Fréttatíminn - 07.06.2013, Blaðsíða 56
56 skák og bridge Helgin 7.-9. júní 2013
Skákakademían mikil Spenna fyrir lokaumferðir íSlandSmótSinS í Skák
Getur einhver stöðvað Hannes Hlífar?
í slandsmótið í skák 2013, sem fram fer á efstu hæð Turnsins við Borgartún hefur verið sann-kölluð flugeldasýning. Í fyrsta skipti í 100 ára
sögu mótsins er það ekki harðlæst og lokuð sam-
koma bestu skákmanna landsins, heldur galopið –
þarna eru nafntogaðir meistarar, efnisbörn og öld-
ungar, og áhugamenn af öllum stærðum og gerðum.
Þegar þetta er skrifað hafa verið tefldar sjö um-
ferðir af tíu. Hannes Hlífar Stefánsson hefur farið
með himinskautum, sigrað í sex skákum og aðeins
gert eitt jafntefli. Í hæla hans narta Björn Þorfinns-
son, Stefán Kristjánsson og Guðmundur Kjartansson
sem hafa 5,5 vinning. Níunda umferð fer fram í dag,
föstudag, og hefst klukkan 17 og er full ástæða til að
hvetja skákáhugamenn til að þyrpast í Borgartúnið
og fylgjast með einstæðri veislu. Tíunda og síðasta
umferð hefst klukkan 11 á laugardag, og þá ræðst
hvort Hannes hampar Íslandsmeistaratitlinum í tólfta
sinn eða hvort nýr Íslandsmeistari verður krýndur.
Mótið hefur einkennst af skemmtilegum tilþrifum
og óvæntum úrslitum. Stigahæsti keppandinn, Héð-
inn Steingrímsson (2558 stig) stórmeistari og tvö-
faldur Íslandsmeistari, mátti þannig lúta í duft fyrir
gjörsamlega óþekktum Skota, Grove að nafni, sem
aðeins hefur 2021 stig. Þá þurfti stórmeistaraefnið
Bragi Þorfinnsson (2478) að játa sig sigraðan gegn
Lofti Baldvinssyni (1706) þrátt fyrir að vera tveimur
hrókum yfir í lokastöðunni! Lesendur geta spreytt
sig á hinni glæsilegu fléttu Lofts í skákþraut dagsins.
Það er sannarlega ástæða til að hrósa Skáksam-
bandinu fyrir þá ákvörðun að opna Íslandsmótið upp
á gátt. Útkoman er glæsilegt og skemmtilegt mót í
anda einkunnarorða skákhreyfingarinnar: Við erum
ein fjölskylda.
Djarfur sóknarmaður kvaddur
Skákmenn – einsog þjóðin öll – syrgja mjög Hermann
Gunnarsson, hinn fjölhæfa snilling sem kvaddi okkur
nú í vikunni. Hermann var í áratugi einn ötulasti liðs-
maður skákhreyfingarinnar og án nokkurs vafa fræg-
asti skákáhugamaður landsins. Hann átti mikinn þátt
í að útbreiða fagnaðarerindi skákíþróttarinnar, og var
jafnan boðinn og búinn að leggja málstað skákar-
innar lið. Hermann var ástríðufullur skákmaður, og
það kemur lesendum tæpast á óvart að hann tefldi
ávallt óhikað til sigurs, sama hver andstæðingurinn
var. Síðasta skákmótið sem Hermann tók þátt í var
meistaramót Vals nú í vor.
skákþrautin
Hvítur mátar í
3 leikjum.
Loftur Baldvinsson (1706)
hafði hvítt gegn hinum
sókndjarfa Braga Þor-
finnssyni (2478) í 1. um-
ferð Opna Íslandsmótsins
2013. Loftur tefldi einsog
sá sem valdið hefur og
gerði út um skákina með
glæsilegum lokahnykk!
í slenska landsliðið vann sigur í opna flokknum á NM sem haldið var í Reykjanesbæ helgina 24.-26. maí.
Norðurlandamót eru haldin á tveggja ára
fresti og landslið Íslands í opnum flokki
var nálægt sigri í þeirri keppni einnig fyrir
tveimur árum. Ísland var í efsta sæti fyrir
síðustu umferðina 2011 en tapaði illa gegn
landsliði Finnlands í lokaleiknum 12-18 á
meðan Noregur vann 23-7 sigur í sínum
leik. Íslenska landsliðið varð að sætta sig
við þá að detta niður í þriðja sætið með
167 stig, lið Svíþjóðar með 168 í öðru sæti
og sveit Noregs hlaut 169 stig. Íslenska
landsliðið lét ekki slíkt óhapp henda sig
á Norðurlandamótinu í ár og var búið að
ná umtalsverðri forystu í fimmtu umferð
eftir glæsilegan sigur 17,59-2,41 gegn liði
Norðmanna. Sá leikur vannst 45-9 í impum
og þetta spil í leiknum var 15 impa virði.
Austur gjafari og allir á hættu:
Aðalsteinn opnaði á 4 spöðum á austur-
spilin og sá samningur var passaður út.
Útspil suðurs var hjartaás og norður setti
tiltölulega loðið spil sem erfitt var að lesa,
tíuna (en ekki drottninguna). Suður las
ekki stöðuna, spilaði áfram hjarta og Aðal-
steinn lét ekki bjóða sér geimið oftar, henti
tapslag í tígli í lauf og gaf aðeins 3 slagi –
620 takk. Í opnum sal var samningurinn
einnig 4 spaðar en Þorlákur og Jón dobluðu
þá til refsingar. Þeir gáfu engan afslátt,
suður spilaði út tígli og vörnin tók 4 fyrstu
slagina og fékk á trompásinn til viðbótar
og 500 í sinn dálk.
Danska kvennaliðið, sem vann öruggan
sigur 2011, vann einnig næsta öruggan
sigur á liði Noregs í úrslitaleik um fyrsta
sætið á NM 2013. Í liðinu nú voru Helle
Rasmussen-Lone Bilde (sem voru einnig
í liðinu 2011) og Christina Lund Madsen-
Fia Houlberg Jensen. Íslenska landsliðið
var skipað tveimur reyndum landslið-
spörum, Jón Baldurssyni-Þorláki Jónssyni
og Aðalsteini Jörgensen-Bjarna Einars-
syni og einnig Ragnari Hermannssyni og
Guðmundi Snorrasyni sem voru nýliðar í
liðinu.
Góð aðsókn í sumarbridge
Miðvikudaginn 29. maí var góð þátttaka
í sumarbridge, 34 pör mættu þar til leiks.
Lokastaða efstu para varð þannig:
1. Jóhann Stefánsson-Birkir Jónsson 65,0%
2. Eiríkur Sigurðsson-Björn Árnason 63,2%
3. Baldvin Valdimarsson-Hjálmtýr Baldursson 61,1%
4. Bergur Reynisson-Stefán Stefánsson 60,8%
Skor Jóhanns og Birkis er hátt en sigurveg-
arar á mánudagskvöldinu 3. júní fóru miklu
hærra:
1. Kjartan Ásmundsson-Ari Konráðsson 71,4%
2. Oddur Hjaltason-Sigurjón Ingibjörnsson 59,9%
3. Þorvaldur Pálmason-Jón V. Jónmundsson 59,3%
4. Gunnlaugur Sævarsson-Kristján M. Gunnarsson 57,6%
Aðsókn var ágæt, en litlu minni, 24 pör
mættu til leiks. Skor Kjartans og Ara er svo
hátt að erfitt verður að slá það í sumar.
Bridge ágæt aðSókn í SumarBridge
Ísland og Danmörk sigursæl á NM
Lausn: 1.Hxa7+! Dxa7
2.Rc7+! 1-0 (Drepi svartur
riddarann verður hann
mát með Db5)
♠G
♥DG107
♦ÁK84
♣D953
♠ Á10
♥ Á983
♦ 10753
♣ 1072
♠ 74
♥ 654
♦ G92
♣ ÁK654
♠ KD986532
♥ K2
♦ D6
♣ G
n
s
V a
Christina Lund Madsen í danska kvennalands-
liðinu og Guðmundur Snorrason í íslenska opna
landsliðinu kanna gæðin í gullpeningunum fyrir
fyrsta sætið. Ljósmyndari: Aðalsteinn Jörgensen
Hermann
Gunnarsson
var ástríðu-
fullur skák-
maður, sem
tefldi ávallt til
sigurs.
Hannes Hlífar Stefánsson lagði Björn Þorfinnsson að velli í
7. umferð Íslandsmótsins í skák og getur náð þeim einstæða
árangri að verða Íslandsmeistari í 12. sinn!