Heimilisritið - 01.09.1957, Page 51
má vita, hvað maurarnir hafa
hugsað um Jiað, en hann gerði
})að. Hann skaut tveim skotum
með mikilli röggsemi og seri-
moníum. 011 skipshöfnin hafði
bómull í eyrunum, og þetta var
rétt eins og að standa í stór-
orustu. Fyrst hæfðu þeir gömlu
sykurmylluna og jöfnuðu hana
við jörðu, og svo brutu þeir
niður yfirgefna geymsluskemm-
una fyrir ofan brvggjuna. Og
svo hlaut Gerillo að finna fvrir
afturkastinu.
„Þetta þýðir ekkert,“ sagði
hann við Holroyd, „alls ekki
neitt. Gagnar fjandann ekki
neitt. Við verðum að fara og
fá fyrirskipanir. Það verða
bölvuð læti út af þessum skot-
færum — bölvuð læti! Þú veist
ekki, Iíolroyd . ..“
Hann stóð og virti fyrir sér
heiminn, öldungis úrræðalaus.
„En hvað annað var hægt að
cjera?“ hrópaði hann.
Síðdegis lagði skipið af stað
niður fljótið, og um kvöldið fór
sveit manna með lík liðsforingj-
ans í land og gróf .}>að á bakk-
anum, þar sem nýju maurarnir
höfðu enn ekki gert vart við sig.
IV.
EG heyrði þessa sögu af vör-
um Holroyds fyrir nokkrum
vikum.
Þessir nýju maurar hafa farið
í heilann í honum, og hann kom
til Englands, til þess, eins og
hann sagði, „að æsa fólk upp út
af þeim, áður en það er of seint.“
Hann segir, að þeir ógni
brezku Guinana, sem ekki er
nema rúmar þúsund litlar mílur
frá núverandi stöðvum þeirra,
og að nýlendumálaráðuneytið
ætti strax að hefjast handa.
Hann segir með mikilli áherzlu:
„Þetta eru skynsemi gæddir
maurar. Hugsið ykkur bara
hvað það þýðir!“
Enginn efi er á því, að þeir
eru ískvggileg plága, og að það
er hyggilegt af stjórn Brazilíu
að heita háum verðlaunum fyrir
árangursríka aðferð til að út-
rýma þeim. Það er einnig víst,
að síðan þeirra varð fyrst vart
á hæðunum ofan við Badama
fyrir þrem árum, hafa þeir lagt
undir sig mikið land. Allur suð-
urbakki Batemoárinnar á sextíu
mílna löngu svæði er á þeirra
valdi. Þeir hafa rekið manninn
algerlega úr landi, lagt undir sig
plantekrur og verzlunarstaði og
að minnsta kosti náð einu skipi
á sitt vald. Enginn vafi er á því,
að þeir eru stórum skynsamari
og betur þroskaðari félagslega
en nokkur maurategund, sem
áður hefur þekkzt. I stað þess
að lifa í dreifðum hópum, eru
HEIMILISRITIÐ
49