Fréttatíminn - 01.02.2013, Page 19
HLUTABRÉFASJÓÐURINN** HEFUR TEKIÐ ÞÁTT Í
ÚTBOÐUM NÝRRA FÉLAGA Í KAUPHÖLL ÍSLANDS
Síðasta ár var frábært og fyrirhugaðar skráningar fyrirtækja á markað gefa vonandi góð
fyrirheit um áframhaldandi uppbyggingu íslenska hlutabréfamarkaðarins.
Nú getur þú tekið þátt í þeirri uppbyggingu í gegnum Hlutabréfasjóðinn.
Nánari upplýsingar á www.vib.is Pantaðu viðtal við ráðgjafa í 440 4900
* Skv. sjodir.is 31. desember 2012
**Sjóðurinn er fjárfestingarsjóður skv. lögum nr. 128/2011 um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði. Ávöxtun í fortíð er ekki ávísun á ávöxtun í framtíð.
Hafa ber í huga að eign í fjárfestingarsjóði getur bæði hækkað eða lækkað, allt eftir þróun á markaðsverði þeirra. Íslandssjóðir hf. er rekstrarfélag sjóðsins. Útboðslýsingu
og nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu Íslandssjóða, www.islandssjodir.is. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér útboðslýsingu sjóðsins og þá sérstaklega
umfjöllun um áhættuþætti.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
5
2
3
0
Íslandsbanki | Kirkjusandi | 155 Reykjavík | Sími 440 4900 | vib@vib.is
facebook.com/VIB.stofan | @vibstofan | www.vib.is
FRÁBÆR ÁVÖXTUN
24,1% ársávöxtun á síðasta ári*
Árleg ávöxtun sjóðsins
1 ár 24,1%
2 ár 18,6%
3 ár 19,5%
4 ár 13,9%
5 ár -28,7%
Skv. sjodir.is 31. desember 2012
Meðal félaga sem sjóðurinn hefur
fjárfest í eru:
Marel, Eimskip, Hagar,
Össur, Icelandair, Reginn
og Vodafone.
Er þitt fyrirtæki að
ávaxta lausafé á
hagstæðan hátt?
Kynntu þér ávöxtunarleiðir MP banka
fyrir fyrirtæki hjá viðskipta stjórum í
Ármúla 13a eða í síma 540 3200
og á www.mp.is.
Flugfargjöld,
áfengi og tóbak
verðbólguhvati
Flugfargjöld til útlanda fóru
á „enn eitt flippið“ í janúar,
auk þess sem áfengi og tóbak
hækkaði um 6,9% í mán-
uðinum. Þetta og fleira varð til
þess, að sögn greiningardeild-
ar Íslandsbanka, að verðbólga
milli desember og janúar
varð meiri en sérfræðingar
reiknuðu með. Opinberar
spár lágu á bilinu frá 0,1%
lækkun til 0,1% hækkun
en raunin varð, samkvæmt
tölum Hagstofunnar, 0,27%
hækkun milli mánaða. Tólf
mánaða taktur verðbólgunnar
er þar með óbreyttur, 4,2%.
Flugfargjöldin hækkuðu um
6,5% í mánuðinum, „sem er
algerlega úr takti við það sem
þessi liður hefur gert í janúar
síðustu ár,“ segir Greiningin
en bætir því við að hækkunina
megi væntanlega skýra að
hluta með óvæntri lækkun
sem varð í desember, þvert á
þróun síðustu ára. - jh
60 milljarða
króna árlegur
ávinningur
Eigi Íslendingar að njóta
sambærilegra lífskjara og
nágrannaþjóðirnar þarf ár-
legur hagvöxtur á næstu árum
að vera yfir 3,5% og verðbólga
lág. Það er til mikils að vinna
því ef það tekst að skapa
15.000 ný störf á næstu fimm
árum nemur árlegur ávinn-
ingur samfélagsins um 60
milljörðum króna. Þetta kom
fram á opnum morgunverðar-
fundi Samtaka atvinnulífs-
ins sem haldinn var í gær,
fimmtudag, í Hörpu. Þar stigu
margir stjórnendur á stokk en
fjallað var um mikilvægi þess
að skapa fleiri og betri störf á
Íslandi á næstu árum.
Bent var á leiðir til að bæta
lífskjör á Ísland umtals-
vert en markmiðið var ekki
talið fráleitt því starfandi
fólki fækkaði um 10.000 milli
áranna 2008 og 2012. Í lok
desember 2012 voru 9.500
manns á atvinnuleysisskrá. - jh
Félag kvenna
í atvinnulífinu
afhenti árlegar
viðurkenningar
sínar á miðviku-
daginn í viðurvist
þeirra sem standa
í framlínu íslensks
viðskipta- og
atvinnulífs. FKA
viðurkenninguna
2013 hlaut Mar-
grét Guðmunds-
dóttir, forstjóri
Icepharma,
stjórnarformaður
N1, formaður
Félags atvinnu-
rekenda og forseti
ESTA (European
Surgical Trade
Association);
evrópskra sam-
taka dreifingar-
fyrirtækja á sviði
hjúkrunarvara.
Hvatningarvið-
urkenningu FKA
hlutu þær Signý
Kolbeinsdóttir og
Helga Árna-
dóttir – eigendur
Tulipop. Vörur
þeirra seldar í
hönnunarversl-
unum á Íslandi
og víða um lönd.
Tulipop er litríkur
ævintýraheimur
þar sem svepp-
systkinin Búi og
Gló búa ásamt
fjölda annarra
skemmtilegra
karaktera. Þakk-
arviðurkenningu
FKA hlaut Guðrún
Lárusdóttir í
Stálskipum en
Guðrún hefur
rekið Stálskip í
hartnær hálfa öld.
Gæfusporið 2012
hlutu SVÞ; Sam-
tök verslunar og
þjónustu og veitti
formaður Margrét
Kristmannsdóttir,
formaður SVÞ,
viðurkenningunni
viðtöku.
Viðurkenningar FKA afhentar
Margrét Guðmundsdóttir tekur á móti verðlaunum. Mynd Hari
viðskipti 19 Helgin 1.-3. febrúar 2013