Fréttatíminn - 30.08.2013, Blaðsíða 62
Leiðin liggur
í Borgarleikhúsið
Ásk
rifta
rkor
t
fyrir
25 á
ra o
g yn
gri
9.00
0 kr
.
Kæru leikhúsgestir.
Nýtt leikár er hafið af fullum krafti. Það er í senn metnaðarfullt, áleitið og fjörlegt.
Fjölbreytnin hefur sjaldan verið meiri: Stórfengleg klassík
með ferskri nálgun þar sem velt er upp grundvallarspurningum um lífið sem öllum kynslóðum er nauðsynlegt
að ígrunda. Íslenskri leikritun er gert hátt undir höfði, ný
erlend verk og kraftmiklar stórsýningar eiga sinn sess. Færri komust að en vildu á Mýs og menn og Mary Poppins
síðastliðinn vetur. Nú gefst nýtt tækifæri til að sjá þessar
stórfenglegu sýningar.
Okkur er það mikil ánægja að hefja metnaðarfullt fræðslu
starf sem markar tímamót. Markmiðið er að opna leikhúsið
enn frekar fyrir ungu fólki og glæða áhuga á leyndardómum
leiklistarinnar. Leikhúsið er mannbætandi, þar gefst okkur
tækifæri til að horfast í augu við okkur sjálf, upplifa sam
kenndina og jafnvel að sjá heiminn í nýju ljósi.
Þá eru það einnig tíðindi að Leikfélag Reykjavíkur hefur á ný
starfsemi í miðbænum, jafnframt því að sýna í Borgarleik
húsinu. Hús Bernhörðu Alba verður í Gamla bíói svo vinsælar
sýningar geti haldið áfram á Stóra sviðinu. Hið sögufræga
hús lifnar við á ný með magnaðri stórsýningu.
Við erum full tilhlökkunar fyrir nýtt leikár og bjóðum þér
að taka þátt í töfrunum. Best er auðvitað að slást í hóp ellefu
þúsund kortagesta og eiga þannig öruggt sæti í allan vetur.Verið hjartanlega velkomin í Borgarleikhúsið og Gamla bíó.
leikhússtjóri Borgarleikhússins
Það hefur rignt yfir okkur fyrirspurnum um diskinn með tón-
listinni úr Mary Poppins og nú verður hann loksins fáanlegur í
miðasölunni og fjölmörgum verslunum frá og með mánudegi.
Tryggðu þér eintak!
Diskurinn
á leiðinni!
• 30% afslátt af miðaverði
• Öruggt sæti á þær leik- og danssýningar sem þig langar að sjá
• Betri kjör á gjafakortum og viðbótarmiðum
• Afslátt af varningi sem seldur er í miðasölu
• Afslátt af menningarviðburðum hjá samstarfsaðilum
Með áskriftarkorti færð þú:
Áskriftarkort: Fjórar sýningar
að eigin vali á aðeins 13.900 kr.
Borgarleikhúsið | Listabraut 3 | Miðasala 568 8000 | borgarleikhus.is