Fréttatíminn - 19.10.2012, Blaðsíða 12
„ Fantaflott sýning sem bæði kitlar hláturtaugarnar og
spyr áleitinna spurninga um samtímann og mannlegt eðli.“
A.Þ. – Fréttablaðið
„Snjöll sviðsetning og afburðaleikur.“
S.G.V. – Morgunblaðið
„ Hrikalega skemmtilegt kvöld […] Þetta er flott verk.“
J.K. – Djöflaeyjan
bbbb
Morgunblaðið
bbbb
Fréttablaðið
bbbb
Fréttatíminn
Þjóðleikhúsið er á Facebook, fylgstu með – facebook.com/leikhusid
Miðasala
551 1200 midasala@leikhusid.is leikhusid.is
V
ið gætum verið að
sturta í okkur áfengi
en erum hérna í
staðinn,“ sagði ungur
maður við mig á
nammibarnum í Hagkaupum að-
faranótt laugardagsins en viður-
kenndi að þetta væri kannski ekki
endilega það hollasta sem hann
gæti látið ofan í sig.
Ég var stödd á nammibarnum
í Hagkaupum til þess að fylgjast
með því sem að ég hafði heyrt að
líktist dýragarði. Á miðnætti býður
verslunin 50 prósenta afslátt af
sælgæti. Mörg ungmenni bíða ekki
boðanna og eru mætt stundvíslega.
Athygli mína vakti að allir virtust
kaupa helmingi meira magn af sæl-
gæti, í stað þess að borga helmingi
minna fyrir eðlilegan skammt.
Líkamskerfið í uppnám
Íslendingar borða of mikið af við-
bættum sykri en það má meðal
annars tengja við mikla neyslu
á sælgæti og gosi. Vitað er að
ofneysla sykurs hefur slæm áhrif
á heilsufar og má tengja marga
áunna lífsstílsjúkdóma beint við
ofneysluna. Nammibarir verslana
bjóða upp á helmings afslátt af sæl-
gæti um helgar. Samkvæmt tölum
Landlæknisembættisins er heildar-
framboð sælgætis um 6 þúsund
tonn á ári hér á landi. Neysla sæl-
gætis nemur því um 400 grömmum
á mann í hverri viku. Samkvæmt
neysluviðmiðum frá MATÍS eru 62
grömm að hámarki hóflegt magn
af laugardagsnammi fyrir full-
orðna. Þetta þýðir að hver Íslend-
ingur neytir um 6 vikna skammts
af sælgæti í hverri viku.
„Þetta er ekki góð þróun, þetta
er orðið allt of mikið. Það er aldrei
í lagi að keyra svona úr hófi fram,
jafnvel þó að það sé bara einu
sinni í viku,“ segir Steinar B. Aðal-
björnsson næringarfræðingur.
Hann segir laugardaga að verða að
dögum syndarinnar þar sem fólk
er sífellt að teygja mörkin lengra.
„Með slíkri ofneyslu sýnum við
líkama okkar fullkomna vanvirð-
ingu en þetta væri auðvitað skárra
ef fólk myndi hreyfa sig í takt við
neysluna. En ég held að svo sé
ekki. Þetta er beinlínis hættulegt,“
heldur Steinar áfram og bendir á
að þessi þróun geti eingöngu leitt
til aukinnar þyngdar. Ofneysla sé
raunveruleg vá og til séu margir
sjúkdómar sem tengja megi beint
við þessa neyslu.
„Það gefur augaleið að ef við
borðum of mikið, fitnum við. Það
er hægt að vera heilbrigður í yfir-
þyngd stundi maður tiltölulega
heilbrigðan lífsstíl, en yfirþyngd
getur svo farið úr böndunum og
leitt til offitu. Þá fer líkamskerfið í
verulegt ójafnvægi. Til að mynda
getur hjartað gefið sig vegna blóð-
þrýstingsvandamála og talsverðar
líkur eru á sykursýki af tegund 2
og öðrum lífsstílstengdum sjúk-
dómum. Dæmi eru um að aflima
þurfi fólk vegna dreps í útlimum
ef sykursýki er látin óáreitt og
ofneysla sykurs er einmitt einn
áhættuþátta. Það er skelfilegt,“
segir Steinar en hann tók þátt í
mótum neysluviðmiða sem komin
eru upp á veggspjöldum víða í
verslunum. Hann segist vona að
slíkt nýtist sem staðlað tæki til
þess að breyta hegðun landans
þegar kemur að neyslu sælgætis.
„Því má samt ekki gleyma að í raun
er algjör óþarfi að neyta sælgætis,
en ætli fólk að gera slíkt þá nýtast
leiðbeiningarnar varðandi hóflega
neyslu.”
Eins og félagsmiðstöð
Eftir því sem líða tók á nóttina fór
útliti nammibarsins að hraka. Sæl-
gætispokar lágu á víð og dreif og
molarnir þöktu gólfið. Ég fylgdist
með drukkinni konu tína beint upp
í sig, ennþá streymdu ungmennin
að.
„Við búum í Hveragerði,“ sögðu
mér tvær vinkonur, María og
Írena, „við reynum að nýta okkur
það þegar við erum í bænum að
koma hingað og kaupa á afslætti,“
sögðu þær og líkaði stemningin:
„Þetta er svolítið eins og félagsmið-
stöð og ég var einmitt að enda við
að hitta gamlan vin minn,“ sagði
Írena og María bætti við: „Það er
ekkert óalgengt að rekast á ein-
hvern sem maður þekkir hér.“ Þær
voru sammála um að magnið sem
þær röðuðu í pokana væri svolítið
mikið; „en það er svo ódýrt,“ sögðu
þær hlæjandi.
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
Viltu nammi væna?
Það er opið allan sólarhringinn í Hagkaupum í Skeifunni og þegar klukkan slær 00.00 á
föstudagskvöldum, eða réttara sagt aðfaranótt laugardags, hefst útsala á sælgæti, 50% af-
sláttur. María Lilja Þrastardóttir brá sér í vettvangsferð aðfaranótt síðasta laugardags og kynnt-
ist sælgætisóðum ungmennum.
af sæLgæti á ÍsLandi á ári
19 kÍLó á Hvert MannSbarn | 400 gröMM á Hvern ÍSLending á viku
2.000 hitaEiningar Í vikuSkaMMti HverS ÍSLendingS af naMMi en tiL að brenna ÞvÍ Þarf að HLaupa HeiLt MaraÞon.
6 milljónir kílóa
„Ég var sendur út í leiðangur, ég á nýfætt barn heima og
konuna mína langaði í nammi, það er ekkert verra að geta nýtt
afsláttinn. Ég er annars ekki hissa að hver Íslendingur borði 19
kíló.“ tómas flugumferðarstjóri.
„Þetta er bara svona hefð. kaupum alltaf sama skammtinn af
nammi á laugardögum.“ rakel og erla.
„Stundum kemur hingað fullt fólk og það er gaman að fylgjast með því, við borðum
sjálfir eiginlega ekki nammi.“ guðjón og Siggi.
12 úttekt Helgin 19.-21. október 2012