Fréttatíminn - 30.08.2013, Page 38
38 ferðalög Helgin 30. ágúst-1. september 2013
HaustHeimsókn Borgin við sundið
Kaupmannahöfn frá A til Ö
Svona getur íslenska stafrófið nýst íslenskum ferðamönnum í Kaupmannahöfn.
a lmenningssamgöngur í gömlu höfuðborginni eru góðar og ekki síst til og
frá flugvellinum. Það er því alger
óþarfi að eyða peningum í leigubíl.
Metró kemst á korteri frá Kastrup
til Kongens Nytorv og farið kostar
um 700 krónur. Leigubíllinn getur
hæglega verið hálftíma sömu leið
og mælirinn fer örugglega upp í
rúmar 5000 íslenskar.
B akkelsið sem danskir bak-arar framleiða og sprauta glassúri yfir er rómað um
víða veröld. Enda eru vínarbrauð
kölluð Danish í enskumælandi lönd-
um. Heimsfrægðin bíður hins vegar
rabbabarahornsins og stjórasnúðsins
(Direktør snegl) sem fást í bakaríum
Lagkagehuset út um allan bæ.
d anska krónan virðist ekki ætla að lækka niður fyrir 20 íslenskar og því er um
að gera að nýta sér allt það sem
kostar lítið eða ekkert í Kaup-
mannahöfn. Mörg söfn rukka
ekki inn einn dag í viku og margir
veitingamenn stilla verðinu í hóf á
kostnað úrvalsins.
e lmegade er lítil gata sem er eiginlega miðpunktur Norðurbrúar hverfisins.
Hér iðar allt af lífi daginn út og
inn enda gott úrval af kaffihúsum,
sérverslunum og börum. Akkerið
í Elmegade er Laundromat Café
hans Friðriks Weisshappel.
É ljagangur er ekki svo oft á kortum danskra veður-fræðinga en þegar þannig
viðrar er forvitnilegt að fylgjast
með vaktaskiptum lífvarða Mar-
grétar Þórhildar. Hermennirnir
eru í virðulegum vetrarfötum og
með risastórar bjarnaskinnshúfur
sem verða hvítar um leið og það
byrjar að snjóa.
F rederiksberg er sjálfstætt sveitarfélag í miðri Kaup-mannahöfn. Þar eru íhalds-
menn með hreinan meirihluta
þó þeir rétt nái 10 prósent fylgi á
landsvísu. Ein glæsilegasta gata
höfuðborgarsvæðisins er Freder-
iksberg allé sem liggur upp að hin-
um fallega Frederiksberg garði.
g amlaströndin eða Gammel Strand er huggulegt og sólríkt torg. Þar er ljóm-
andi gott að fá sér fiskifrikadellur
með heimalöguðu remúlaði í
hádeginu á Café Diamanten. Fram-
kvæmdir við metróstöð trufla þó
stemninguna á svæðinu um þessar
mundir.
H jólreiðamenn eru í for-gangi í umferðinni í Köben og nú er verið að
leggja þriggja akgreina hjólastíga
á víðförnum slóðum. Það er viss-
ara að muna eftir því að gefa merki
þegar á að beygja eða stoppa því
annars er hætt við að þú fáir að
heyra það frá hinu hjólafólkinu.
i slands brygge kallast eitt af hverfum miðborgarinnar. Fyrir Íslendinga er huggulegt
að ganga eftir Isafjordsgade og
Reykjaviksgade. Hafnarbaðið við
Islands brygge götuna er mjög
vinsælt á góðviðrisdögum.
Í sneysla Kaupmannahafnarbúa hefur sennilega aukist tölu-vert síðustu ár því ísbúðir sem
búa til ítalskan kúluís njóta mikilla
vinsælda. Siciliansk Is á Vesturbro
og Christianshavn þykir standa
einna fremst á þessu sviði.
J azzinn hefur lengi verið vinsæll í Danmörku og þar hafa heimsþekktir jazzleik-
arar búið í lengri eða skemmri
tíma. Nokkrir jazzklúbbar eru
starfræktir í borginni og þeirra
vinsælastur er sennilega Mont-
martre við Store Regnegade.
Jazz cup á Gothergade er líka
skyldustopp fyrir þá sem vilja
kaupa plötur. Hin árlega jazzhátíð
er haldin í júlí og hún fer ekki
framhjá nokkrum manni.
k aupmannahafnarflug-völlur eða Kastrup, eins og margir kalla hann, hentar
vel til tengiflugs fyrir íslenska
flugfarþega. Þaðan er flogið til fjöl-
margra landa og flughöfnin sjálf er
vel skipulögð og þægileg. Flug-
miðar til Köben eru líka oftar en
ekki með þeim ódýrustu sem fást
hér á landi.
L itla hafmeyjan varð hundrað ára í síðustu viku og hún hefur laðað til sín ferða-
menn nær allan þann tíma. Margir
þeirra verða víst fyrir vonbrigðum
með hversu lítil hún er.
m atarmenning Dana er grunnurinn að þeirri íslensku. Danska
hakkebuffið hefur þó ekki skilað
sér nógu vel hingað til lands og því
nauðsynlegt að koma við á Toldbod
Bodega og panta sér „Store dreng“
í næstu ferð. En Stefán Íslandi var
einn af fastagestum staðarins og
spilaði billjard í bakherberginu
ásamt kollegum sínum í Óperunni.
n ýhöfn er sennilega einn vinsælasti viðkomustað-ur ferðamanna í Kaup-
mannahöfn. Veitingastaðirnir við
„Den glade side“ njóta góðs af
því og prísarnir þar eru nokkru
hærri en víða annars staðar í
borginni.
o rdrupgaard er listasafn rétt við Bakken í útjaðri höfuðborgarsvæðisins.
Viðbygging safnsins var teiknuð af
Zaha Hadid, einum þekktasta nú-
lifandi arkitekt heims og þar er oft
áhugaverðar sýningar. Þó Louisi-
ana sé sér á báti þá er líka þess
virði að heimsækja Ordrupgaard
og huggulegt að ganga í skóginum
að húsinu.
ó læti hafa sett svip sinn á borgina með reglulega millibili. Þegar Ungdóms-
húsið á Norðurbrú var rýmt fyrir 6
árum ríkti eiginlega stríðsástand á
götum þessarar friðsælu borgar í
nokkra daga.
P arken er þjóðarleikvangur Dana og þar eru íslenskir knattspyrnumenn reglu-
lega sólaðir upp úr skónum.
r áðhústorginu í Kaup-mannahöfn hefur lengi verið haldið í gíslingu
af panflautuleikurum. Þeir eru
hins vegar farnir annað því fram-
kvæmdir við gerð metróstöðvar
yfirgnæfa músíkina. Það hefur því
ekki verið jafn notalegt að borða
pylsu á torginu í langan tíma því
vinnuvélahljóðin venjast betur en
flautið.
s murbrauðsstaðirnir í mið-bænum eru skyldustopp á ferðalagi um Kaupmanna-
höfn. Réttirnir eru klassískir
og uppskriftin víðast sú sama.
Hráefnið er hins vegar misgott en
Schønnemann og Slotskælderen
hos Gitte Kik eru alltaf pen-
inganna virði. Sorgenfri er líka
klassísk ur staður og þar er opið
fram á kvöld.
t ívolí tekur T-ið þó vissu-lega geri Thorvaldsens-safnið líka tilkall til þess.
Thorvaldsen var hálfur Íslend-
ingur eða eins og segir í enskum
bæklingi safnsins, „his father
was from island". Hvort höfundur
hafi viljandi viljað villa um fyrir
erlendum gestum safnsins skal
ósagt látið en þetta er alla vega
ekki góð enska.
u mferðin í Kaupmanna-höfn er sjaldnast þung, alla vega miðað við marg-
ar aðrar borgir. Þeir sem setjast
undir stýri í borginni ættu þó að
passa sig í hægri beygjunum því
þá er mikil hætta á árekstri við
reiðhjól.
Ú tlendingar með lögheim-ili í Kaupmannahöfn eru nærri 175 þúsund talsins.
Þar af eru 3698 íslenskir ríkisborg-
arar.
v ötnin eða Søerne sem skilja Brúarhverfin frá miðborginni eru eitt
vinsælasta útivistarsvæði Kaup-
mannahafnarbúa. Hér skokkar
fólk allan sólarhringinn, barna-
vagnar halda stígnum sléttum
og stundum leggur vatnið og þá
dregur fólk fram skauta og göngu-
skíði.
Nýtt og uppfært átaksnámskeið fyrir þær
sem vilja taka heilsuna og útlitið föstum tökum.
Allar upplýsingar á hreyfing.is
6-vikna námskeið fyrir þær sem vilja losna við aukakílóin á
öruggan og heilbrigðan máta og komast í sitt besta form.
Nýtt og enn betra. Endurnýjað fræðsluefni.
Sérhannað æfingakerfi sem miðar að því að ögra líkamanum,
komast út úr stöðnun, byggja upp grunnbrennslu líkamans
og losna varanlega við aukakílóin
Aðhald, hvatning, fróðleikur og hollar og léttar uppskriftir.
ÁSKORUN
Sykurlaus og náttúrulegur staðgengill sykurs!
Hefur ekki áhrif á blóðsykur og insúlín líkamans
Jazz hljómar út um alla Kaupmannahöfn í júlí.
Thorvaldsensafnið er tileinkað Bertel Thorvaldsen sem var hálfíslenskur þó starfs-
menn safnsins haldi því heldur óskýrt á lofti.