Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.08.2013, Síða 16

Fréttatíminn - 30.08.2013, Síða 16
Það skiptir engu máli hversu mikið maður skipu- leggur eða undirbýr sig fyrir tökur. Vedur.is kveður upp sinn dóm og ef hann hentar manni ekki verður maður bara að bíta í það. F yrir ári flutti Sigríður Halldórsdóttir, frétta- maður í Landanum, ásamt sambýlismanni sínum Jóni Ragnari Ragnarssyni og Urði Ásu, þriggja ára dóttur, til Barcelona til náms. Sigríður er nú útskrifuð með meist- aragráðu í alþjóðasamskiptum en Jón Ragnar er á loka metrunum að klára meistaraverkefni sitt í heim- speki. „Það var dásamlegt að vera á Spáni með Urði, dóttur okkar, eiginlega algjör draumur. Svo er líka gaman og örugglega gagn- legt fyrir hana í framtíðinni að hafa kunnáttu í öðru tungumáli.“ Sig- ríður segir allt hafa gengið upp hjá þeim fjölskyldunni í Barcelona og að þau hafi fundið leikskóla fyrir dótturina eftir aðeins vikudvöl og á þeim leikskóla var önnur íslensk stúlka og urðu þær miklar vinkon- ur. „Okkur fannst mjög gott að vera úti í námi með lítið barn og áttum jafnvel meiri tíma saman öll þrjú heldur en þegar við erum hérna heima að vinna. Við réðum tíma okkar sjálf og lærðum bara frekar á kvöldin þegar hún var sofnuð. Jafnvel fram á nótt ef mikið lá við,“ segir Sigríður og leggur áherslu á að fólk þurfi ekki að mikla það fyrir sér að flytja til útlanda í nám með ungt barn. Spánverjar voru margir hverjir hissa á því að svo ungt fólk eins og þau ætti barn en þau Sigríður og Jón Ragnar eru tuttugu og sjö ára gömul. „Þótt Íslendingum þyki það kannski ekkert sérstaklega ungt er viðhorfið annað hjá Spánverjum, sem ég get svo sem vel skilið. Þar er flest fólk á aldri við mig mikið upp á foreldra sína komið og langt í frá farið að velta fyrir sér barneignum. Þeim fannst við líka svolítið brjáluð að vera tvö ein í útlöndum í námi með barn, langt í burtu foreldrum okkar og öllu okkar baklandi. Þeir áttu eiginlega ekki til orð yfir þessum unglingum frá Íslandi.“ Þau eru ánægð að vera komin aftur heim til Íslands en finna þó fyrir svolitlum söknuði til lífsins á Spáni. Þrátt fyrir að vera aðeins tuttugu og sjö ára hefur Sigríður starfað á Sigríður Halldórsdóttir, einn umsjónarmanna Landans á RÚV, hefur undanfarið ár búið með fjölskyldu sinni í Barcelona á Spáni og stundað þar meistaranám í alþjóða- samskiptum. Hún er nú mætt aftur í Landann og verður annar tveggja aðal kynna þáttarins í vetur. Stefnan að Landinn verði betri en nokkru sinni fyrr RÚV í átta ár með hléum. Fyrst hóf hún störf sem skrifta á Fréttastofu Sjónvarps, varð svo þula, síðar fréttamaður á Austurlandi og var um tíma í hádegisútvarpinu. Að- spurð hvort það hafi verið draumur í æsku að starfa við fjölmiðla segir Sigríður svo ekki vera. „Áhuginn kviknaði þegar ég byrjaði að vinna sem skrifta á Fréttastofunni. Þá eignaðist ég fyrirmyndir og fór að langa til að geta meira og fá að gera meira. Það er alltaf gaman þegar það gengur eftir.“ Umsjónarmenn Landans þeysast nú um landið að sanka að sér efni fyrir veturinn og verður fyrsti þátt- urinn sendur út fyrsta sunnudag október mánaðar. „Við erum rétt að byrja núna og stefnum að því að ná smá sumri inn í þættina svo allt efnið verði ekki allt tekið upp í skammdeginu. Við fjöllum áfram um áhugavert fólk og fyrirbæri, alls staðar á landinu,“ segir Sig- ríður. Landinn hefur hlotið nokkur Edduverðlaun á undanförnum árum og vakið athygli fyrir viðtöl við áhugavert fólk um allt land. Að sögn Sigríðar eru fréttamenn Landans með alla anga úti við að hafa upp á áhugaverðum viðmæl- endum. „Við förum víða og tölum við gríðarlega marga, þannig kom- umst við á snoðir um ýmislegt. Við erum dugleg að hringja út BJARTUR SPURNING DAGSINS Hvernig finnst þér nýja bókin eftir Dan Brown, Inferno? Fanney Sizemore, teiknari Fyrsta skiptið sem ég bölva því að eiga leikhúsmiða því ég hefði viljað vera heima að lesa! Gunnar Helgason, leikari Virkilega spennandi. Guðjón Pedersen, leikstjóri Dan Brown kann að smíða fléttu. Ágústa Kristófersdóttir, framkvæmdastjóri safnaráðs Bókin fékk mig til að draga fram lista- sögubækurnar og plana ferð til Flórens. Séra Þórhallur Heimisson Bókin er spennandi, full af áhugaverðum fróðleik um Dante, Hinn guðdómlega gamanleik hans og endurreisnartímann - og höfundur glímir við erfiðar siðferðilegar spurningar sem skipta okkur öll máli. 16 viðtal Helgin 30. ágúst-1. september 2013

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.