Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.08.2013, Síða 44

Fréttatíminn - 30.08.2013, Síða 44
Helgin 30. ágúst-1. september 201344 prjónað Laugavegi 59, 2. hæð | 101 Reykjavík | Sími 551 8258 storkurinn@storkurinn.is | www.storkurinn.is Storkurinn - sælkeraverslun hannyrðakonunnar Námskeið í prjóni, hekli og bútasaumi  Handavinna Mæðgurnar Hafa prjónað áratuguM saMan s tundum er sagt að maður sjái ekki skóginn fyrir trján-um og þannig var það með vettlingaprjón okkar mömmu lengi vel. Mér fannst bara ekkert merki- legt að prjóna vettlinga og finna upp sín eigin munstur. Ég hélt að það gerðu allir,“ segir Valgerður Jónsdóttir, textílkennari til margra ára, sem var að gefa út prjónabók með móður sinni, Emelíu Krist- björnsdóttur. Bókin heitir Vett- lingar frá Vorsabæ og er þar að finna yfir 50 vettlingauppskriftir eftir þær mæðgur. Emelía er hús- móðir í sveit, hefur prjónað í 70 ár og prjónar enn fyrir Handprjóna- samband Íslands. „Mamma hefur lengi átt kassa fullan af vettlingum af öllum stærðum og gerðum þar sem afkomendur sóttu sér eitt og eitt par eftir lit og smekk. Það var fyrir um þremur árum sem sonardætur mínar voru að velja sér vettlinga sem ég fór að skoða samsetningu þeirra og fékk vitrun. Þarna var komið efni í bók,“ segir Valgerður. Hráefnið sem þær nota í vett- lingana er lopi, léttlopi, kambgarn og smávegis af ullargarni af miðl- ungsgrófleika. Okkur finnst ullin ís- lenska best allra í vettlinga, hlýjust og núna eru líka komnir ótrúlega fallegir litir í ull- inni. Stór hluti vettlinganna er með hefðbundnum munsturbekkjum og margir með dýramyndum þar sem börnin fá auð- vitað sitt. Þá eru vettlingar með hestamyndum, bæði venjulegir belgvettlingar og eins aðrir sem við köllum reiðvettlinga og eru með sérstöku hólfi fyrir litlafingur sem kemur þá yfir tauminn við taumhald,“ segir Valgerður. Markmiðið með bókinni er að kveikja prjónaáhuga og hvetja fólk til að prjóna og hanna sína eigin vettlinga. Í bókinni er stærð- arviðmiðunar- tafla sem þær bjuggu sjálfar til. „Mér hefur lengi fundist vanta svona. Þegar ég hef verið að kenna og börnin eiga að hanna eigin húfu langar sum kannski að prjóna á litla bróður sinn og þá vantar öll viðmið. Með stærðartöflunni er sýnt hvernig hægt er að breyta uppskriftum þannig að þær passi öðrum aldri.“ Frumlegir vettlingar Mæðgurnar Valgerður Jónsdóttir og Emelía Kristbjörnsdóttir gáfu nýverið út bók með upp- skriftum að yfir 50 vettlingum sem þær sjálfar hönnuðu. Markmið bókarinnar er að kveikja prjónaáhuga og hvetja fólk til að hanna sína eigin vettlinga. 7-8 ára Tvöfaldur plötulopi Prjónar nr. 5-5½ stroff: Fitjið upp 26 lykkjur með svörtu. Deilið L á 4 prjóna og prjónið 1 L sl og 1 L br 16 umferðir. Belgur: Prjónið slétt með rauðu, í fyrstu umf er aukið í 2 L. Prjónið 8 umf. Þá er band prjónað í fyrir þumli (fyrstu 5 L á hægri lófa en síðustu 5 L á vinstri). Prjónið þar til belgurinn mælist 9,5 cm. Skiptið yfir í svart og prjónið band úrtöku (leiðbeiningar í bókinni). Þumall: Rekið þumalbandið úr og takið upp lykkjurnar. Takið einnig 2-3 L upp í hvoru viki og deilið L á 3 prjóna. Prjónið L saman í vikum í fyrstu umf svo alls verði 12 L í þumlinum. Prjónið 10 umf. Prjónið svo saman fyrstu 2 L á prjóni þar til eft ir eru 4-6 L. frágangur: Klippið frá, dragið bandið í gegn og gangið frá endum. Saumið varplegg (kontórsting) eftir miðju handarbaki. Festið sex svartar tölur á hvorn vettling. Úr bókinni Vettlingar frá Vorsabæ Gulla-Mæja Mæðgurnar Valgerður Jónsdóttir og Emelía Kristbjörnsdóttir í útgáfuteiti bókarinnar. Ljósmynd/Sigþrúður Gunnarsdóttir Sumar uppskriftirnar í bókinni eru einnig sýndar með fleiri en einni garntegund. „Við viljum hvetja fólk til að hugsa út fyrir rammann og sýna að það er ekki alltaf bara ein leið til að prjóna eftir uppskrift,“ segir hún. Þær deila hér með lesendum Frétta- tímans uppskrift af maríuhænu- vettlingum sem kallast Gulla- Mæja. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Laugavegi 178 ( Bolholtsmegin ) l S. 555 1516 l Kíktu á síðuna okkar “Kryddaðu” fataskápinn með fatnaði frá Ný verslun l Næg Bílastæði l Engir stöðumælar Opnunartími: Virka daga kl. 11-18 Laugard. kl. 11-16 Nýjar vörur Mussa á 8.990 kr. Blúndubolur á 2.900 kr. 8 litir Hugsaðu vel um fæturna Í meira en hálfa öld hafa miljónir manna um allan heim notað BIRKENSTOCK sér til heilsubótar. Hvað um þig? Sími: 551 2070 Opið má. -fö. 10 - 18, lokað á laugardögum í sumar. Góð þjónusta fagleg ráðgjöf. Gerð Arisona Stærðir: 35 - 48 Verð: 12.885.- Laugavegi 178 · Sími 551-3366 · www.misty.is OPIÐ: Mán. - fös. 10 - 18, Lokað á laugardögum AÐHALDS- KJÓLAR Fást í S,M,L,XL á kr. 7.450,- Flott föt fyrir flottar konur Stærðir 38-58 Verslunin Belladonna Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.