Nýjar kvöldvökur - 01.03.1919, Blaðsíða 17

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1919, Blaðsíða 17
JÓRÐIN og HALASTJARNAN. 47 þess að ná í kol, málma og ýmislegt fleira. Reir leggja um mig járnbrautir, sem gufuvagn- ar þjóta eftir. Peir sprengja göng í gegn um stærstu fjöll mín og byggja brýr yíir vötn og ár. Reir segja sjálfir, að þeir ráði algerlega yfir mér.« »Mér finst það vera hálfkollótt fyrir stjörnu, að láta slík skriðkvikindi ráða yfir sér,« sagði Halastjarnan. »Geturðu ekki skekið þá af þjer?« »Eg hefi reynt það,« sagði Jörðin, »og það oftar en einu sinni. Glóandi hraunleðju hefi eg spúið úr eldfjöllum mínum og grafið fyrir þeim heilar borgir. Hafrót hef eg ótal sinn- um látið koma og drekt þeim í þúsundatali. Og þegar þeir ætla að gerast of nærgöngulir, ek eg mér og læt koma jarðskjálfta.« »Nú, dugar það ekki samt,« sagði Halastjarnan. »Rað linar í bráðina, ekki er hægt annað að segja,« andvarpaði Jörðin. »En það er al- veg gagnslaust er til lengdar lætur. Eg álít að þeir séu orðnir of margir. Jeg hefði átt að taka þá í hnakkann, á meðan þeir voru færri og ekki svona sprenglærðir. Regar eg er búin að drekkja og grafa nokkrar þúsundir af þeim, á eg von á, að ættingjar þeirra deyji úr sulti og sorg, — en í stað þess koma aðrir menn, til að hugga þá og hjálpa þeim, svo að eg er orðin eins morandi og áður, að nokkrum árutn liðnum.« »Slíkt og þvílíkt hef eg aldrei heyrt,« sagði Halastjarnan. »Að þú skulir þola þeim annað eins og þetta.« »Nú, hvað á eg til bragðs að taka,« sagði Jörðin. »Eg get ekki komið þeim fyrir katt- arnef. Reir eru búnir að rannsaka mig frá enda til enda, svo að innan skamms á eg ekki eftir lótastó an blett handa sjálfri mér. Reir eru búnir að reikna mig út, mæla mig og lýsa mér hornanna á milli. Margir þeirra láta standa hjá sér kúiu á borðinu; hún á að tákna mig. Reir reikna líka út fyrirfram, hvenær stórviðri, eldingar og jarðskjálftar koma, og þar fram eftir götunum. Reir hengja hjá sér verkfæri á vegginn, sem fræða þá um þetta alt saman. Og hvað get eg nú tekið til bragðs?« »Rað veit eg ekki,« ansaði Halastjarnan, »en eg get fullvissað þig um það, að eg hefði al- drei þolað þeim þetta.« Jörðin hló kuldahlátur. »Ja, svei, vertu ekki að ímynda þér neina vitleysu. Eg get frætt þig um það, að menn- irnir eru búnir að uppgötva þig. Reir glápa á þig í gegnum sjónauka, reikna þig út, gefa þér nafn og rita um þig margar bækur; það er að segja: þeir allra vitrustu af þeim. Heimsk- ingjarnir eru hræddir við þig, af því þeir halda, að þú boðir heimsendir.* »Hverjir eru heimskingjarnir?« spurði Hala- stjarnan. Jörðin ýtti við íshettunni, svo að hálft At-’ lanshafið varð fult af ís og dýragarðurinn blómg- aðist ekki fyr en á hvítasunnu. »Retta var það vérsta sem þú spurðir mig að,« svaraði Jörðin vandræðaleg. »Eg bið margfaldlegrar afsökunar,* sagði Halastjarnan. »Retta eru líklega launmál.« »Nei, ekki er það,« ansaði Jörðin. »En alt til þessa dags, hefir mér ekki tekist að kom- ast að raun um, hverjir heimskingjarnir eru. En þeir eru til — það veit eg;,og það fleiri en einn og fleiri en tveir. Vankvæðin á að þekkja þá liggja í því, að hver og einn þykist vitur, en álítur alla aðra heimska,« »Reir eru þá líklega allir heimskir,* mælti Halastjarnan. En nú þótti jörðinni fyrst verulega fyrir. Henni datt í hug, að hún hefði verið of opin- ská við þessa ókunnu stjörnu, sem hún þekti ekki að neinu leyti. Retta hlaut líka að vera lítilfjörleg persópa eftir útlitinu að dæma. Hún sagði því í drembilegum róm: »Síður en svo, Halastjarna góð, síður en svo. Rað er ekki til neins að vera að tala við þig um þessi efni; þú hefir ekkert vit á því. Eg er ekki vön að grobba af mér, en ef þú gætir vel að, muntu sannfærast um það, að eg sé áhtlegust af öllum stjörnunum. Skoðaðu alla hnetti himingeimsins og hvergi muntu finna

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.