Fréttatíminn - 19.10.2012, Blaðsíða 47
með beinunum
Þú stendur og fellur
Vel þjálfaðir vöðvar þurfa sterk bein til að hanga á.
Beinin eru lifandi vefur sem er alltaf í endurnýjun og þurfa bæði næringu og
áreynslu til að haldast heilbrigð, ekki síst hjá ungmennum sem eru enn að vaxa.
Hreyfing, kalk og D-vítamín skila þér sterkari beinum
og hraustari líkama.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
54
2
53
Það eru til
ótal leiðir
til að nota
rauðrófur.
Hún er
einkar góð
í salöt.
RauðRófuR eRu til maRgRa hluta nytsamlegaR
heilsa 47 Helgin 19.-21. október 2012
Rauðrófusalat fyrir kynhvötina
R auðrófur eru stútfullar af nær-ingarefnum og því alveg ótrú-lega hollar fyrir alla. Það eru til
ótal leiðir til að nota rauðrófur en hana
má jafnt sjóða, súrsa, baka, steikja eða
einfaldlega nota hana hráa, jafnvel sem
varalit. Rauðrófur geymast vel í kæli,
eða allt að mánuð. Það sem færri vita
er að rauðrófurnar voru til forna taldar
auka kynhvöt og ef að satt reynist, þá
ætti þessi uppskrift að rauðrófusalati
að virka sem vítamínsprauta á kynhvöt
þeirra sem þess neyta. Ef ekki er það
holl og góð næring sem veitir kraft inn
í veturinn.
Það sem þú þarft:
Í dressinguna:
50 g af lífrænu jógúrti
1 tsk af fersku dilli
2 tsk af sítrónusafa
Í salatið
2 egg
soðin, steikt eða grilluð
rauðrófa, skorin
gul paprika, skorin
baunaspírur
handfylli af blönduðu
salati
valhnetukjarnar
gróft salt
Blandið vel saman öllum
innihaldsefnum dress-
ingarinnar.
Sjóðið eggin, mælt er
með því að hafa rauðuna
örlítið lina, en allt eftir
smekk.
Setjið salatið á disk.
Blandið saman rauðrófu,
paprikunni, baunaspírum
og setjið ofan á salatdisk-
inn saltið eftir smekk.
Skerið eggið í bita og
setjið ofan á rauðróf-
umixið ásamt valhnetu-
kjörnunum.
Skellið dressingunni yfir
salatið allt og berið fram
strax.
Borið fram með ristaðri
sneið af rúgbrauði með
avókadó, svörtum pipar
og toppið með örlitlum
sítrónusafa.
Jurtir fyrir
ónæmiskerfið
Haustið er tími þar sem kvef og aðrar
farandpestir gera vart við sig og eru
oft mörgum til mikils ama. Hægt er að
reyna að stemma í stigu við veikindin
með ýmsum náttúrulegum ráðum.
Þau henta vel þeim sem ekki hafa trú
á hefðbundnum aðferðum læknavís-
indanna. Jurtir sem styrkja ónæmis-
kerfið eru til dæmis, sólblómahattur,
hvítlaukur, kamilla, rauðsmári og
þrenningarfjóla. Þrenningarfjóluna
og Rauðsmárann er tilvalið að tína á
haustin og þurrka ýmist í te eða krydd
fyrir veturinn. Rauðsmárinn hefur
þá einnig verið notaður við ýmsum
húðarkvillum, líkt og exem og sóríasis.
Hvað er Paleo?
Paleo mataræði hefur verið áberandi
í heilsuumræðunni að undanförnu
en það gengur einnig undir nafn-
inu steinaldarmataræði. Talsfólk
mataræðisins styðst við rannsóknir
um að erfðamynstur manna hafi lítið
breyst í gegnum aldirnar og segja því
að þeir sjúkdómar sem að herjað hafi
á mannfólk nútímans megi rekja beint
til mataræðis. Allar aðferðir þar sem
unnið er með matvæli í nútímatækni
teljast ónáttúrulegar og því óæskilegar.
Þar til landbúnaður kom til sögunnar
borðaði maðurinn því ekki mjólk,
baunir, kornvörur og kartöflur eða
sykurvörur eða aðrar unnar matvörur.
Það þykir hinsvegar í lagi að neyta alls
magurs kjöts, ljóss eða rauðs, sjávar-
fangs, ávaxta, grænmetis og berja.
Rauðsmára má nota við ýmsum
kvillum.