Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.08.2013, Side 36

Fréttatíminn - 30.08.2013, Side 36
36 fjölskyldan Helgin 30. ágúst-1. september 2013 Veruleikinn getur orðið flókinn E rtu hjá pabba þínum eða mömmu um helgina?“ spurði Anna Helgu vinkonu sína sem svaraði því til að hún yrði hjá pabba sínum frá föstudegi til fimmtu-dags. Anna gat ekki leynt vonbrigðum sínum og spurði hvort hún yrði að fara. „Já þetta er vikan hans pabba,“ svaraði Helga sem hlakkaði til að hitta hann, en hún vildi líka leika við Önnu. Hún þekkti engan í nýja hverfinu hans pabba en hann hafði kynnst konu sem átti börn og vildi hún ekki flytja úr sínu hverfi. Það gekk vel hjá börnunum hennar í skólanum og svo bjó pabbi þeirra líka í sama hverfi. Ástin spyr ekki um skólahverfi barnanna en hún getur flækt veruleiki barna sem eiga foreldra á tveimur heimilum. Fyrir utan þá staðreynd að þau sjálf þurfa að að- lagast nýjum aðstæðum þá þurfa vinir þeirra að gera það líka. Það er ekki alltaf auðvelt fyrir vinina og foreldra þeirra að átta sig á hvar þau eru frá degi til dags eða við hvern á að hafa samband þegar á þarf að halda. Eiga þeir að tala við báða foreldra eða á að vera í sambandi við stjúpforeldrið – annað eða bæði? Vinátta er börnum mikilvæg. Vinir eru ekki eingöngu uppspretta skemmtun- ar, þeir eru líka ómetanlegur stuðningur þegar á móti blæs. Þó vináttusambönd grunnskólabarna séu sterk eru þau ekki alltaf þau áreiðanlegustu. Til að vina- tengslin haldi þarf sífellt að endurnýja þau. Meiri hætta er á að besti vinurinn snúi sér eitthvað annað ef aðeins er hægt að leika eftir skóla aðra hvora viku, með tilheyrandi sorg og vanlíðan. Að vera útundan í vinahópnum er vond til- finning – en hún er líka algeng í stjúpfjölskyldum í fyrstu. Það er því mikilvægt að foreldrar styðji börn sín og auðveldi þeim að hitta reglulega vini sína óháð því hvort vinirnir eru í pabbahverfi eða mömmuhverfi. Aðeins hluti barna býr í göngufæri við báða foreldra sína en í rannsókn á ís- lenskum ungmennum frá 2008 kom í ljós að aðeins 20% barna bjuggu í göngu- færi við báða foreldra sína, 45% í 10-30 mínútna akstursfjarlægð og 35% í mikilli fjarlægð. Fjarlægðir kalla á að báðir foreldrar séu tilbúnir stundum til að skutla börnum sínum á milli hverfa og að þeir kenni þeim á strætó þegar þau hafa aldur til. Séu heimilin opin fyrir vinum barnanna og þeim stundum boðið með í heimsókn og ferðir, auðveldar það þeim að halda vináttunni gangandi og aðlögun í nýjum aðstæðum. Það þarf líka að tryggja að börn komist áfram í tómstundir og í íþróttir óháð hvar þau eru hverju sinni. Rannsóknir benda til að meiri líkur séu á því að börn hætti íþróttastarfi hafi vinir þeirra hætt að mæta svo hér hafa allir foreldrar og börn, óháð fjölskyldugerð, hagsmuna að gæta. Við þurfum að taka höndum saman. Það eru ekki bara skólar, íþróttafélög eða for- eldrar sem hafa plön – börn hafa þau líka. Spurningin er hvort við áttum okkur alltaf á því? Fjarlægðir kalla á að báðir foreldrar séu tilbúnir stundum til að skutla börnum sínum á milli hverfa og að þeir kenni þeim á strætó þegar þau hafa aldur til. Börn hafa plön! Valgerður Halldórs- dóttir félagsráðgjafi og kennari hEimur barna  umhirða barnatanna Tannþráður nauðsynlegur tannheilsu barna Þegar börn eru þriggja til fjögurra ára göm- ul er tímabært að hefja notkun á tannþræði því til að viðhalda góðri tannheilsu er dagleg notkun á hans nauðsynleg. Í munnholinu eru bakteríur og ákveðnar tegundir þeirra líma sig við yfirborð tannanna og mynda þar skán. Þá skán verður að hreinsa burt með reglulegu millibili og er það gert með því að bursta tennurnar með tannkremi og hreinsa þær með tannþræði. Hver tönn hefur fimm hliðar og getur tannburstinn aðeins hreins- að þrjár þeirra og því þarf að nota tannþráð á hinar tvær. Tennur barna er nauðsynlegt að bursta tvisvar sinnum á dag í tvær mínútur í senn. Góð regla er að bursta tennurnar eftir morg- unverð og aftur áður en farið er að sofa. Mikilvægt er fyrir foreldra að hafa í huga að börn þurfa aðstoð við tannhirðu upp að tíu ára aldri og sum þurfa aðstoð lengur með tannþráðinn. Með því að mæta reglulega í tanneftirlit má stöðva vöxt á tannskemmd- um. Á milli tveggja og þriggja ára aldurs er tímabært að fara með börn í þeirra fyrstu heimsókn til tannlæknis. Upplýsingar af vef embættis landlæknis. Við þriggja til fjögurra ára aldur barna á að hefja notkun á tannþræði. Ljósmynd/Nordic Photos/Getty Images. Það er mikilvægt að foreldrar styðji börn sín og auðveldi þeim að hitta reglu- lega vini sína óháð því hvort vinirnir eru í pabbahverfi eða mömmuhverfi. Persónuleg aðstoðarmanneskja óskast Ég heiti Sunna Valdís og er 7 ára gömul. Ég þarf aðstoðarmanneskju með mér allan sólarhringinn, persónulega aðstoðarmanneskju sem vinnur við að aðstoða mig og fjölskyldu mína við flestar athafnir daglegs lífs. Ég er skemmtileg, glaðlynd og ákveðin stelpa og hef gaman af lífinu. Ég hef gaman af útiveru, tónlist og ýmiskonar föndri eins og flestar 7 ára gamlar stúlkur. Okkur vantar starfsfólk í vaktavinnu (dag, kvöld- og næturvaktir). Nauð- synlegt er að starfsfólkið tali góða íslensku, sé stundvíst, sveigjanlegt, já- kvætt, barngott og í góðu líkamlegu formi því ég get lamast og fengið krampa án fyrirvara. Aðstoðarfólk þarf að geta hafið störf sem fyrst. Fyrirspurnir um starfið sendist á pabba minn á netfangið siggijo@gmail.com og rennur umsóknarfrestur út 15. september 2013. Eftirlitsmyndavél fyrir sumarbústaði og heimili · Tekur venjulegt GSM SIM kort · Hægt að panta mynd eða hlusta svæði. · SMS og MMS viðvörun í síma og netf. · Lætur vita ef rafmagn fer af og hiti breytist. · Hægt er að tengja allt að 15 auka skynjara. · Vöktun á heitum potti, raka, þrýstingi o.. S. 699-6869 · rafeindir@internet.is · www.rafeindir.is Sykurlaus og náttúrulegur staðgengill flórsykurs! Hefur ekki áhrif á blóðsykur og insúlín líkamans

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.