Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.08.2013, Blaðsíða 6

Fréttatíminn - 30.08.2013, Blaðsíða 6
Galieve Cool Mint mixtúra, dreifa /skammtapoki / Galieve Peppermint tuggutöflur.. Innihaldslýsing: Hver 10 ml skammtur af Galieve Cool Mint inniheldur 500 mg af natríumalgínati, 267 mg af natríumhýdrógenkarbónati og 160 mg af kalsíumkarbónati. Hver tafla Galieve Peppermint inniheldur: 250 mg af natríumalgínati, 133,5 mg af natríumhýdrógenkarbónati og 80 mg af kalsíumkarbónati. Ábendingar: Meðferð við einkennum maga- og vélindabakflæðis, svo sem nábít (sýrubakflæði), brjóstsviða og meltingartruflunum (tengdum bakflæði), t.d. eftir máltíðir eða á meðgöngu. Skammtar og lyfjagjöf: Galieve Cool Mint mixtúra: Til inntöku. Fullorðnir og börn 12 ára og eldri: 10-20 ml (eða 1-2 skammtapokar) eftir máltíðir og þegar farið er að sofa (allt að fjórum sinnum á dag). Galieve Peppermint tuggutöflur: Til inntöku, eftir að hafa verið tuggin vandlega. Fullorðnir og börn 12 ára og eldri: Tvær til fjórar töflur eftir máltíðir og þegar farið er að sofa (allt að fjórum sinnum á sólarhring). Frábendingar: Ekki má nota lyfið hjá sjúklingum með þekkt ofnæmi fyrir virku efnunum eða einhverju hjálparefnanna, eða ef grunur er um slíkt. Sérstök varnaðarorð og varúðarreglur við notkun: Galieve inniheldur natríum. Þetta þarf að hafa í huga þegar þörf er á mjög saltsnauðu fæði, t.d. í sumum tilvikum hjartabilunar og skerðingar á nýrnastarfsemi. Galieve inniheldur kalsíumkarbónat. Gæta þarf varúðar við meðferð sjúklinga með blóðkalsíumhækkun, nýrnakölkun og endurtekna nýrnasteina sem innihalda kalsíum. Verkun er hugsanlega skert hjá sjúklingum með mjög lága þéttni magasýru. Ef einkenni batna ekki eftir sjö daga, skal endurmeta klínískt ástand. Yfirleitt er ekki mælt með meðferð hjá börnum yngri en 12 ára, nema samkvæmt læknisráði. Galieve Cool Mint mixtúra/skammtapokar inniheldur metýlparahýdroxýbenzóat (E218) og própýlparahýdroxýbenzóat (E216) sem geta valdið ofnæmisviðbrögðum (hugsanlega síðbúnum). Galieve Peppermint tuggutöflur má ekki gefa sjúklingum með fenýlketónmigu, þar sem þær innihalda aspartam.. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi: Reckitt Benckiser Healthcare A/S. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. 1. V Strugala er. Al. The journal of international medical research, vol 38 (2010) A randomized, Controlled, Crossover trial to Investigae Times of onset of the perception of soothing and cooling by Over-the-Counter Heartburn Treatments. 2. B.Chevrel, MD. Journal of International Medical Research, vol 8 (1980) A comparative Cross-over Study on the Treatment of heartburn and Epigastric Pain; Liquid Gaviscone and Magnesium- Aluminum Antacid Gel. Ert þú með brjóstsviða? • Dregur úr brjóstsviða á 3 mínútum 1 • Virkar í allt að 4 tíma 2 Mixtúra Cool Mint 300 ml Mixtúra með Cool Mint bragði og lykt. Galieve Peppermint Tuggutöflur með piparmintu bragði  Hegðunarvandi doktorsrannsókn Margrétar sigMarsdóttur Minni hegðunarerfiðleikar og aukin félagsfærni Í slensk rannsókn sýnir góðar niðurstöður á meðferðarúrræði fyrir foreldra barna með hegðuna- rerfiðleika. Þetta kom fram á fundi sem haldinn var í Nor- ræna húsinu í gær, fimmtu- dag, á vegum Miðstöðvar PMT-foreldrafærni. Meðferðarúrræðið nefn- ist Parent Management Training – Oregon aðferð/ PMTO en rannsóknin er doktorsverkefni Margrétar Sigmarsdóttur, sálfræðings. Niðurstöður sýndu, að því er fram kem- ur í tilkynningu, að PMTO meðferð dró meira úr aðlögunarvanda barna á leik- og grunnskólaaldri en sú þjónusta sem þess- um hópi er almennt veitt í sveitarfélögum landsins. „Börnin í PMTO hópnum sýndu minni hegðunarerfiðleika og þunglynd- iseinkenni og aukna félagsfærni,“ segir í tilkynningu. Einn af frumkvöðlum að- ferðarinnar, bandaríski sérfræðingur- inn dr. Marion Forgatch, hélt erindi um upphaf, þróun og innleiðingu meðferð- arúrræðisins í heiminum. Úrræðið á sér langa sögu rannsókna, sem sýna að það dregur verulega úr hegðunarerfiðleikum barna og í dag er það eitt þeirra úrræða sem viðurkenndar stofnanir á alþjóðavísu mæla með sem viðeigandi meðferðarúr- ræði fyrir börn með hegð- unarerfiðleika. „PMTO meðferðarúr- ræðið er ætlað foreldrum og öðrum sem koma að uppeldi barna. Uppal - endur fá í hendur ákveðin verkfæri sem gera þeim kleift að breyta og bæta hegðun barna sinna og þannig stuðla að bættri aðlögun þeirra á heimili, í skóla og í samfélaginu al- mennt. Úrræðið er þróað af dr. Gerald Patterson og dr. Marion Forgatch og samstarfsfólki á rannsóknarstofnuninni Oregon Social Le- arning Center (OSLC) í Eugene Oregon í Bandaríkjunum en hefur verið nú verið innleitt víða um heim bæði innan Banda- ríkjanna og í Evrópu,“ segir enn fremur. Verkefnið hóf göngu sína á Íslandi árið 2000 og hefur verið staðsett á Skólaskrif- stofu Hafnarfjarðar. Frá og með haustinu mun Miðstöð PMT-foreldrafærni, sem sér um innleiðingu aðferðarinnar hér á landi, vera hluti af úrræðum Barnavernd- arstofu. Í dag er PMTO meðferð stunduð af um 40 meðferðaraðilum í fimm sveitar- félögum. Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Íslensk rannsókn sem kynnt var í gær sýnir góðar niðurstöður með- ferðarúrræðis vegna hegð- unarerfiðleika barna. Verkefnið er doktorsverkefni Margrétar Sigmarsdóttur.  nýHerji Forstjóraskipti Finnur Oddsson hefur verið ráðinn forstjóri Nýherja og tekur við starf- inu af Þórði Sverrissyni. Finnur hefur verið aðstoðarforstjóri Ný- herja frá árinu 2012 og var áður framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Hann tekur til starfa sem forstjóri 1. september. Þórður verður stjórn og nýjum forstjóra til ráðgjafar næstu mánuði, að því er fram kemur á síðu fyrirtækisins. „Sú reynsla og þekking sem Finn- ur hefur mun nýtast félaginu vel á spennandi tímum. Finnur þekkir fyrirtækið vel nú þegar, en hann hefur stýrt innlendum rekstri frá því í fyrra. Nýherji hefur góða stöðu á markaði og reksturinn innanlands hefur gengið ágætlega undanfarin ár. Við teljum því allar forsendur til þess að félagið geti dafnað vel. Ég þakka Þórði Sverris- syni fyrir hönd Nýherja störf hans í þágu félagsins á undanförnum tólf árum. Félagið hefur vaxið undir hans stjórn og haslað sér völl á nýjum sviðum,“ seg- ir Benedikt Jóhannesson, stjórnar- formaður Nýherja. „Það er mjög spennandi verkefni að taka við stjórn- artaumunum í Nýherja á þessum tímapunkti. Við búum að afar hæfu starfs- fólki, öflugum samstarfs- aðilum og ekki síst góðum viðskiptavinum til langs tíma,“ segir Finnur Odds- son. Eiginkona Finns er Sig- ríður Þorgeirsdóttir, lög- fræðingur og MBA, sem starfað hefur sem fram- kvæmdastjóri rekstrarsviðs LO- GOS. Þau eiga tvo syni. - jh Finnur Oddsson tekur við af Þórði Finnur Oddsson tekur við forstjór- astarfi Nýherja á sunnudaginn. PMTO meðferð dró meira úr aðlögunarvanda barna á leik- og grunnskólaaldri en sú þjónusta sem þessum hópi er almennt veitt. Mynd/Nordic Photos/Getty 6 fréttir Helgin 30. ágúst-1. september 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.