Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.08.2013, Blaðsíða 9

Fréttatíminn - 30.08.2013, Blaðsíða 9
Fyrstu vindmyllur Landsvirkjunar hafa nú unnið rafmagn í sjö mánuði. Rekstur þeirra hefur gengið vonum framar og ljóst er að vindorkan hefur að geyma mikla möguleika. Við munum því halda áfram að rannsaka þennan nýja orkukost og standa vonir til að vindorka geti orðið þriðja stoðin í raforkukerfi Landsvirkjunar ásamt vatnsafli og jarðvarma. Vindmyllur vinna mesta orku á veturna en rennsli til vatnsaflsstöðva er mest á sumrin. Ef frekari rannsóknir staðfesta hagkvæmni vindorku er líklegt að fleiri vindmyllur vinni samhliða vatnsaflsstöðvum okkar allt árið um kring. Um 2000 gestir heimsóttu vindmyllurnar í sumar, enda nýstárleg sjón í íslensku landslagi. Við þökkum þeim öllum kærlega fyrir komuna. Fylgjast má með orkuvinnslu vindmyllanna í rauntíma á www.landsvirkjun.is. Vindmyllurnar standa við þjóðveg nr. 32, skammt fyrir norðan Búrfell. Aðstæður til virkjunar vindorku eru óvenju hagstæðar á Íslandi. Meðalafkastageta á heimsvísu er 28%. Afkastageta vindmyllanna á uppitíma 2013: 49% 56% 44% 39% 28% 20% 48% feb. mars apríl maí júní júlí ágúst Nóg er af rokinu! V etrarstarf grunn-skóla landsins er hafið. Þúsundir barna fara því í og úr skóla. Leiðir margra þeirra liggja yfir um- ferðargötur og við þær. Því er það mjög mikilvægt að allir aðrir vegfarendur, ekki síst þeir sem stjórna vélknúnum farartækjum, fari um með sér- stakri gát þar sem barna er að vænta, sérstaklega þar sem þau þurfa að fara yfir umferðar- götur. Af þessu tilefni vill Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, vekja sérstaka athygli á þessum málum og hefur óskað eftir þátttöku almennings. Átak félagsins hefur staðið undanfarna daga og lýkur í dag, föstudag. Þar er fólk hvatt til þess að senda FÍB myndir af gangbrautum eða „gervigang- brautum“ sem því finnst ógna öryggi vegfarenda. Það ámælisvert, að mati FÍB, hversu illa gönguleiðir yfir umferðargötur eru merktar hér á landi. „Slæmar og óljósar  Átak FÍB Vegna öryggis Barna Á leið Í skólann Slæmar og óljósar merkingar við skóla merkingar við skóla og í grennd við þá hljóta að teljast sérstaklega varhuga- verðar. Skólabörnin eiga heimtingu á því að bestu og öruggustu göngu- staðirnir yfir umferðargötur séu skil- greindir og merktir löglega og skýrt, svo ekkert fari á milli mála hjá börn- unum sjálfum, né heldur ökumönnum sem um þessar götur aka,“ segir FÍB og heldur áfram: „Í grannlöndum okkar tíðkast að merkja gangbrautir rækilega auk þess Bæði sebrabrautirnar og gangbrautamerkin eru hluti tiltekins alþjóðlegs táknmáls. sem ökumönnum er gefið það skýrt og greinilega til kynna þegar þeir nálgast gangbraut. Það er gert með yfirborðs- merkingum, umferðarmerkj- um og skiltum sem minna á það að sýna beri sérstaka varúð. Í stærsta sveitarfélagi landsins, Reykjavík hefur sú stefna verið ríkjandi um langt árabil að merkja ekki gang- brautir á lögbundinn hátt með hvítum og svörtum þverrönd- um. Hins vegar hafa einskonar gervigangbrautir verið gerðar sem skapa fullkomna óvissu bæði gangandi og akandi um það hvort þar sé gangbraut eða ekki. Þetta telur FÍB afar misráðið. Bæði sebrabrautirnar og gangbrautamerkin eru hluti tiltekins alþjóðlegs tákn- máls. Það táknmál segir bæði akandi og gangandi að til staðar sé gangbraut yfir götu. Þar beri báðum – akandi og gangandi – skylda til að sýna fyllstu aðgát.“ fréttir 9 Helgin 30. ágúst-1. september 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.