Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.08.2013, Qupperneq 10

Fréttatíminn - 30.08.2013, Qupperneq 10
Ö ll ríki Evrópu eru að skoða stað-göngumæðrun með einhverj-um hætti. Með því að ákveða að semja frumvarp um staðgöngumæðrun höfum við tekið forystu á Norðurlöndun- um,“ segir Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar Íslands. Hún situr í Norrænu lífsiðfræðinefndinni sem stóð fyrir ráðstefnu í vikunni um tæknifrjóvg- anir og staðgöngumæðrun frá alþjóðlegu sjónarhorni. Starfshópur skipaður af heil- brigðisráðherra vinnur að frumvarpi til laga sem heimilar staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni. Heilbrigðisráðherra hef- ur gefið út að óvíst sé hvort hægt verður að leggja frumvarpið fram á næsta þingi. Salvör segir þetta mikið hitamál enda stórar spurningar sem þurfi að taka af- stöðu til hvort sem staðgöngumæðrun sé leyfð eða bönnuð. „Ef þetta er bannað þá fer fólk bara annað. Það hefur sýnt sig. Þá þarf að taka afstöðu til þess hvort skrá á það fólk sem foreldra. Það getur verið erfitt ef löggjafinn viðurkennir ekki stað- göngumæðrun. Löggjafinn gengur út frá því að móðir barnsins sé sú sem fæðir það,“ segir Salvör. Um tíma var engin löggjöf um stað- göngumæðrun í Finnlandi, það er hún var hvorki leyfð né bönnuð. Þá voru dæmi um að fólk frá hinum Norðurlöndunum færi þangað. Helga Sól Ólafsdóttir félags- ráðgjafi var við nám og vinnu í Svíþjóð þegar ekki var búið að banna staðgöngu- mæðrun í Finnlandi og segir að yfirleitt hafi málin fengið farsælan endi. Hún rifj- ar þó upp eitt mál sem hún segir alls ekki dæmigert, en fór afar illa. Þar var um að ræða sænsk hjón sem nýttu sér þjónustu í Finnlandi til að láta systur eiginmanns- ins ganga með barn þeirra. „Hjónunum er síðan afhent barnið og faðirinn er einn skráður forsjáraðili. Í Svíþjóð tók afar langan tíma að móðirin, sem eggfruman kom frá, fengi að ættleiða barnið jafnvel þó systir mannsins hefði gefið sitt sam- þykki fyrir því. Málið var enn ófrágengið þegar barnið var komið á annað ár, vanda- mál komu upp í sambandinu og hjónin skildu. Þetta var ljótur skilnaður og mað- urinn í hefndarhug en þetta endaði með því að systkinin voru áfram skráðir for- eldrar barnsins. Þarna var staðgöngu- mæðrunin sjálf ekki vandamálið heldur sú staðreynd að kerfið var ekki í stakk búið til að takast á við stöðuna. Ef móð- irin hefði fengið að ættleiða nýfætt barnið hefði þetta bara verið hefðbundinn skiln- aður,“ segir Helga Sól. Ástríður Stefánsdóttir, læknir og sið- fræðingur, var í fyrsta vinnuhópnum hjá heilbrigðisráðuneytinu sem skrifaði álitsgerð um staðgöngumæðrun frá lög- fræðilegu, læknisfræðilegu og siðfræði- legu sjónarhorni. „Ég tel að við eigum ekki að gera þetta en í því ljósi að búið er að ákveða að vinna frumvarp þá þurf- um við að koma með bestu lausnirnar. Að mínu mati þarf staðgöngumóðirin að koma inn í heilbrigðiskerfið eins og hver önnur þunguð kona. Hún verður að hafa fullan yfirráðarétt yfir þunguninni og hún tekur allar ákvarðanir á meðgöngunni en ekki verðandi foreldrar. Foreldrahlut- verk þeirra verður þá ekki virkt fyrr en að ættleiðingarferli loknu,“ segir Ástríð- ur. Hún bendir einnig á hversu erfitt og varasamt sé ef ætlunin er að fara framhjá þeirri lagalegu skilgreiningu að móðir sé sú sem fæðir barn. „Ég tel líka að við þurfum að hafa einhvers konar val um hverjar fá að gerast staðgöngumæður, ekki bara líkamleg viðmið heldur þurfa félagslegar aðstæður þeirra að vera góð- ar, að konan hafi tekjur, sterka félagslega stöðu þannig að ekki þurfi að efast um að hún velur að gerast staðgöngumóðir af velgjörð,“ segir hún. Ástríður telur að Íslendingar séu að fara inn í erfitt tímabil sem ekki er vitað hvernig endar. „Um leið og við opnum fyr- ir þetta verður alltaf hópur sem er hafn- að að fara þessa leið. Það verður erfitt að velja inn hverjir fá að fara þessa leið. Ég reikna með að við byrjum þröngt og heim- ilum staðgöngumæðrun eingöngu gagn- kynhneigðum pörum á frjósemisaldri sem eiga við líkamleg frjósemisvandamál að eiga. Ég sé líka fyrir mér að hommar vilji nýta sér þessa þjónustu. Það væri í anda löggjafar okkar. Og einhleypar kon- ur eiga börn, því þá ekki líka einhleypir karlmenn? Síðan þarf fólk að átta sig á að þó það sé komið með staðgöngumóður þá gengur ferlið í besta falli upp í helmingi tilfella. Það verða alltaf fósturlát sem leiða til vonbrigða og sorgar. Þó það verði gleði þá verður alltaf líka sorg,“ segir hún. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is  Siðfræði ÓvíSt er hvenær frumvarp Sem heimilar StaðgÖngumæðrun verður lagt fram Réttindi staðgöngu- móður þarf að tryggja Ljóst er að á meðan stað- göngumæðrun er óheimil á Íslandi verður alltaf fólk sem leitar út fyrir land- steinana og lendir í lagaflækjum þegar það kemur aftur til lands- ins með barnið. Undirbúningur að frumvarpi að lögum sem heimila stað- göngumæðrun í velgjörðarskyni er í fullum gangi. Meðal álitaatriða sem þarf að taka afstöðu til er hvenær foreldraá- byrgð verðandi foreldra verður virk og hver tekur ákvörðunina ef eyða á fóstrinu. Þetta endaði með því að systkinin voru áfram skráðir for- eldrar barnsins. Ástríður Stefánsdóttir segir líklegt er að í fyrstu verði aðeins gagnkynhneigðum hjónum á frjósemisaldri með líkamleg frjósemisvandamál heimilt að nýta sér staðgöngumæður. Mynd NordicPhotos/Getty 10 fréttaskýring Helgin 30. ágúst-1. september 2013
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.