Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.08.2013, Page 49

Fréttatíminn - 23.08.2013, Page 49
NámskeiðHelgin 23.-25. ágúst 2013 49 Skráning hafin Upplýsingar í síma 561 5620 www.schballett.is Mjólkurfræðingur segir það engin geimvísindi að búa til mat úr mjólk. Ljósmynd/NordicPhotos/Getty  Námskeið Námskeið um ostagerð eru haldiN um allt laNd Allir geta gert kotasælu Þ að geta allir gert ferskosta, kotasælu, jógúrt og skyr,“ segir Þórarinn Egill Sveins- son mjólkurverkfræðingur sem kennir á námskeiði í ostagerð hjá Endurmenntun Landbúnaðarhá- skóla Íslands að Hvanneyri. Nám- skeiðið hefur verið haldið í nokkur ár og telur Þórarinn að um 500 manns hafi sótt það í heildina. „Við höldum þetta hvar sem er á landinu. Ég fer bara þangað sem fólk vill vera. Það er erfitt ef færri en 10 eru í hóp og best er að halda þetta í skólaeldhúsi eða einhverju slíku þar sem þrír til fimm geta verið saman í hóp og hrært í pottum,“ segir hann. Ekki þarf neinn grunn til að fara á námskeiðið, það sækja áhugasamir þéttbýlisbúar rétt eins og bændur á lögbýlum sem stefna á heimafram- leiðslu og fólk í ferðaþjónustu sem vill búa til úr mjólk fyrir veitingasölu á staðnum. Allir nemendur fá síðan Ostagerðabókina sem Þórarinn skrifaði. „Markmiðið með námskeiðinu er að fólk losni við þær ranghugmyndir að það séu geimvísindi að búa til mat úr mjólk. Ömmur okkar og langömm- ur gerðu þetta sjálfar en á síðustu öld hefur þessi framleiðsla færst inn í stór og þróuð iðnfyrirtæki. En ef ég tek hliðstæðu úr bakarabransanum þá er það eins og enginn myndi þora að gera skúffuköku því þær eru fram- leiddar í bakaríum. Eftir námskeiðið getur þú búið til jógúrt og súrmjólk í eldhúsinu heima á laugardagskvöldi,“ segir hann. -eh

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.