Fréttatíminn - 30.08.2013, Blaðsíða 4
Dýravelferð matvælastofnun mætir nýjum lögum um áramót
YFIR 20 GERÐIR GASGRILLA
Á ÚTSÖLUNNI
� Stærð: 149 x 110 x 60 cm
ÚTSALA
Er frá Þýskalandi
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
VERÐ ÁÐUR
59.900
49.900 www.grillbudin.is
veður föstuDagur laugarDagur sunnuDagur
Rigning á landinu,
sums staðaR úRhelli.
höfuðboRgaRsvæðið:
Rigning, séRstaklega um moRguninn.
slydda fRaman af degi n-lands,
en léttiR annaRs til.
höfuðboRgaRsvæðið:
lengst af þuRRt, en svalt. Rign. um kvöldið.
RigniR s-lands og vestan. hlýnandi.
höfuðboRgaRsvæðið:
vætusamt lengst af dagsins.
lemjandi haustrigning
Heldur hefur verið að draga úr mætti
yfirvofandi óveðurs eftir því sem
nær hefur dregið. engu að síður mun
rigna og hvessa vestantil. krap og
snjór á fjallvegum. enn úrkoma fram
eftir n-lands á laugardag.
annars styttir upp,
en aftur er von á smá
rigningu sv-lands um
kvöldið. ný lægð og
enn meiri rigning síðan
á sunnudag. eiginlegu
sumri er hér með lokið!
6
4 8
10
8
8
6 3
6
10
9
7 7 8
10
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Fjölgar starfsfólki
vegna dýraverndarlaga
n ý lög um dýravelferð og búfjár-hald taka gildi um næstu áramót og hefur eftirlit með lögunum
hefur verið flutt frá Umhverfisstofnun
og sveitarfélögum til Matvælastofnunar
(MAST). Þar með er eftirlit með dýravel-
ferð komið á einn stað sem gera á máls-
meðferð einfaldari og skilvirkari.
Að sögn Þóru Jóhönnu Jónasdóttur,
dýralæknis gæludýra og dýravelferðar
hjá MAST, verða nýju dýravelferðarlögin
víðtækari og ítarlegri en fyrri lög. „Mark-
mið nýju laganna er að stuðla að velferð
dýra, það er að segja að þau séu laus við
vanlíðan, hungur, þorsta, ótta, þjáningu,
sársauka, meiðsli og sjúkdóma,“ segir
hún. Í nýju lögunum kemur fram að dýr
séu skyni gæddar verur og ná lögin nú
til dýra sem áður hafa ekki fallið undir
lög um dýravernd, svo sem tífætlukrabba,
smokkfiska og býflugna. Lögin gilda líka
um fóstur sem náð hafa vissu þroskastigi.
„Markmið laganna er ennfremur að dýr
geti sýnt sitt eðlilega atferli eins og frek-
ast er unnt. Einnig eru í lögunum mörg
nýmæli eins og til dæmis að dýr hafi rétt
til að fá lækningu eða líkn, að sveitarfé-
lagi sé skylt að sjá til þess að gripið sé til
aðgerða ef um hálfvillt eða villt dýr er að
ræða,“ segir Þóra.
Þeir sem verða varir við að dýr sé sjúkt,
sært, bjargarlaust eða að aðbúnaður sé
ekki fullnægjandi eiga að tilkynna slíkt til
umráðamanna eða lögreglu. Á vef MAST
mast.is er einnig hægt að senda inn slík-
ar ábendingar undir nafni eða nafnlaust.
Lögin fela í sér þá breytingu fyrir gælu-
dýraeigendur að einstaklingsmerkja skal
hvert dýr, en áður hefur slíkt verið háð
ákvörðun sveitarfélaga.
Þóra segir nýju lögin veita MAST víð-
tækari heimildir við beitingu þvingunar-
úrræða þegar brotið er gegn ákvæðum
þeirra og verður heimilt að beita dag-
sektum, stjórnvaldssektum eða stöðva
starfsemi sé tilefni til þess. „MAST mun
einnig verða heimilt að framkvæma
vörslusviptingu, leggja tímabundið bann
við dýrahaldi eða fara fram á að dýraeig-
andi verði með dómi sviptur heimild til
að hafa dýr í umsjá sinni hafi hann gerst
sekur um stórfellt eða ítrekað brot á lög-
unum.“
Samhliða samþykkt nýrra laga um
dýravelferð voru samþykkt ný lög um bú-
fjárhald sem einnig taka gildi um næstu
áramót og færist búfjáreftirlit þá frá sveit-
arfélögum til MAST og verður tengt eftir-
liti með dýravelferð. Hvað varðar hefð-
bundinn búskap segir Þóra að nýju lögin
feli fyrst og fremst í sér breytingar og
áherslur á aukna dýravelferð innan hefð-
bundins búskapar. „Reglugerðabreyting-
ar munu koma í kjölfar nýrra laga, sem
með ítarlegri leiðbeiningum tryggja dýr-
um góða velferð með góðum aðbúnaði.“
Hjá MAST starfa nú um sjötíu manns
og verður stöðugildum fjölgað um átta
vegna gildistöku nýja laganna.
dagný hulda erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
ný dýravelferðar-
og búfjárlög taka
gildi um næstu
áramót sem veita
eftirlitsaðilum
betri tól en áður
til að grípa inn í
sé velferð dýra
ekki tryggð.
matvælastofnun
hefur tekið við
eftirliti með
dýravelferð frá
Umhverfisstofnun
og fjölgar
stöðugildum
um átta til að
framfylgja nýju
lögunum.
Þeir sem verða
varir við að dýr
sé sjúkt, sært,
bjargarlaust eða
að aðbúnaður
sé ekki fullnægj-
andi eiga að
tilkynna slíkt til
umráðamanna
eða lögreglu.
þóra Jóhanna Jónasdóttir, dýralæknir gælu-
dýra og dýravelferðar hjá mast.
4 fréttir Helgin 30. ágúst-1. september 2013
iKea nýr vörulisti borinn inn á heimili
Um tólf hundruð
vörur lækka í verði
Bestu fréttirnar eru þær að um
tólf hundruð vörur lækka í verði,
segir Kristín Lind Steingrímsdótt-
ir, markaðsstjóri IKEA, en nýjum
vörulista verslunarinnar verður
dreift nú fyrir helgina.
„Nýr vörulisti,“ segir í tilkynningu,
„markar upphaf nýs rekstrarárs hjá
IKEA, nýtt verð tekur gildi og að
venju skuldbindur fyrirtækið sig
til að halda verðinu óbreyttu í eitt
ár. Allt er þetta venju samkvæmt,
en það er með mikilli ánægju sem
IKEA getur tilkynnt að vöruverð
stendur í stað á milli ára að meðal-
tali. Sumar vörur hækka í verði en
um tólf hundruð vörur lækka í verði
og það er veruleg kjarabót fyrir
heimilin í landinu. Sem dæmi kom
ný eldhúslína á markað í byrjun júní
og verðið á henni er bundið til loka
næsta rekstrarárs, eða í 15 mánuði.
Verðið ætti því að koma mörgum
skemmtilega á óvart og veita fleir-
um tækifæri á að skapa heimili sem
veitir allri fjölskyldunni ánægju.
Ástæðan fyrir því að IKEA getur
lækkað verð á mörg þúsund vörum
er tvíþætt. Fyrst er að nefna betra
innkaupsverð í einhverjum tilvikum
vegna lækkunar á heimsmarkaðs-
verði. Í öðru lagi styrktist krónan
nokkuð fyrr á þessu ári og Seðla-
banki Íslands lýsti því yfir að hann
myndi grípa inn í til að tryggja
nokkuð stöðugt gengi. Viðskipta-
vinir IKEA njóta góðs af þessum
breytingum og með því að ganga
ekki lengra í verðhækkunum legg-
ur fyrirtækið sitt á vogarskálarnar
til að halda stöðugleika og sýna
samfélagslega ábyrgð í verki, ekki
síst í ljósi þess að opinberir kjara-
samningar eru lausir eftir áramót
og nauðsynlegt að halda verðbólgu
í skefjum.“ - jh
nýr vörulisti
markar upphaf nýs
rekstrarárs hjá
ikea, nýtt verð tekur
gildi og fyrirtækið
skuldbindur sig til
að halda verðinu
óbreyttu í eitt ár.
Bæjarhátíð mosfellsbæjar um helgina
Bæjarhátíð Mosfellsbæjar, Í túninu
heima, verður haldin í tíunda sinn nú
um helgina. Hún hefst í dag, föstu-
daginn 30. ágúst, og stendur fram
á sunnudag, 1. september. Hátíðin
er fjölskylduhátíð þar sem allir geta
fundið eitthvað við sitt hæfi.
Fjölbreyttir menningarviðburðir
eru í boði, tónleikar, myndlistasýn-
ingar, útimarkaðir og íþróttavið-
burðir svo fátt eitt sé nefnt. Hátíðin
hefst formlega á föstudagskvöldi með
skrúðgöngu, varðeldi og brekkusöng.
Hápunktur hátíðarinnar er á laug-
ardagskvöld þegar stórtónleikar fara
fram á Miðbæjartorgi.