Fréttatíminn - 19.10.2012, Blaðsíða 60
60 bækur Helgin 19.-21. október 2012
Eiríkur Örn SEndir frá Sér doðrant
Á eftir Gæsku
kemur Illska
E iríkur Örn kemur víða við í Illsku sem hefst í Litháen árið 1941 þaðan sem hann leiðir lesendur til Reykja-
víkur samtímans. Illska fjallar um helför-
ina, ástina, Ísland, Litháen og persónur
sem tengjast þessu öllu á ýmsa vegu. Árið
2009 sendi Eiríkur frá sér samtímasöguna
Gæsku en var úthugsað hjá höfundinum
að á eftir Gæsku kæmi Illska?
„Það eru nú ekki beinlínis neinar teng-
ingar þarna á milli. Þetta er að hálfu leyti
tilviljun og að hálfu leyti bara hentugt. Að
halda bara áfram þar sem frá var horfið,
eða þannig, þótt að þetta sé allt önnur
saga.“
Þegar Eiríkur er spurður út í umfangs-
mikið sögusviðið hlær hann. „Ef maður
ætlar að fylla svona stóra bók þá þarf mað-
ur að fara víða.“ Hann segist þó síður en
svo hafa lagt upp með að fylla 540 blað-
síður en bendir á að sagan hefði getað orð-
ið helmingi lengri. En allt byrjaði þetta á
hugmynd um tengingar Litáhen, Íslands
og helfararinnar.
„Eftir að hafa verið búinn að garfa í bók-
inni í nokkra mánuði settist ég niður og
bjó til skema og fór svo að skoða hversu
langur hver hluti ætti að vera og sam-
kvæmt fyrsta skema var allt útlit fyrir að
bókin yrði svona um það bil þúsund blað-
síður. Þá fékk ég svolítið taugaveiklunar-
kast og sá að þetta væri nú ekki hægt og
svo styttist hún nú töluvert. Þótt hún hafi
ef til vill á sama tíma orðið flóknari.“
Illska hefur fengið prýðilegar viðtök-
ur og mikið lof gagnrýnenda sem segja
söguna ríghalda þrátt fyrir lengdina. „Ég
hafði og hef rosalega miklar áhyggjur af
því að fólk gefist bara upp einhvers staðar.
Það er bara þannig með langar bækur og
ég geri það sjálfur ef ég missi þráðinn ein-
hvers staðar. Ég hafði áhyggjur af þessu
við skriftirnar, að fólk myndi missa athygl-
ina, og það hélt mér kannski við efnið að
reyna að halda þessu áhugaverðu. Það er
hægt að treysta á að fólk fari svona hundr-
að til tvö hundruð blaðsíðna bók á þolin-
mæðinni en þú ferð ekki þannig í gegnum
svona bók.“
Eiríkur segir að þótt sjónarhornið sé
á mikilli hreyfingu í bókinni þá auðveldi
bygging hennar lesturinn. „Í raun skiptist
hún í eitthvað um 1500 litla kafla sem eru
ekki nema svona hálf til ein og hálf blað-
síða sem er kannski svona um það bil at-
hyglisbrests skammturinn þannig að það
eru margar vörður á leiðinni og maður
getur alltaf verið að stoppa og tekið hana
upp aftur án þess að það verði rof í heildar
frásögninni.“
Eiríkur fékk grunnhugmyndina að bók-
inni þegar hann sótti bókmenntahátíð í
Litháen sumarið 2008. „Ég skammaðist
mín þegar ég kom til Litháen og talaði við
bókmenntafólk þar um Halldór Laxness,
Einar Má og fleiri íslenska höfunda og
ég vissi varla hvað höfuðborgin hét. Ég
var þarna einhvern veginn eins og alger
rati og upp úr þeirri skömm fór maður að
kynna sér og bara spá í hvað það væri geð-
veikt að búa hérna með öllu þessu fólki
og vita ekkert um það. Það búa eitthvað
á bilinu 5000 til 6000 Litháar á Íslandi.“
Áhuginn á Litháen var kviknaður og síð-
an vatt sagan upp á sig. „Þessi forvitni sem
er einhvern veginn grunnurinn að því að
vilja skrifa ýtti mér af stað. Maður rekst á
einhvern þráð sem lætur mann ekki í friði
og svo byrjar maður bara að draga þangað
til eitthvað kemur upp úr djúpinu.“
Elly – ævisaga Ellyjar
Vilhjálms skýst beint í
fjórða sæti metsölulista
Eymundsson síðustu viku,
10.-16. október.
Elly tEkur flugið
Þrjár bækur eftir sænska glæpasagnahöfunda hafa nýlega borist í bókaversl-
anir á íslensku. Fyrst ber að telja Eldvitnið eftir hjónin Alexöndru og Alexander
Ahndoril sem skrifa saman undir nafninu Lars Kepler. Þetta er þriðja bókin um
lögregluforingjann Joona Linna og að þessu sinni rannsakar hann voveiflega
atburði á stúlknaheimili. Meðfram rannsókninni kynnast lesendur betur fortíð
Joona Linna og gefa þau kynni góð fyrirheit fyrir næstu bók. JPV gefur út.
Haustfórn er þriðja bók Mons Kallentoft um lögreglufulltrúann Malin Fors.
Malin rannsakar morð á lögfræðingi á sveitasetri hans og fljótlega grunar
hana að fyrri eigendur setursins tengist morðinu. Áður hafa Undirheimar
gefið út Vetrarblóð og Sumardauða og nutu þær mikilla vinsælda hér á landi.
Síðust í þessari upptalningu er ný bók Henning Mankells, Minning um
óhreinan engil. Wallander lögregluforingi er hér víðs fjarri enda um að
ræða skáldsögu sem gerist í Afríku í upphafi tuttugustu aldarinnar. Í bókinni segir af Hönnu
Lundmark sem verður fyrir duttlunga örlaganna eigandi stærsta vændishússins stórum bæ
í Austur-Afríku. Mankell hefur dvalið langdvölum í Afríkuríkjum og nýtir hér þekkingu sína í
sögulegri skáldsögu um samskipti hvítra og svartra. Mál og menning gefur út.
Ný sending frá sænskum krimmakóngum
Rof kallast ný spennusaga eftir Ragnar Jónasson
sem komin er út hjá Veröld. Þetta er fjórða bók Ragn-
ars sem vakið hefur nokkra athygli fyrir skrif sín.
Í Rofi segir af tvennum ungum hjónum sem árið
1955 flytja í afskekktan eyðifjörð. Dvölin fær snöggan
endi þegar önnur kvennanna deyr með dularfullum
hætti. Hálfri öld síðar finnst gömul ljósmynd sem
bendir til þess að hjónin hafi ekki verið ein í firðinum.
Ari Þór Arason, lögreglumaður á Siglufirði, reynir
að fá botn í þetta sérkennilega mál með liðsinni
fréttakonunnar Ísrúnar. Á sama tíma í Reykjavík
vindur óvænt sakamál upp á sig þegar ung fjölskylda
er ofsótt af ókunnum manni.
Ragnar er fæddur árið 1976 og er menntaður
lögfræðingur. Hann hafði þýtt fjölmargar bækur
Agöthu Christie á íslensku áður en hann hóf sjálfur að skrifa spennusögur.
Fjórða bók Ragnars komin út
Þessi forvitni
sem er einhvern
veginn grunn-
urinn að því að
vilja skrifa ýtti
mér af stað.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Rithöfundurinn
Eiríkur Örn
Norðdahl hefur
sent frá sér ansi
hreint volduga
skáldsögu sem
nefnist Illska.
Bókin er löng
enda fer höf-
undurinn yfir
vítt svið bæði
í tíma og rúmi
og honum tókst
að ná henni úr
þúsund blað-
síðum niður í
rúmar fimm
hundruð. Hann
telur þó að
lesendur eigi að
komast átaka-
laust í gegnum
hana þar sem
margar vörður
eru á leiðinni
sem nútímafólk
með athyglis-
brest getur
stutt sig við.
Illska hefur farið vel
af stað og Eiríkur
Örn ætlar að fagna
útgáfunni með hófi í
Vatnasafninu í Stykkis-
hólmi á laugardaginn,
klukkan 16. Ljósmynd/
Jóhann Páll
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
Ævint ri
úr silfurbÆ
fjöru sa a eftir
brynhildi órarinsdótt
ur
Sóla og Ylur upplif
a eitthvað nýtt
og skemmtilegt á h
verjum einasta deg
i
og hér segir frá hæ
ttulegasta ævintýr
inu
sem þau hafa nokk
urn tíma ratað í.