Heimilisritið - 01.09.1957, Side 65
una mína. Þá bláu, sem ég hafði
verið í í gær. . . .
„Mér — mér er hálf illt.“ Ég
færði mig frá honum. Hann ætl-
aði á eftir mér. „Vertu kyrr,
Pete. Ég ætla að leggjast fyrir.“
Ég settist á rúmstokkinn og
hélt með báðum höndum í dýn-
una. Pete og lögregluþjónarnir
héldu áfram að ræðast við fyrir
utan dyrnar. Ég heyrði ekki til
þeirra. Ég heyrði ekki annað en
rödd Lonnies: „Þú ert mín. Nú
á ég þig ein. Um aldur og ævi.
Þú værir betur komin dauð en
gift nokkrum öðrum.“
Hann hafði meint það. — Og
hann hafði reynt að drepa mig!
Auðvitað hafði hann drukkið
sig fullan, hugsaði ég. Það var
hið fyrsta, sem hann myndi hafa
gert, þegar hann komst að raun
um, að ég hafði farið með Pete
— farið á Avalon veitingastof-
una og hvolft í sig einum viskí-
sjússinum eftir annan. Það gerði
hann alltaf þegar hann var reið-
ur, vonsvikinn, — þegar allt lék
ekki í lyndi. Og þegar hann var
orðinn drukkinn var hann vís til
alls.
Gagntekin af hryllingi gat ég
fylgzt með ferðum hans í hugan-
um. Séð hann þjóta eftir þjóð-
veginum í ,,lánuðum“ bíl, stanza
við krárnar við veginn til þess
að hælast um yfir dirfzku sinni.
Ég sá hann í anda koma inn í
Mill Falls, leita uppi heimilis-
fangið í símaskránni, leggja bíln-
um í nánd við húsið okkar. Ég
sá hann fyrir mér læðast upp
að eldhússglugganum, og sjá
gegnum reykinn stúlku í blárri
peysu, sem sneri í hann bakinu.
Ég lyfti höfðinu og hlustaði.
Ég heyrði rödd Pete úr fjarska
fyrir utan húsið. Stóð hann á
útidyratröppunum?
„Hlustið þið nú á mig!“ Hann
talaði hátt en hrópaði ekki. Rödd
hans var hörkuleg. — „Það sem
ykkur hefur verið sagt er satt.
Ellen Hale er dáin. Hún var
skotin til bana í þessu húsi. En
við því getið þið ekkert gert og
þið eigið ekkert að gera. Farið
svo!“
Einhverjar raddir svöruðu
honum, lágar, ógnandi raddir.
Ég fór yfir að glugganum.
Hópur manna var fyrir utan
húsið. Ég þekkti suma þeirra.
Það voru fylgjendur Petes í
verkalýðsfélaginu. í Ijósinu frá
útidyraluktinni sá ég, að andlit
þeirra voru afskræmd af reiði.
Enn aðrir hröðuðu sér eftir veg-
inum í áttina til þeirra.
Niðurlag í næsta hefti.
HEIMILISRITIÐ
63