Fréttatíminn - 07.06.2013, Qupperneq 42
42 bílar Helgin 7.-9. júní 2013
Chevrolet Sportlegt útlit og þægilegt aðgengi
Trax – fimm sæta jepplingur
Meirapróf
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300
Næsta námskeið byrjar 12. júní 2013
Mesta úrval landsins af rafgeymum
fyrir húsbíla, hjólhýsi og fellihýsi
B reiddin í Chevrolet vörumerkinu hjá okkur hef-ur aldrei verið meiri,“ segir Benedikt Eyjólfs-son, forstjóri Bílabúðar Benna, sem meðal ann-
ars er með umboð fyrir Chevrolet en þar var nýverið
kynntur nýr jepplingur, Trax. Chevrolet Trax var fyrst
kynntur á bílasýningunni í París í fyrra. Lengd hans
er 4.248 mm, breiddin 1.766 mm og hæðin 1.674 mm.
„Trax er nýr og spennandi, fimm sæta jepplingur.
Hann ber styrkinn með sér og er hannaður til könn-
unarleiðangra í umhverfi þéttbýlisins. Hann býr yfir
mikilli samskiptahæfni, þægindum fyrir farþega og
miklu farangursrými. Hann er skýrt dæmi um þekk-
ingu og sérhæfingu Chevrolet sem var brautryðjandi í
framleiðslu jeppa og býr yfir meira en 75 ára sérþekk-
ingu í þróun slíkra ökutækja. Trax er hefðbundinn
jeppi sem hefur verið endurhannaður fyrir notkun
í þéttbýli. Þannig byggjum við brú frá fortíð yfir til
framtíðar,“ segir í tilkynningu Bílabúðar Benna.
„Kraftalegt og sportlegt útlit Trax ásamt nærveru
sem einkennist af stöðugleika og notagildi kallar á
athygli. Formuð yfirbyggingin, mikill halli á fram-
rúðu, straumlínulöguð framljós sem teygja sig aftur
með hliðunum og silfurlitar, 18 tommu álfelgur skapa
saman traustlegt og glæsilegt útlit bílsins. Tvískipt
vatnskassahlífin með formmótuðu Chevrolet merkinu
fyrir miðju gerir síðan útslagið,“ segir enn fremur.
„Trax er sérhannaður og smíðaður til notkunar við
þéttbýlisaðstæður. Jafnt á þjóðvegum með háum
hámarkshraða og þröngum bakstrætum er akstursná-
kvæmni hans til fyrirmyndar. Innanrýmið einkennist
af sportlegri fágun, miklu notagildi og fjölhæfni og
skapar umhverfi sem er jafnt aðlaðandi sem fágað.“
Hraðskreiður en eyðslan bærileg
Nýi smábíllinn frá Opel, Adam, þykir
flottur og útlit hans og litagleði bílanna
vekur athygli. Bíllinn var kynntur á
bílasýningunni í París á liðnu hausti en
er að koma á markað Evrópulanda. Hann
heitir eftir stofnanda Opel-verksmiðjanna,
Adam Opel. GM, framleiðandi Opel og
Vauxhall, fylgir þar með í kjölfar margra
bílaframleiðenda með framleiðslu smábíla
þar sem kaupendum býðst að setja sitt
persónulega mark á sinn bíl, meðal
annars með fjörugu litavali. Snoturt útlit
Opel Adam gerir hann að sjálfsögðum
keppinauti bíls eins og Fiat 500 sem notið
hefur vinsælda ytra og býðst nú loks hér á
landi. Auk þess keppir Adam beint við hinn
nýja Volkswagen Up, auk Audi A1 og Mini.
Opel Adam er 3,70 metra langur, 30
sentímetrum styttri en Opel Corsa.
Breiddin er 1,72 metrar. Hann er þriggja
dyra og fjögurra manna.
Í fyrstu verður Opel Adam boðinn með
þremur gerðum bensínvéla, 1,2 líta 70
hestafla, 1,4 lítra 87 hestafla og 1,4 lítra
100 hestafla vél. Þessir bílar eru með 5
gíra kassa. Síðar verður bíllinn í boði með
bensínvél með túrbó og beinni innspýt-
ingu. Sú gerð verður með 6 gíra kassa.
Opel Adam er, eins og margir nýir bílar
nú, með „stop/start“ tækni, stöðugleika-
stýringu, brekkuaðstoð og rafdrifnu stýri.
Í dýrari gerðunum er upplýsingakerfi sem
hægt er að tengja iPhone eða Android-
símum sem nýtast meðal annars sem
leiðsögukerfi. Upplýsingarnar koma fram
á 7 tommu skjá.
Velja má mismunandi felgustærðir undir
bílinn, 15 til 18 tommur.
Bílabúð Benna kynnti fyrr í vor Porsche
Cayman S sem var valinn Sportbíll heimsins
2013 á bílasýningunni í New York. Bíll
heimsins er valinn á hverju ári í fjórum
flokkum í tengslum við bílasýninguna í New
York. Flokkarnir eru hönnun, umhverfisbíll
heimsins, sportbíll heimsins og bíll heimsins.
„Porsche hefur tvisvar áður borið
þennan titil,“ segir á síðu umboðs Porsche.
„Árið 2006 varð fyrsta kynslóð Cayman
fyrir valinu og árið 2012 hlaut Porsche
911 hnossið. Að valinu á Cayman nú stóð
dómnefnd skipuð 66 bílablaðamönnum
frá 23 löndum. Cayman hreif dómnefndina
alveg sérstaklega fyrir óviðjafnanlegt veg-
grip og góða aksturseiginleika í þröngum
beygjum. Cayman S er með miðjusetta
vél eins og Porsche Boxter. Hann skilar
325 hestöflum og er 4,9 sekúndur í 100
km hraða. Útblástur er 188 g/km CO2 og
eyðslan í blönduðum akstri er ekki nema 8
lítrar á hundraðið.“
Porsche Cayman S var sýndur hjá Bílabúð Benna fyrr í vor. Athygli vekur að upp-
gefin eyðsla bílsins, sem er með 325 hestafla vél, er 8 lítrar á hundraðið í blönd-
uðum akstri.
Adam – flottur og litaglaður
Opel
Adam,
nýi
smábíll-
inn, þykir
snotur í
útliti og
fjörugir
litirnir
gleðja.
Chevrolet er hefðbund-
inn jeppi sem hefur verið
endurhannaður fyrir
notkun í þéttbýli.
Innanrýmið er
sportlegt og
einkennist af nota-
gildi og fjölhæfni.
74,6% ... kvenna 35 - 49 ára á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 35 – 49 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent jan - mars 2013
850 svör