Fréttatíminn - 07.06.2013, Síða 70
Egill Helgason ferðaðist um Kanada á dögunum og hyggst gera sjónvarpsþáttaröð um Íslendinga í Vesturheimi. Ljósmynd/Ragn-
heiður Thorsteinsson
Fjölmiðlun Frumleg þjónusta Fjölmiðlakonu
Allir hafa merkilega sögu að segja
„Mig langar að auðvelda fólki að koma
minningum í einhvers konar form, til
dæmis texta eða myndband. Margir
hafa eflaust lengi ætlað sér að láta verða
af slíku en kannski vantað tíma, þekk-
ingu, tæki eða möguleika til þess,“
segir Olga Björt Þórðardóttir sem tekur
að sér að taka viðtöl við fólk við ýmis
tækifæri.
„Það er svo skemmtilegt hvað fólk
er hugmyndaríkt og það hafa margir
óskað eftir viðtölum. Ein sem hafði sam-
band við mig hafði misst móður sína
fyrir aldur fram og langar að tekin verði
viðtöl við fólkið sem þekkti hana best.
Með þeirra frásögn nær hún mögulega
heildstæðari mynd af móður sinni og
því hvernig húmor hennar var, viðhorf
og lífssýn. Svo hefur einn beðið mig að
taka viðtal við aldraða móður sína sem
býr ein upp í sveit og hefur upplifað stór-
brotna hluti. Viðtöl við börn á ýmsum
aldri eru líka dýrmæt því persónuein-
kennin koma svo skemmtilega fram í
einlægni þeirra,“ segir Olga.
Olga er þeirrar skoðunar að allir hafi
merkilega sögu að segja en að fáir gefi
sér nægan tíma til að hlusta vel á fólkið
sitt. „Svo fellur einhver skyndilega frá
eða veikist alvarlega og missir tjáning-
armátt og þá óska margir þess að hafa
hlustað oftar, dýpra og spurt viðkom-
andi að meiru. Á hjúkrunar- og elliheim-
ilum landsins dvelur fólk sem er hafsjór
af fróðleik og hefur lifað ótrúlega tíma.
Heil kynslóð sem gæti sagt okkur svo
margt áhugavert ef við gæfum okkur
meiri tíma til að hlusta,“ segir Olga.
Olga útskrifast síðar í mánuðinum
með meistarapróf í blaða- og frétta-
mennsku frá Háskóla Íslands og segir
þær áherslur sem hún lærði þar eiga
eftir að nýtast vel. „Ég hef þó fyrst og
fremst lært af fyrirmyndum mínum sem
ég hef fylgst með í gegnum tíðina eins
og Jónasi heitnum Jónassyni, Her-
manni heitnum Gunnarssyni, Evu
Maríu Jónsdóttur, Sirrý og fleiri.“
Nánari upplýsingar má nálgast
á vef Olgu Bjartar, olgabjort.com
og fyrirspurnir má senda á net-
fangið olgabjort@gmail.com
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Þegar hafa margir óskað eftir því
að Olga Björt taki fyrir þá viðtöl, til
dæmis við aldraða foreldra eða vini
látinna ástvina. Ljósmynd/Hari
sjónvarp ný þáttaröð um Íslendinga Í vesturheimi
þ etta var sérlega skemmtileg ferð,“ segir sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason sem er nýkominn
heim frá Kanada. Þar var hann á Íslend-
ingaslóðum og hyggst gera sjónvarps-
þætti um heimsókn sína.
„Þetta var sérlega skemmtileg ferð.
Prógrammið var mjög stíft, við sváfum
varla nema eina nótt á hverjum stað. Við
fórum til Manitoba, Alberta, North-Da-
kota og til British Columbia, á Íslend-
ingaslóðir. Við hittum mikið af frábæru
fólki, skemmtilegu og eftirminnilegu,
og nutum einstakrar gestrisni,“ segir
Egill. Hann ferðaðist með Ragnheiði
Thorsteinsson framleiðanda og Jóni
Víði Haukssyni kvikmyndatökumanni.
Egill segir þau muni gera þáttaröð
um heimsókn sína, allt að átta þætti.
„Þeir fjalla um Íslendinga í Vestur-
heimi, aðallega út frá sögunni og þá
ekki síður sögum sem þeir hafa sagt
sjálfir sín á milli. Við hlökkum mikið til
að setja þetta saman. Það verður tíma-
frekt, líklega verða þættirnir á dagskrá
RÚV eftir jólin.“
Verða þetta þættir í líkingu við Kilj-
una?
„Það er í anda Kiljunnar að þarna er
lögð nokkur áhersla á skáld og rithöf-
unda, í raun var meiri þróttur í íslensk-
um bókmenntum í Kanada um alda-
mótin 1900 en hér heima á Íslandi. En
þetta verður talsvert meiri pródúksjón
en Kiljan, við tókum fjölmörg viðtöl og
einnig verður stuðst við þulartexta frá
sjálfum mér.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Egill Helgason gerir
sjónvarpsþætti í Kanada
Sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason ferðaðist um Íslendingaslóðir í Vesturheimi og hyggst gera
átta þátta sjónvarpsröð um upplifun sína. Hann hitti mikið af eftirminnilegu fólki og naut ein-
stakrar gestrisni.
Þeir [þættirnir]
fjalla um Íslend-
inga í Vestur-
heimi, aðallega út
frá sögunni og þá
ekki síður sögum
sem þeir hafa sagt
sjálfir sín á milli.
Skrifar bók um
viðskiptalífið
Áhugafólk um fjölmiðla
hefur fylgst með fréttum
DV af viðskiptablaða-
mönnunum Magnúsi
Halldórssyni og Þórði
Snæ Júlíussyni sem
hættu nýverið
störfum hjá 365. Í
fréttum DV hefur
komið fram að
þeir hyggist setja á
stofn nýjan fjölmiðil í
Sögðu nei við Jools Holland
Sjöunda breiðskífa Sigur
Rósar, Kveikur, kemur
út á þjóðhátíðardaginn,
17. júní næstkomandi.
Liðsmenn sveitarinnar
eru nú staddir hér á
landi í stuttu fríi eftir
að tónleikaferðalagi um
Asíu og Bandaríkin lauk.
Á ferðalagi sínu um
Bandaríkin kom sveitin
fram í spjallþætti Jays
Leno. Jools Holland,
breskur kollegi hans, vildi
líka fá þá Jónsa, Orra og
Georg til að spila í þætti
sínum og bauð þeim að
vera aðalnúmerið hjá sér
síðasta þriðjudagskvöld.
Aðalnúmerið í þættinum
leikur jafnan þrjú lög
og fær góða kynningu
á efni sínu. Sigur Rósar-
menn ákváðu hins vegar
að afþakka boðið því
annars hefðu þeir þurft
að hlaupa út í flugvél
skömmu eftir komuna til
Íslands og fríið hefði farið
fyrir lítið. Samkvæmt
upplýsingum Fréttatím-
ans áttu skipuleggjendur
þáttarins erfitt með að
trúa því að Sigur Rós
hefði afþakkað boðið. Og
hringdu minnst tvisvar til
að fá staðfestingu á því
að svarið væri örugglega
nei.
haust sem þeir fjármagna
sjálfir. Tímann fram að
því nýtir Magnús til að
skrifa bók um íslenskt
viðskiptalíf sem stefnt
er að því að Forlagið
gefi út fyrir jólin. Ætti
það að verða for-
vitnileg lesning enda
hafa þeir félagar
verið duglegir að
stinga á kýlum í
umfjöllun sinni um
útrásarvíkinga og
gjörðir þeirra.
70 dægurmál Helgin 7.-9. júní 2013
einungis unnið
úr safa ungra
grænna
kókoshneta
himneskt.is