drap hnúunum á
hnéð á honum. „Um nóttina
deyr hann, rétt eins og hann
haf'i verið bitinn af slöngu.“
„Af eitrun — frá maurun-
CC
um.
„Hver veit?“ Gerillo yppti
öxlum. „Máske bitu þeir hann
illa .. . Þegar ég gekk í herinn,
gerði ég það til að berjast við
39