Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.10.2012, Qupperneq 2

Fréttatíminn - 19.10.2012, Qupperneq 2
Inga Elsa og Gísli Egill skrifa um skapandi pizzugerð á matarbloggi gottimatinn.is VIÐ ELSKUM PIZZUR! H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA Yfir hundrað milljónir í iPhone 5 2 karlmenn leituðu til Stígamóta vegna kláms 32 karlmenn leituðu til Stígamóta í fyrra og 278 konur. Þetta kemur fram í ársskýrslu samtakanna. Tveir af þessum karlmönnum leituðu til samtakanna vegna kláms og 21 kona kom í viðtal út af klámi. Þetta er mikil aukning því árið á undan kom einn karlmaður vegna kláms og 11 konur. Samkvæmt samtök- unum leitar þetta fólk sér hjálpar vegna klámnotkunar maka eða að teknar hafi verið myndir af því í kynlífsathöfnum „með eða án þeirra vilja og þeim síðan dreift“ eða hótað að efninu verði dreift. Þriðja hver kona beinbrotnar Þriðja hver kona og fimmti hver karl eftir fimmtugt mun beinbrotna af völdum bein- þynningar, samkvæmt upplýsingum frá Bein- vernd, félags áhugafólks um beinþynningu. Félagið heldur upp á alþjóðlega beinþynn- ingardaginn á laugardaginn en markmiðið er að vekja athygli almennings og stjórnvalda á beinþynningu sem heilsufarsvandamáli. Koma má í veg fyrir beinþynningu með því að stunda líkamsþjálfun og neyta kalks og D- vítamíns. Halldóra Björnsdóttir, framkvæmda- stjóri Beinverndar, segir að vitundarvakning hafi orðið um beinþynningu, áhættuþætti hennar og forvarnir. „Almenningur veit nú að sjúkdómurinn er til, að hægt er að greina hann og meðhöndla og draga þannig úr áhættunni á beinbrotum,“ segir hún. -sda  Velferðarmál Skilnaðarunglingum farnaSt beSt að búa til SkiptiS hjá báðum foreldrum Best að búa til jafns hjá báðum Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@ frettatiminn.is Unglingum líður best ef þeir búa til skiptis hjá báðum for- eldrum eftir skilnað, sam- kvæmt niðurstöðum úr nýrri rannsókn Benedikts Jóhanns- sonar, sérfræðings í klínískri sálfræði. „Þeir sem efast um skipta búsetu barna eftir skilnað hafa einnig haldið því fram að ef börnin eigi ekki eitt aðal heimili geti það stuðlað að grynnri tengslum við foreldr- ana og bitnað á samfellu í eftir- liti með börnunum,“ segir Bene- dikt. Rannsókn hans bendir þvert á móti til þess að ungling- ar sem búa til skiptis hjá for- eldrum sínum eigi auðveldara með að fá hlýju frá foreldrum sínum en aðrir unglingar eftir skilnað og eyði meiri tíma með foreldrum sínum. „Ennfremur hefur því verið haldið fram að skipt búseta geti stuðlað að rótleysi hjá börn- unum,“ segir Benedikt. „Sú könnun sem hér er kynnt og aðrar rannsóknir benda þvert á móti til þess að skipt búseta stuðli að betri líðan og aðlögun eftir skilnað. Þær benda einnig á að ef vel tekst til styrki ríku- legar samvistir við báða for- eldra ekki aðeins tengslin við foreldrana, heldur einnig við fjölskyldur beggja foreldra; þar með talið við afa, ömmur og frændsystkin. Ríkulegar sam- vistir við báða foreldra geta þannig styrkt ættartengsl og félagslegar rætur barnanna. Þannig öðlast börnin félagsauð sem getur gefið þeim öryggi og tilfinningu fyrir að tilheyra hópi,“ segir Benedikt. Ríkulegar samvistir við báða foreldra styrkja ættartengsl og félagslegur rætur barnanna.  bókaútgáfa metSöluhöfundar Skila inn árSreikningum Kóngurinn græddi tífalt meira en drottningin Arnaldur Indriðason varð að lúta í lægra haldi fyrir Yrsu Sigurðardóttur á bóksölulistum í fyrra. Yrsa kemst þó ekki með tærnar þar sem Arnaldur hefur hælana þegar kemur að innkomu. g læpasagnakóngurinn Arnaldur Indriðason hagnaðist tífalt meira á síðasta ári en helsti keppinautur hans, glæpa-sagnadrottningin Yrsa Sigurðardóttir. Þetta kemur fram í ársreikningum félaga þeirra. Félag Arnaldar, Gilhagi, skilaði nýverið inn ársreikningi fyrir árið 2011. Hagnaður félagsins var 116 milljónir króna eftir skatta. Yrsa Sigurðardóttir ehf., fé- lag Yrsu Sigurðardóttir, skilaði sömuleiðis inn ársreikningi á dögunum. Hagnaður félagsins eftir skatta var rétt tæpar tíu milljónir króna. Samkvæmt þessu hagnaðist Arnaldur meira en tífalt meira en Yrsa. Í fyrra gaf Arnaldur út bókina Einvígið en Yrsa gaf út Brakið. Talsvert var fjallað um það í fjölmiðlum þegar Yrsa stal toppsætinu á vikulegum sölulistum fyrir jólin, enda hafði Arnaldur að mestu einokað metsölulista mörg ár þar á undan. Yrsa skaust svo framúr Arnaldi á lokasprettinum og átti mest seldu bók ársins í fyrsta sinn. Eins og við mátti búast var því slegið upp að drottningin hefði velt kónginum úr sessi á glæpasagnamarkaðinum. Sam- kvæmt ársreikningum rithöfundanna virðist þó enn langt í að Yrsa skáki Arnaldi í inn- komu. Báðir höfundarnir senda frá sér nýjar bækur fyrir jólin. Bók Yrsu kallast Kuldi og þar kemur lögmaðurinn Þóra ekki við sögu. Lög- reglumaðurinn Erlendur snýr hins vegar aftur í nýrri bók Arnaldar. Bókin heitir Reykjavíkurnætur og fjallar um fyrsta mál Erlendar. Þetta er sextánda bók Arnaldar. Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Arnaldur Indriðason hagnaðist um 116 milljónir króna í fyrra. Yrsa Sigurðardóttir hagnaðist um tæpar tíu milljónir króna sam- kvæmt ársreikningum félaga þeirra. Hagnaður Gilhaga 2003-2011 2011 116 milljónir 2010 107 milljónir 2009 139 milljónir 2008 79 milljónir 2007 36 milljónir 2006 74 milljónir 2005 28 milljónir 2004 17 milljónir 2003 7 milljónir Sextánda bók Arnaldar heitir Reykjavíkur- nætur og fjallar um fyrsta mál lög- reglumannsins Erlendar. „Ég myndi halda að það sé búið að selja á milli 500 til þúsund eintök á Ís- landi,“ segir Liv Bergþórs- dóttir, framkvæmdastjóri Nova, þegar hún er spurð um sölu á iPhone 5. Liv vill ekki upplýsa um hve mörg eintök hafi selst af símanum hjá Nova. Um mánuður er liðinn síðan iPhone 5 kom á markaðinn en víða er- lendis beið fólk í röð eftir að geta keypt símann. Söluaðilar hér heima, sem Fréttatíminn ræddi við, kannast ekki við slíkan áhuga en eru flestir ánægðir með söluna. Þeir kvarta þó yfir að vegna mikillar eftirspurnar erlendis hafi reynst erfitt að fá nógu mörg eintök hingað til lands. Síminn kostar um 180 þúsund krónur hér á landi. Sigurður Helgason, eigandi iStore.is, kveðst hafa selt um 300 eintök af iPhone 5. „Þetta hefur gengið vel. Það er bara erfitt að útvega síma,“ segir hann. Hjá Epli.is fengust þær upplýsingar að um 200 eintök hafi selst fyrsta mánuðinn. Miðað við varlega útreikninga má fullyrða að Íslendingar hafi á einum mánuði eitt yfir hundrað milljónum króna í iPhone 5. -hdm Íslendingar hafa eytt yfir hundrað milljónum króna í iPhone 5 á einum mánuði. 2 fréttir Helgin 19.-21. október 2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.