Heimilisritið - 01.09.1957, Page 47
gera áður. Þeir hreyfðu sig ekki
í blindni eins og aðrir maurar;
]jeir virtu hann fyrir sér — eins
og friðsamur inannfjöldi myndi
horfa á eitthvert risavaxið
skrímsli, sem hefði komið og
dreift honum.
„Hvernig dó hann?“ kallaði
skipstjóri.
Iíolroyd skildist Portúgalinn
svara því, að maðurinn væri of
etinn til að hægt væri að segja
um það.
„Hvað er frammi á?“ spurði
Gerillo.
Liðsforinginn gekk nokkur
skref og byrjaði að svara á
portúgölsku. Hann stanzaði
snögglega og barði eitthvað af
fótleggnum á sér. Hann tók
skrítileg spor, eins og hann væri
að reyna að stíga ofan á eitt-
livað ósýnilegt og flýtti sér út
að borðstokknum. Svo áttaði
hann sig og gekk ákveðnum
skrefum að skýlinu og laut nið-
ur að hinum dauða manninum,
stundi hátt, og gekk síðan aftur
að káetunni. Hann sneri sér við
og byrjaði að tala við skip-
stjóra í köldum, virðulegum
tón. Holroyd fylgdist ekki með
samtalinu.
Hann greip aftur til sjónauk-
ans og varð undrandi af að sjá,
að maurarnir voru horfnir af
öllum berum svæðum á þilfar-
inu. Harin beindi augunum að
skuggunum undir plönkunum,
og honrim virtist sem þar væri
íullt af athugulum augum.
Þeir komust að þeirri niður-
stöðu, að fljótabáturinn væri að
vísu yíirgefinn, en of íullur af
niaurum til að hægt væri að
setja menn um borð til að sitja
þar og sofa. Það varð að taka
liann aftan í. Liðsforinginn fór
frarn á til að taka á móti og
festa dráttartauginni, og menn-
irnir í bátnum stóðu upp til að
vera tilbúnir að hjálpa honum.
Holroyd athugaði allan fljóta-
bátinn gegnum sjónaukann.
Hann tók æ betur eftir því,
að maurarnir voru önnum kafn-
ir að undirbúa eitthvað svo lítið
bar á. Hann tók eftir því að
nokkrir risastórir maurar —
þeir virtust næsturn tveir þuml-
ungar á lengd — báru skríti-
lega lagaðar byrðar, sem hann
gat ekki hugsað sér til hvers
þeir notuðu, og þutu í skugg-
anum úr einum stað í annan.
Þeir fóru ekki í fylkingum um
bersvæðið, heldur í opnuin
oddlaga röðum, sem minnti
undarlega á nútíma fótgöngulið
sækja fram móti skothríð. —
Fjöldi leitaði skjóls undir fötum
dauða mannsins, og ógrynni liðs
safnaðist saman við borðstokk-
HEIMILISRITIÐ
45