Fréttatíminn - 30.08.2013, Blaðsíða 45
L.I.M.B "CARS"
Stærðir 8-20
23.990,-
Hell Bunny "karen"
Stærðir XS-XL
12.990,-
Hell Bunny "Larissa"
Stærðir XS-XL
14.990,-
Hell Bunny "Bandana"
Stærðir XS-XL
10.990,-
2-BIZ " Delphine"
Stærðir S-XXL
15.990,-
Byoung "Nanzy"
Einnig til svartur
Stærðir 36-44
13.990,-
Audrey kjóll
Einnig til í bláu, svörtu
& Ivory
Stærðir 8-22
10.990,-
L.I.M.B "golden"
Stærðir 8-20
23.990,-
Opnunartími:
mánudaga-föstudaga 11:00-18:00
laugardaga 11:00-17:00 sunnudaga:12:00-16:00
Kjólar & Konfekt
tíska 45Helgin 30. ágúst-1. september 2013
VERTU VINUR
Á FACEBOOK
Skoðið laxdal.is/kjolar • facebook.com/bernhard laxdal
NÝTT FRÁ
Skoðið
laxdal.is/kjólar
fremstir í kjólum
M aðurinn minn og vinur hans fengu þessa
flugu í höfuðið, að
opna barnafataversl-
un,“ segir Margrét
Jóna Þórhallsdóttir,
einn eigenda versl-
unarinnar Appaman.
Nafnið kemur frá
litlum tuskuapa sem
stofnandi Appaman,
Harald Husum, átti
þegar hann var að alast
upp í Noregi og saman
ferðuðust þeir um land-
ið og lentu í mörgum
ævintýrum. Husum býr
nú í Bandaríkjunum
og segir fötin bera keim
af bandarískri götutísku
undir skandinavískum áhrifum.
„Þetta er frekar töff föt,“ segir
Margrét.
Tvenn hjón reka verslunina
sem opnaði nýverið í Bæjar-
lind í Kópavogi. Hjónin eiga þrjú
börn hvor og er eitt til viðbótar á
leiðinni. Eiginmaður Margrétar,
Sigurður Jónsson, játar því að
það hafi lengið blundað í honum
að opna fyrirtæki. Hann og vinur
hans, Guðni Rafn Eiríksson, hafi
velt fyrir sér hvað vantaði á Íslandi
og komist að þeirri niðurstöðu að
brýnast væri að opna barnafata-
verslun sem selur föt á góðu verði.
„Okkur hefur fundist barnaföt hér
vera svo dýr. Appaman er frekar
fínt merki í Bandaríkjunum og við
seljum bara á sambærilegu verði
og úti,“ segir hann.
Þeir fóru á kaupsýningu þar
sem þeir heilluðust af Appaman,
keyptu prufulínu og prófuðu á
börnunum sínum. Nú eru hjónin
síðan komin með einkaleyfi á Ís-
landi. „Við erum með fáa starfs-
menn, enga skuldsetningu og von-
umst bara til að þetta gangi. „Mér
finnst staðsetningin líka fín. Ég
þekki það sjálfur að ég nenni ekki
með börnin á ákveðna staði,“ segir
Sigurður sem finnst þægilegt að
geta bara lagt fyrir utan barnafata-
búðina, valið fötin og farið aftur
heim. „Við karlmennirnir nennum
engu veseni,“ segir hann.
Margrét Jóna hannaði búðina
sjálfa, málaði húsgögn og sá um
allt heildarútlitið en í versluninni
er að finna sérstakt leiksvæði.
Þau eiga eina stelpu og tvo stráka
og segir Margrét að hún hafi
heillast sérstaklega af strákaföt-
unum. „Það er mikið hugsað um
smáatriðin í þessum fötum. Svo
eru til mjög flott jakkaföt og stakir
jakkar. Þetta er eitthvað sem mér
fannst vanta,“ segir hún og bendir
á að úlpurnar séu bæði fallegar og
hlýjar, og henti íslenskum aðstæð-
um enda komi sannarlega vetur í
New York þar sem höfuðstöðvar
Appaman eru.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Tíska Bandarísk göTuTíska undir skandinavískuM áhrifuM
Töff
barnaföt
Appaman er ný barnafataversl-
un í Bæjarlind. Nafnið kemur
frá norskum hönnuði verslun-
arinnar sem lítill eignaðist
tuskuapa sem vin. Tveir
feður fengu þá flugu í
höfuðið að opna hér
barnafataverslun
ásamt eiginkonum
sínum því þeim fannst
vanta barnaföt á viðráðan-
legu verði.
Margrét Jóna Þórhallsdóttir ásamt Júlíu Margréti dóttur sinni í
versluninni í Bæjarlind.
Appaman er með
jakkaföt fyrir stráka.
Hlýjar úlpur fyrir veturinn.