Heimilisritið - 01.09.1957, Page 58
Erfiðasta hlutverk Red Skeltons
ÞESSA dagana leikur Red
Skelton, liinn heimsfrægi amer-
íski skopleikari, stærsta og erf-
iðasta hlutverk lífs síns, en þar
leikur hann glaðan og kátan
föður. Ilann brosir, hann hlær,
hann skælir sig og það er erfitt,
næstum því ofurmannlegt fyrir
föður, sem veit, að hann mun
brátt missa son sinn.
Sonurinn, hinn níu ára gamli
Riehard, þjáist af blóðsjúkdómi,
er leukæmi neínist. Eins og er,
virðist vera lát á sjúkdómnum,
en amerísku læknarnir, sem
stunduðu drenginn, hafa ekki
gefið foreldrum hans hina
minnstu von. Sjúkdómurinn
getur brotizt út hvenær sem er
og læknarnir þekkja ennþá enga
vörn við honum. Þeir telja, að
drengurinn geti lifað í tvo til
þrjá mánuði í hæsta lagi.
I stað þess að sitja og bíða
hinna óhjákvæmilegu endaloka,
ákvað Skelton-fjölskyldan að
ferðast og láta drenginn sjá eins
mikið og hægt væri af heimin-
um, sem hann verður brátt að
yfirgefa.
Þau ætla saman að sjá alla
fegurstu staðina í heiminum —
Forum Romana í Róm, hirin ei-
lífa snjó á Mont Blanc, Feneyj-
ar, Eiffel-turninn í París, Pét-
urskirkju í Róm, skakka turn-
inn í Pisa. Og um daginn komu
þau til Kaupmannahafnar á
leið sinni um hnöttinn.
En Red Skelton getur ekki
ferðast, án þess að vekja at-
hvgli. Hvar sem þau koma, er
tekið á móti þeim með samúð
— og kannski líka með undrun
vfir því, að faðirinn hlær og
brosir eins og vanalega. En Red
Skelton leikur hlutverlc sitt af
snilld — og trúir á kraftaverk.
Ef til vill rekast þau einhvers
staðar á einhvern, sem getur
hjálpað.
Það var þess vegna brosandi
faðir, sem steig út úr flugvél-
inni á Kastrup-flugvelli í Kaup-
mannahöfn, þegar þau komu
þangað. I örfáar sekúndur var
hann alvarlegur, en svo hló
aftur og Richard litli hló líka.
Eftir stutta dvöl þar í borg
héldu þau ferðinni áfram.
Richard veit, að hann er
sjúkur — mjög sjúkur — en
hann er aðeins stórt barn, sem
þrátt fyrir allt er sæll að eiga
föður, sem ávallt er kátur og
brosandi. *
56
HEIMILISRITIÐ