Fréttatíminn - 30.08.2013, Blaðsíða 34
Fyrstu ryðfríu pottarnir frá Rösle gjörbyltu öllu
fyrir 70 árum. Í dag eru pottarnir með Multiply
„samloku“-kerfi þannig að þeir eru fljótir að hitna
og kólna og dreifa hitanum einnig jafnt um pottinn,
alveg upp í topp. Rösle pottarnir henta á allar gerðir
eldavéla, rafmagns-, gas- og spansuðuhellur .
Algjörar
samlokur
34 matur og vín Helgin 30. ágúst-1. september 2013
vín martin duran fræðir íslendinga
Martin Duran á Grillmarkaðinum
Martin Duran verður sommelier,
eða vínþjónn, á veitingastaðnum
Grillmarkaðinum um helgina.
Gestir staðarins geta notið fróð-
leiks hans fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagskvöld.
Martin Duran heimsótti Ísland
í fyrra og starfaði sem vínþjónn
á veitingastaðnum Sushisamba.
Þá var settur saman vínseðill
með vínum eingöngu frá einum
stærsta framleiðanda í heimi,
Concha y Toro frá Chile. Duran
hefur starfað fyrir marga þekkta
veitingastaði og skemmtiferðaskip
í Chile sem vínþjónn en undanfar-
ið hefur hann ferðast um heiminn
fyrir hönd Concha y Toro og kynnt
þeirra vín fyrir vínáhugafólki.
Um helgina kemur Martin
Duran til með að fræða gesti Grill-
markaðarins um vínin frá Concha
y Toro og í boði verða vín sem
henta matargerðinni á Grillmark-
aðinum.
Martin Duran verður vín-
þjónn á Grillmarkaðinum
um helgina og kynnir vín frá
Concha y Toro fyrir gestum
staðarins. Ljósmynd/Hari
matur gunnar Páll á vínbarnum færir lesendum uPPskrift að saltfiski
Ljúffengur saltfiskur
og rétta rauðvínið með
Saltfiskur með kirsu-
berjatómötum, sinnepi
og hvítlauk
Fyrir fjóra
800 g útvatnaður saltfiskur
30 g smjör
2 msk ólífuolía
pipar eftir smekk
1 box kirsuberjatómatar
1 msk sinnep
2 hvítlauksrif
1 gulur laukur, fínsaxaður
Aðferð:
1. Bakið kirsuberjatómata í ofni við 150 gráðu hita í 35
mínútur.
2. Steikið lauk og hvítlauk í olíu í 5 mínútur, bætið kirsu-
berjatómötum við, látið malla í 10 mínútur, bragðbætið
með pipar og salti eftir smekk.
3. Bræðið smjör og olíu á pönnu. Steikið saltfiskinn í 3
mínútur á hvorri hlið, fer eftir þykkt.
4. Gott er að hafa krydd grjón með.
Lj
ós
m
yn
di
r
af
m
at
/H
ar
i
Fjögur frábær rauðvín með saltfiski
Cotes du Rhone Villages 2010.
Famille Perrin
Flott vín frá Rhonar dalnum í Frakklandi.
Blanda af Shyrah og Grenache þrúgum, kröft-
ugur angan af brómberjum, leðri og skógarilmi.
Ero 2011 nýtt vín frá Sikiley
Ero er Nero d́ Avola þrúga. Kryddað, góður
keimur af kirsuberjum, jarðsveppum með löngu
eftirbragði.
La Planta 2011 vín frá Ribera
Del Duero Spáni
Tempranillo þrúga. Angan af kókos, rauðum
berjum, ferskur og stílhreinn.
Museum Real Reserva 2008 frá Cigales Spáni
Tinta Del Pais (tempranillo). Gamall vínviður sem gefur af sér
þetta fanta kröftuga vín. 2 ár í frönskum eikartunnum. Langt
eftirbragð með angan af lakkrís, tóbaksilmi og þéttum ávaxtakeimi.
Gunnar Páll
Rúnarsson er
stofnandi og einn
eigenda Vínbars-
ins. Staðnum var
nýlega breytt í
veitingastað og
nú er hægt að
fá þar hádegis-
verð, kvöldverð
og létta rétti yfir
daginn.
Gunnar Páll
Rúnarsson