Fréttatíminn - 30.08.2013, Blaðsíða 58
SamfélagSmál Heimildarmynd um Örlyg aron SturluSon
Saga Ölla hreyfir við öllum
Körfuknatt-
leiksmaðurinn
Örlygur Aron
Sturluson lést af
slysförum í byrj-
un árs 2000,
aðeins átján
ára gamall.
Örlygur spilaði
með Njarðvík
og þótti einn
sá efnilegasti
í sinni grein.
Á miðvikudag
í næstu viku
verður heim-
ildarmyndin
Ölli frumsýnd í
Sam-bíóunum
og í tilefni af því
hefur fjölskylda
hans stofnað
Minningarsjóð
Ölla sem hefur
það markmið
að styrkja börn
sem minna
mega sín til
íþróttaiðkunnar.
Móður
Ölla fannst
kjörið
að nýta
tækifærið
og heiðra
minningu
sonar síns
með því
að láta
eitthvað
gott af sér
leiða í hans
nafni.
H eimildarmyndin Ölli í leikstjórn Garðars Arnars Arnarsonar verður frumsýnd í Sam-bíóunum
miðvikudaginn 4. september og fjallar
hún um ævi körfuknattleiksmanns-
ins Örlygs Arons Sturlusonar sem lést
af slysförum i byrjun árs 2000, aðeins
átján ára gamall. Í tilefni af myndinni
hefur fjölskylda Ölla stofnað minn-
ingarsjóð sem hefur það að markmiði að
styrkja börn frá efnalitlum fjölskyldum
til íþróttaiðkunnar. Í stjórn sjóðsins eru
Ólafur Stefánsson, handknattleiksmað-
ur, Margrét Sanders framkvæmdastjóri
Deloitte og Halla Heimisdóttir, íþrótta-
og lýðheilsufræðingur. Verndari sjóðsins
er Þorgrímur Þráinsson.
Að sögn Maríu Rutar Reynisdóttur,
umsjónarmanns sjóðsins, fæddist hug-
myndin um sjóðinn þegar Garðar Örn
hafði samband við móður Örlygs, Sæ-
rúnu Lúðvíksdóttur, og bað um að fá að
gera um hann heimildamynd. „Henni
fannst kjörið að nýta tækifærið og heiðra
minningu sonar síns með því að láta eitt-
hvað gott af sér leiða í hans nafni.“ María
segir jafnframt að á Íslandi sé vaxandi
fátækt og að sumar fjölskyldur hafi ekki
efni á að greiða æfingagjöld barna sinna
né kaupa nauðsynlegan búnað til íþrótta-
iðkunar.
Styrkir úr Minningarsjóði Ölla verða
veittir í gegnum félagsþjónustu bæjar-
félaga og eftir öðrum viðurkenndum
leiðum. „Kennarar, þjálfarar og
aðrir geta einnig komið ábend-
ingum til sjóðsins,“ segir María.
Áætlað er að úthluta úr sjóðnum
tvisvar sinnum á ári, á haustin
og eftir áramót og að hafa jafn-
vel aukaúthlutun fyrir sumarið
þegar leikjanámskeið og
keppnisferðalög standa
yfir. Síðar í haust stendur
til að halda styrktartón-
leika og skemmtilegan
íþróttaviðburð á vegum
Minningarsjóðsins.
Garðar Örn, leikstjóri
myndarinnar, þekkti
Örlyg heitinn ekki í
lifanda lífi en fékk
hugmynd að gerð
myndarinnar þegar
minningargrein var
endurbirt á vef körfu-
knattleiksdeildar
Njarðvíkur árið
2012. „Saga Ölla
hreyfir við öll-
um og ég vildi
fá að segja hana
til að fólk fengi
að kynnast hon-
um betur. Sjálfur
var ég búinn að heyra marg-
ar sögur af honum og langaði
að koma þeim í kvikmynda-
form og halda minningu hans
á lofti.“ Að sögn Garðars er
kvikmyndin eins og ævisaga
á myndrænu formi og fjallar
bæði um Ölla sem körfubolta-
mann og persónu. „Nú er ég
búinn að vinna að myndinni í eitt og hálft
ár og viða að mér miklu af verðmætu efni
og taka viðtöl við fjölskyldu hans, vini,
ættingja og fólk úr körfuboltanum á Ís-
landi og hef kynnst Ölla í gegnum það
ferli. Hann var ótrúleg manneskja,“
segir Garðar.
Þegar Örlygur var aðeins sextán
ára gamall byrjaði hann að leika
með meistaraflokki UMFN og
vakti strax athygli fyrir mikla
hæfileika og vann sér sæti
sem leikstjórnandi og
átti stóran þátt í því að
liðið hampaði Íslands-
meistaratitli í lok
keppnistímabilsins.
Hann var valinn í
A-landslið Íslands
sumarið 1999
eftir að hafa dvalið
í Bandaríkjunum í
eitt ár við nám. Hann
spilaði þrjá leiki með
landsliðinu.
Nánari upplýsingar um
Minningarsjóðinn og kvik-
myndina má nálgast á Fa-
cebook-síðunum facebook.
com/olli og facebook.com/
minningarsjodurolla.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Frá sextán ára aldrei lék Örlygur Aron Sturluson með meist-
araflokki UMFN og hampar hér Íslandsmeistaratitlinum árið
1998. Ljósmynd/Halldór Rósmundur
Hægt er að styrkja Minningar-
sjóð Ölla með framlögum inn
á reikning númer 0322-26-
021050. Reikningurinn verður
í fjárvörslu Deloitte ehf., og
er kennitalan 521098-2449.
Minningarsjóður Ölla
Með Kúla Deeper búnaðinum er hægt að taka þrívíddarmyndir með venjulegum myndavélum.
nýSkÖpun kúla inventionS leitar fjárfeSta á karolina fund
Umfjöllun í vinsælum tæknifjölmiðlum
Hjá frumkvöðlafyrirtækinu
Kúla Inventions hefur á undan-
förnum árum verið unnið að
þróun þrívíddarbúnaðar sem
kallast Kúla Deeper og er fest-
ur á myndavélar. Nú er þeirri
vinnu lokið og er stefnt að
framleiðslu á næstu mánuðum.
Því leitar Kúla nú fjárfestingar-
styrkja á vefsíðunni Karolina
Fund. Að sögn Írisar Ólafsdótt-
ur, framkvæmdastjóra Kúlu, er
hægt að styrkja framtakið með
allt frá fjórum evrum og upp í
eitt þúsund og fimm hundruð
evrur. „Í staðinn fær fólk þrí-
víddarkort, þrívíddargleraugu
og upp í nokkur stykki af Kúla
Deeper búnaðinum. Fyrstu
hundrað sem styrkja um fimm-
tíu og níu evrur fá búnaðinn í
staðinn.“
Á undanförnum dögum hefur
Kúla Deeper búnaðurinn fengið
gríðarlega góð viðbrögð og um-
fjöllun í virtum tæknimiðlum
svo sem á Tech Crunch, Wired
og Gizmodo. „Það er ómetan-
legt að fá umfjöllun í þessum
miðlum núna þegar fjárfest-
ingarferlið stendur yfir. Eigin-
lega eins og að vinna í lottói,“
segir Íris. „Bloggarar og minni
tæknisíður taka efni af þessum
síðum svo umfjöllunin er strax
kominn víða á netinu.“
Íris segir ávinninginn af um-
fjöllun í þessum miðlum strax
áþreifanlegan. „Þegar Kúla
Deeper var slegið inn á Google
á miðvikudag komu upp um
fjögur þúsund síður og eftir há-
degi á fimmtudag var fjöldinn
orðinn rúmlega níu þúsund.“
-dhe
Tvær nýjar og spennandi danskar
myndir verða sýndar á Riff-kvik-
myndahátíðinni sem hefst 26.
september. Annars vegar er þar um
að ræða sálfræðitryllinn I lossens time
með leikkonunni Sofie Gråbøl sem
flestir þekkja úr sjónvarpsþáttunum
Glæpnum, Forbrydelsen. Hins vegar
er það Spies og Glistrip, leikin mynd
um vináttu tveggja kunnra Dana;
Mogens Glistrup, lögfræðings sem
leiddist út í stjórnmál og hins umdeilda
„ferðakóngs“, milljónamærings og
kvennabósa, Simon Spies.
Ásgeir Trausti
á Airwaves
Síðasta holl lista-
manna sem kemur
fram á Iceland
Airwaves tón-
listarhátíðinni
í ár var kynnt
í vikunni. Alls munu
215 listamenn koma
fram á hátíðinni að þessu sinni,
þar af 61 erlend sveit. Af íslenskum
nöfnum sem bæst hafa í hópinn má
nefna Ásgeir Trausta, Sykur, Pétur Ben,
Samúel Jón Samúelsson Big Band,
Láru Rúnars, Skepnu, Dísu, Jan Ma-
yen og Mono Town. Stærsta nafnið
í erlendu deildinni sem kynnt var
í vikunni er kanadíska pönkbandið
Fucked Up, breska hljómsveitin Money,
Nite Jewel og Jagwar Ma. Nánari upplýsingar
um listamennina má finna á heimasíðu
Airwaves en þar fer einnig fram miðasala.
Örfáir miðar eru eftir. Hátíðin er haldin um
mánaðamótin október/nóvember.
Ný mynd Sofie á Riff
58 dægurmál Helgin 30. ágúst-1. september 2013