Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.10.2012, Blaðsíða 48

Fréttatíminn - 19.10.2012, Blaðsíða 48
A ð drekka fjóra til fimm bolla af tei á dag getur hjálpað til við að halda bæði huganum og líkamanum heilbrigðum, eftir því sem fram kemur í rannsókn sem birt var í auka-útgáfu tímritsins Journal of Nutrition í ágúst 2008. Könnun sem gerð var bendir til að fjórir til fimm bollar af tei á dag styrki athyglisgáfuna og einbeitni. „Þetta varpar skýru ljósi á störf margra nýrra brautryðjenda sem verið hafa að rannsaka grænt te og gagnsemi þess fyrir heilsu almenn- ings,“ segir dr. Jeffrey Blumberg, prófessor við Kaliforníuháskóla í Los Angeles. Og hann bætir við: „Gríðarlegar framfarir hafa orðið til að skilja betur, hvernig te getur dregið úr hættu á hjartasjúkdóm- um, vissum tegundum krabbameins og fullorðinna-sykursýki (sykursýki II), auk þess að stuðla að heilbrigðri starfsemi taugakerfisins.“ Efnið theanín í tei bætir athygli og einbeitni. Niðurtöður í nýlegri rann- sókn sýna að í te er amínósýra sem nefnd er theanín og finnst í töluverðu magni í öllum tejurtum, jafnt grænu sem svörtu te. Theanín hefur áhrif á athyglisgáfuna, gerir einstaklinga betur vakandi og einbeittari. Nýlegar rannsóknir dr. Silviu Mandel við Eve Topf Center fyrir taugahrörnunarsjúkdóma í Ísrael, sýna að virk flavonefni í tei geta haft fjölþætta virkni á frumur til að halda taugakerfinu heilbrigðu. Fjölmargar kannanir hafa stað- fest að fæða auðug af ávöxtum og grænmeti styður líkamann í að vinna gegn hrörnun taugakerfisins með oxunarvarnarefnum. Það teng- ist því hversu auðug þessi matvæli eru af flavon-efnum en te er ríkt af þessum efnum. Rannsóknir víðs vegar um heiminn mæla með að drekka te, sérstaklega þær tegundir sem í er mikið af flavon-efnum, sem nefnd eru catechin, sem hjálpa til við og styðja heilastarfsemina, þegar við eldumst. Grein þessi er unnin upp úr grein Ævars Jóhannssonar á heilsuhringurinn.is 48 heilsa Helgin 19.-21. október 2012  MAtAræði Sveiflur í blóðSykri Sykurstuðullinn skiptir máli  HeilSA undrAeiginleikAr teS Te er töfralyf – Lifið heil www.lyfja.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 6 14 68 1 0/ 12 Gildir til 31. október Lægra verð í Lyfju 20% afsláttur Fíflablöð og birki Vatnslosandi. Dregur úr bjúg og stirðleika í liðum. Te getur hjálpað við að halda huga og líkama heilbrigðum, varið fólk fyrir elliglöpum og bætt athygli og einbeitni. Te er töfradrykkur sem bætir andlega og líkamlega heilsu. Til að losna við sveiflur í blóðsykri er ráðið að breyta yfir í mataræði með lágan sykurstuðul. Með því erum við að koma á jafnvægi á losun glúkósa og insúlíns. En hver er ávinningur- inn? Meðal þess má telja upp: • Aukin orka. Fæði með lágum sykurstuðli heldur blóðsykrinum jöfnum og þar með stöðugu orku- flæði. Ef neytt er fæðu með háum sykurstuðli, rýkur blóðsykurinn upp og fellur svo hratt. Þá verðum við svöng, orkulaus og líkaminn kallar á meiri skjótfengna orku. • Stöðug orka er góð fyrir heilann. Um 40% af glúkósanum sem við neytum fer í að örva heilann. Minni og athygli verða betri. • Góð áhrif á hjarta og æðakerfi. In- súlínið sér um að breyta umfram- magni af glúkósa í fitu sem meðal annars safnast fyrir í æðum. • Fæði með lágum sykurstuðli inni- heldur meira af trefjum. Trefjar ýta undir þyngdartap og minnka hætta á vandamálum í ristli og meltingarfærum. Sykurstuðullinn er mælistika á hversu hratt fæðan breytist í glúk- ósa. Sykurstuðull matvæla er mæld- ur á rannsóknarstofu með ákveðn- um tilraunum. Matvælin eru svo miðuð við franskbrauð sem hlotið hefur sykurstuðulinn 100. Fæða með háan sykurstuðul breytist hratt í glúkósa en fæða með lágan sykur- stuðul breytist mjög hægt í glúkósa. Matvæli með sykurstuðul allt að 70 flokkast með lágan sykurstuðul. Matvæli með sykurstuðul milli 70-90 flokkast með meðalháan sykurstuð- ul. Matvæli með sykurstuðul yfir 90 flokkast með háan sykurstuðul. Dæmi um fæðu með lágan sykur- stuðul undir 70: Heilhveiti (heilt korn), eplasafi, jarðarber, appelsín- ur, epli, brauð úr byggi með heilum kornum, dökkt súkkulaði, kjúklinga- baunir, ávaxtabrauð. Dæmi um fæðu með meðalháan sykurstuðul 70-90: Hafrakex, ban- ani, hafragrautur, brún hrísgrjón, gulrætur, vínarbrauð. Dæmi um fæðu með háan sykurstuðul, yfir 90. Ciabatta, rúsínur, kúskús, sykur, hirsi, rófur, beyglur, vöfflur, korn- flögur, kartöflustappa. Prótínafurðir eins og kjöt, fiskur og egg innihalda engin kolvetni. Einnig inniheldur fita engin kolvetni. Þessar fæðutegundir eru með lágan sykurstuðul. Heilsuhringurinn.is Jarðarber eru dæmi um fæðu- tegund með lágan sykur- stuðul.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.