Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.06.2013, Qupperneq 24

Fréttatíminn - 07.06.2013, Qupperneq 24
Cetirizin- ratiopharm 10 mg - 10 stk., 30 stk. og 100 stk. Fljótt að virka Við einkennum frá augum og nefi Við einkennum langvarandi ofsakláða Búðu þig undir ofnæmið Nú 100 töflur án lyfseðils! Notkunarsvið: Cetirizin-ratiopharm inniheldur cetirizin tvíhýdróklóríð, ofnæmislyf fyrir fullorðna og börn frá 6 ára aldri; til að draga úr einkennum frá nefi og augum vegna árstíðabundins eða stöðugs ofnæmiskvefs; til að draga úr einkennum langvarandi ofsakláða. Frábendingar: alvarlegur nýrna- sjúkdómur, ofnæmi fyrir virka efninu, einhverju öðru innihalds- efni Cetirizin-ratiopharm eða fyrir hydroxyzini eða píperazín afleiðum. Varúð: Einstaklingar með skerta nýrnastarfsemi, með flogaveiki eða sem eiga á hættu að fá krampa skulu láta lækninn vita áður en lyfið er notað. Hætta þarf töku lyfsins þremur dögum áður en farið er í ofnæmishúðpróf. Meðganga og brjóstagjöf: Forðast skal notkun lyfsins. Skömmtun: Fullorðnir og unglingar eldri en 12 ára: Ráðlagður skammtur er 10 mg, ein tafla, á dag. Börn 6 til 12 ára: Ráðlagður skammtur er 5 mg, hálf tafla, tvisvar á dag. Sjá frekari upplýsingar í fylgiseðli. Algengar aukaverkanir: Þreyta, munnþurrkur, ógleði, niðurgangur, svimi, höfuðverkur, syfja, kokbólga og nefkvef. Lesið vandlega fylgiseðilinn sem fylgir lyfinu. SmPC: Júlí 2012.15% AFSLÁTT UR til 30. jú ní 2013 – fyrst og fre mst ódýr! TILBOÐ! DÚNDUR 50% afsláttur 249 kr.pk. Verð áður 498 kr. pk. Cocoa Puffs, 335 g Hámark 4 pk. á man n meðan birgðir endast ! málfræði í serbó-króatísku og uppbygging tungumálsins er ekki svo ólík. Þessi kennsla er hugsan- lega það sem ég græddi mest á af öllu, fyrir utan auðvitað læknis- meðferðina.“ Hann lét ekki þarna staðar numið heldur hélt áfram í ís- lenskunámi hjá Námsflokkum Reykjavíkur sem þá voru starf- andi. Davor var staðráðinn í að aðlagast vel íslensku samfélagi. „Það skiptir auðvitað máli á hvaða forsendum fólk kemur til lands- ins. Þeir sem koma til að vinna eins og þrælar í nokkur ár og safna peningum hafa lítinn hvata til að komast inn í samfélagið. En þeir sem koma hingað með fjöl- skyldu sína og stefna á að vera hér til frambúðar hafa annan hvata. Tungumálið skiptir öllu. Ef fólk getur ekki lesið dagblaðið að morgni og áttað sig á hvað er að gerast þá verður það aldrei hluti af samfélaginu.“ Hann bendir á að til að byrja með hafi hann helst bara lesið Morgunblaðið þar sem konan hans starfaði en höfuðstöðvar Morgunblaðsins voru þá við Kringluna. „Það er svolítið fyndið að í dag er ég að vinna hjá Umboðsmanni skuldara í nákvæmlega sama sal og konan mín var að vinna í hjá Morgun- blaðinu.“ Halldóra Ana, eldri dóttirin, fylgist enn grannt með og stenst hún ekki mátið að taka þátt í viðtalinu þegar Davor segir frá því að hann hafi tekið samræmt próf í íslensku fyrir 10. bekk og staðist það með prýði. „Hann gerir grín að því að hann hafi fengið hærra en ég á samræmda prófinu,“ segir hún hlæjandi en heldur til haga: „Þú varst bara í íslensku, pabbi. Ég var líka í stærðfræði og ensku.“ Hún er greinilega stolt af pabba sínum: „Það er ótrúlegur metnaður hjá þessum manni.“ Vann mál gegn Lögregluskólanum Eftir að hafa starfað um stutta hríð sem þjónn sótti Davor um starf sem öryggisvörður hjá Securitas. „Starfsmannastjóran- um leist vel á bakgrunn minn en hafði smá áhyggjur af því að ég væri ekki nógu góður í íslensku.“ Hann hélt íslenskunáminu alltaf áfram, starfaði hjá Securitas í sex ár og var þá boðið starf hjá bandaríska sendiráðinu. Þar vann hann við hin ýmsu störf en langaði alltaf í betri stöðu og hærri laun. „Þá kom eiginlega að vendipunkti hjá mér. Ég var bara með framhaldsskólapróf og lög- regluréttindi að heiman og sá að ég þyrfti að mennta mig meira til að fá betra starf.“ Þegar þarna var komið var Davor 39 ára gamall og þreytti hann próf í Lögreglu- skólanum. Þar var honum hins vegar synjað um skólavist vegna aldurs á sama tíma og annar umsækjandi fékk undanþágu frá aldursviðmiðum. „Ég fann eftir þetta að fólk fór að taka mér með ákveðnum fyrirvara fyrst mér var ekki hleypt inn í Lögregluskól- ann og mér fannst þetta blettur á mannorði mínu.“ Davor fór þá í mál við Lögregluskólann og vann það bæði fyrir héraðsdómi og í hæstarétti. „Þessi barátta tók fimm ár. Og þeir unnu auðvitað. Ég komst ekki inn í Lögregluskól- ann,“ segir Davor. Í millitíðinni hafði hann hins vegar skráð sig í viðskiptalögfræði við Háskólann á Bifröst. Útskrift með fyrstu einkunn Anna segist hafa hvatt Davor til að fara fyrst í frumgreinadeildina á Bifröst en hann tók það ekki mál. „Ég var að verða fertugur og hafði ekki tíma í það,“ segir hann ákveðinn. Ekki nóg með það heldur skráði hann sig í 12 mán- aða nám og var í námi á sumrin til að ljúka gráðunni fyrr. Þótt Anna hafi haft fulla trú á mann- inum sínum hafði hún áhyggjur af því að hann ætlaði sér um of með lögfræðináminu sem reynist flestum nógu erfitt þó þeir hafi lesið ís- lensku frá fæðingu. Eftir á er hún sann- færð um að þetta var rétt ákvörðun hjá honum. „Margir héldu að við myndum fjarlægjast við að hann væri í burtu í námi en mér finnst þetta frekar hafa fært okkur meira saman. Hann var ekki með háskólapróf, ég var með háskólapróf, við höfum bæði starfað í stjórnsýslunni og tölum nú svo mikið um þetta allt saman að dætrum okkar þykir stundum nóg um. Honum fannst hann ekki geta notið sín hér því hann fékk ekki starf við hæfi því hann hafði ekki háskólagráðu. Ef hann hefði ekki gert þetta hefðum við frekar orðið óánægð því hann hefði verið ósáttur við sjálfan sig. En þetta var erfitt. Ég var í minni vinnu og sinnt stelpunum á virk- um dögum. Um helgar las ég yfir lögfræðiverkefni og ritgerðir. En ég græddi á þessu smá lögfræði- menntun og fullt af góðum vinum á Bifröst,“ segir Anna. Davor er einnig tíðrætt um þá góðu vini sem hann kynntist í náminu og heldur enn sambandi við, sjö til átta manna hópur sem lærði saman og myndaði sterk tengsl sín á milli. „Þessi hópur er mér dýrmætur. Það var minn heiður að vera í námi með þeim. Við skemmtum okkur saman og ég vona að ég hafi getað hjálpað þeim eins og þau hjálpuðu mér,“ segir hann. Davor útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði vorið 2010, með fyrstu einkunn. „Hann var meira að segja dúx í sumum fögum,“ bætir Halldóra Ana við. Vantrú lögfræðings Fyrir útskrift var Davor byrjaður að sinna lögfræðiráðgjöf í sjálf- boðastarfi hjá Rauða Krossinum við að aðstoða innflytjendur. Hann hélt því áfram nokkru eftir útskrift. Þó hann hafi ekki oft lent í fordómum þá kom það fyrir. Einhverju sinni var hann í sam- skiptum við annan lögfræðing vegna deilu um leiguhúsnæði. „Hann hafði einfaldlega rangt fyrir sér þegar kom að túlkun laganna. Hann sagði samt við mig að íslenskir lögfræðingar túlkuðu þetta svona og að íslensk lög- fræði virkaði svona. Ég vissi ekki hvort ég átti að vera móðgaður eða hlæja. Ég benti honum á að ég væri með sams konar lög- fræðipróf og hann frá íslenskum viðurkenndum háskóla og vissi alveg hvað ég væri að tala um. Þetta virtist koma honum mjög á óvart.“ Hann segist þó að mestu vera hættur að lenda í svona sam- skiptum. „Það er kannski búið að fréttast að einhver innflytjandi hafi asnast til að klára lögfræði,“ segir hann hlæjandi. Þau Anna eru greinilega mjög ástfangin og samrýnd. Hún segir að það hafi í raun styrkt sam- bandið hversu ólíkur bakgrunnur þeirra er. „Eftir því sem fólk er ólíkara því stærra verkefni er að vera sambandi. Við höfum þurft að fara í gegnum viðhorf okkar og hefðir og ákveða hvað við viljum halda í. Við tökum engu sem gefnu. Ég held að við stöndum sterkari fyrir vikið,“ segir hún. Síðustu árin hafa þau verið dug- leg að skiptast á að vera í skóla. Hún stundar núna nám í opinberri stjórnsýslu við HÍ. Davor er líka sestur aftur við námsbækurnar og stefnir á að taka próf til mál- flutningsréttinda með haustinu. Hann segist hreinlega ekki vita hvort hann yrði þá fyrsti innflytjandinn til að öðlast slík réttindi á Íslandi. „Ég hreinlega bara veit það ekki. Um daginn sagði einhver mér að ég væri fyrsti lögfræðingurinn sem ekki er búinn að slíta barnsskónum hér. En ég hef aldrei pælt í þessu. Mér fannst þetta aldrei nógu merkilegt til að rann- saka það,“ segir hann. Passlega ófullkominn Auk þess að starfa hjá Umboðsmanni skuld- ara vinnur Davor hjá Fjölmenningarsetrinu á Ísafirði við ráðgjöf, þýðingar og túlkun. Hann segist vissulega hafa mætt hindrunum frá því hann fyrst kom til Íslands en hindranir séu til þess eins að yfirstíga þær. „Ef einhver þolir mig ekki af því ég fæddist í öðru landi þá er það í mínum huga bara hans vandamál. Ég nenni ekki að standa í svoleiðis. Ég hef sett mér markmið og er ein- beittur í að ná þeim. Ég nenni heldur ekki að velta fyrir mér hvort þær hindranir sem ég mæti séu vegna þess að ég er innflytj- andi. Stundum halda innflytj- endur að þeir mæti mótlæti af því þeir eru innflytjendur. En þegar fólk fer að kynnast samfélaginu og stjórnkerfinu þá kemst það að því að það eru líka dæmi um að farið sé illa með Íslendinga,“ segir hann brosandi. Síðasta haust var Davor skip- aður aðalmaður í innflytjendaráð sem starfar á vegum velferðar- ráðuneytisins og er meðal annars ætla að vera ráðherra til ráðgjafar við faglega stefnumótum í málefn- um innflytjenda. „Skipunin var út síðasta kjörtímabil en ég vona að ég fái áfram að starfa að þessum málum,“ segir hann. Heilt yfir er Davor sáttur við lífið og tilveruna. „Ég er bara mjög ánægður. Þetta er ófullkominn staður eins og annars staðar í heiminum. En alveg passlega ófullkominn fyrir mig.“ Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Það er kannski búið að fréttast að einhver inn- flytjandi hafi asnast til að klára lögfræði. Fjölskyldan er samhent og hefur ólíkur bakgrunnur þeirra Davor og Önnu leitt til þess að þau taka engu sem sjálfsögðu. 24 viðtal Helgin 7.-9. júní 2013
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.