Fréttatíminn - 30.08.2013, Blaðsíða 22
B
ergur Þór Ingólfsson
leikstýrði Mary Popp-
ins í Borgarleikhúsinu
á síðasta leikári og er
nú að æfa leikarahóp-
inn upp aftur eftir sumarfrí. Í nógu
er að snúast hjá Bergi þessa dag-
ana því hann leikur einnig í Jeppa á
fjalli, skrifar handrit að barnaleik-
riti um Hamlet og fagnar sex ára
stórafmæli Grindvíska atvinnuleik-
hússins Gral með uppsetningu á
tveimur sýningum í haust.
Grindvísk sirkúsfjölskylda
Bergur ólst upp í Grindavík og er
trúr uppruna sínum en allir sem
með einhverjum hætti koma að
leikhópnum Gral hafa tengingu
við Grindavík. „Ef það er eitt-
hvað óljóst með tengsl fólks við
Grindavík bara finnum við út úr
því. Til dæmis kom í ljós að Erling
Jóhannsson átti afa sem ólst upp í
Grindavík. Þetta er svo lítið land
að það má alltaf finna tengingu við
Grindavík,“ segir Bergur.
Öll fjölskylda Bergs hefur með
einhverjum hætti komið að starf-
semi Gral en eiginkona hans, Eva
Vala Guðjónsdóttir, leikmynda-
og búningahönnuður með meiru,
starfar með hópnum. Hún er Esk-
firðingur sem fór til Grindavíkur
tólf ára gömul að passa börn. „Ég
sá hana fyrst þá og varð strax skot-
inn í henni. Við vorum kærustupar
þá um tíma en erum núna búin að
vera saman í tuttugu ár.“ Gral er
lítill leikhópur þar sem mikil fjöl-
skyldustemning ríkir og passa
dætur Bergs og Evu börn hinna ef
svo ber undir en þau hjónin eiga
fjórar dætur sem eru tíu, fimm-
tán, átján og tuttugu og þriggja ára
gamlar. Sú næst elsta er á leiklist-
arbraut í FG og sú elsta starfar í
leikmunadeild Borgarleikhússins.
„Við erum svona svolítil sirkúsfjöl-
skylda,“ segir Bergur.
Grindvísk leikverk
Leikhópurinn Gral var stofnaður
fyrir sex árum og ætla aðstand-
endur hans að halda sérstaklega
upp á afmælið með því að setja upp
tvö verk eftir grindvíska höfunda
í haust í Tjarnarbíói; Eiðurinn og
eitthvað eftir Guðberg Bergsson
og barnaleikritið Horn á höfði eftir
Berg sjálfan. „Þegar ég skrifaði
Horn á höfði voru dætur mínar
sérstakir ráðgjafar. Í leikritinu er
talað leynimál sem ég fékk að láni
hjá þeim. Hluta af textanum las
ég upp fyrir þær og spurði hvort
þetta væri nógu gott og hverju væri
hægt að breyta.“ Horn á höfði hlaut
Grímuverðlaunin sem besta barna-
sýningin árið 2010 og hefur Bergur
nú dustað af henni rykið í tilefni af
sex ára afmæli Gral leikhópsins.
„Það er alltaf verið að fagna sextug-
safmælum núna eins og hjá Ladda,
Agli Ólafs og Jakobi Frímanni og
þess vegna datt okkur í hug að
fagna sex ára stórafmæli Gral með
veglegum hætti.“
Eiðurinn og eitthvað eftir Guð-
berg Bergsson var frumsýnt í vik-
unni og er það fyrsta leikrit höfund-
arins og fjallar um skáld sem er með
tvær hugmyndir að verkum í hug-
anum og þær vilja báðar fá brautar-
gengi og keppast um athygli hans.
Guðbergur Bergsson ólst upp í
Grindavík en á bernskuárum Bergs
var Guðbergur fluttur frá bænum en
kom stundum í heimsókn og gekk
þá um bæinn. „Þá sá maður mann
sem virtist einhvern veginn ósnert-
anlegur. Það lá því beint við að Gral
leikhópurinn myndi reyna sig við
þennan höfund.“
Alltaf mikið undir í starfi
leikstjórans
Á bernskuárum sínum langaði
Berg mikið að verða leikari en var
ekki viss um að það væri mögu-
legt fyrir venjulegan, lítinn strák
úr Grindavík og er hann fyrsti at-
vinnuleikarinn frá bænum. „Guð-
bergur var eina skáldið í Grinda-
vík og það var áhugavert fyrir mig
þegar ég var lítill að það væri ein-
hver frá Grindavík sem dytti slíkt
ónytjuhopp í hug. Um leið og ég
vissi að leikarar væru ekki fólk
sem sprytti fullskapað upp úr
höfði Seifs og að það væri hægt að
læra leiklist tók ég þá ákvörðun að
verða leikari. Ég horfði á Singing
in the Rain og öll áramótaskaupin
í sjónvarpinu og hafði mjög gaman
af,“ segir Bergur sem getur ekki
ímyndað sér í dag að hann hefði átt
að starfa við neitt annað en leiklist.
Á undanförnum árum hefur
Bergur leikstýrt áhugamannasýn-
ingum auk þess að starfa í Borgar-
leikhúsinu og segir hann alltaf jafn
gaman að leikstýra, sama hvort
það eru stærri eða minni sýn-
ingar. „Það er svo gaman að vera
leikstjóri og fá að koma til dæmis
í skóla og vinna með ungum leikur-
um yfir afmarkaðan tíma sem svo
endar með hvelli og töfrabrögðum
á einhverjum rosalegum hápunkti.
Svo er leikstjórinn bara farinn og
er því svolítið eins og sniðugi afinn
í samanburði við kennarana sem
eru alltaf með börnunum, allan
veturinn og ár eftir ár.“
Í starfi leikstjórans kastar Berg-
ur sér alltaf í verkefnin og reynir
að gera sitt besta en segist þó hafa
fengið minni svefn en vanalega
við uppsetningu á Mary Poppins
í fyrra. „Ég var svolítið eins og
undin tuska eftir Mary Poppins.
Það er gríðarlega viðamikil sýn-
ing með risastórum senum,“ segir
Bergur sem enn horfir alltaf sjöttu
hverju sýningu á Mary Poppins og
gefur ráðleggingar ef eitthvað má
laga. „Í starfi leikstjórans er alltaf
mikið undir, sama hver vettvang-
urinn er. Þó mestu sé lokið við
frumsýningu og ný verkefni hafi
tekið við þarf leikstjórinn alltaf að
vaka yfir sýningunum og passa
upp á að þær haldi fegurð sinni og
fagmennsku.“
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Guðbergur var
eina skáldið frá
Grindavík og það
var áhugavert fyrir
mig þegar ég var
lítill að það væri
einhver frá þeim
stað sem dytti slíkt
ónytjuhopp í hug.
Bergur Þór Ingólfsson
og félagar í leikhópnum
Gral halda upp á sex ára
afmælið með tveimur
sýningum í haust.
Ljósmynd/Hari.
Við erum
sirkúsfjölskylda
Bergur Þór Ingólfsson ólst upp í Grindavík og er listrænn stjór-
nandi leikhópsins Gral en orðið er stytting á Grindvíska atvinnu-
leikhúsið en allir í hópnum eiga það sameiginlegt að hafa einhver
tengsl við Grindavík. Tólf ára gamall kynntist Bergur eiginkonunni í
Grindavík og varð strax skotinn í henni.
Með fróðleik í fararnesti
Sveppaferð í Heiðmörk 31. ágúst kl. 10.
Valitor er stuðningsaðili
Ferðafélags Íslands.
Allar nánari upplýsingar
á hi.is
Næsta ferð:
Silke Werth, nýdoktor við Líf- og umhverfisvísindastofnun Háskóla Íslands, leiðir
sveppaferð í Heiðmörk í samvinnu við fararstjóra Ferðafélags Íslands. Sveppum verður
safnað og fræðst um þá og verkun þeirra. Hvaða sveppi má borða og hverjir eru
eitraðir? Hist verður við Öskju, náttúrufræðahús Háskóla Íslands, kl. 10 þar sem
hægt verður að sameinast í bíla. Þaðan verður ekið í lest inn í Heiðmörk. Þátttakendur
eru hvattir til að taka með sér sveppabækur og ílát fyrir sveppina. Ferðin er farin í
samvinnu við Ferðafélag barnanna. Leiðsögn verður á ensku og íslensku.
PIPA
R
\
TBW
A
• SÍA
• 132404
Háskóli Íslands og Ferðafélag Íslands
halda áfram samstarfi sínu um
fræðandi gönguferðir sem hófust á
aldarafmæli skólans 2011. Reynsla og
þekking fararstjóra Ferðafélagsins
og þekking kennara og vísindamanna
Háskóla Íslands blandast saman í
áhugaverðum gönguferðum um
höfuðborgarsvæðið og næsta nágrenni
þess. Þátttaka er ókeypis og allir eru
velkomnir.
21. september kl. 11
Gönguferð þar sem matur,
saga og menning verða
meginefnið.
22 viðtal Helgin 30. ágúst-1. september 2013