Fréttatíminn - 19.10.2012, Blaðsíða 19
viðhorf 19 Helgin 19.-21. október 2012
KAUPTU FJÓRAR
& FÁÐU SEX FERNUR
NÝTT! NÚ FÆST HLEÐSLA LÍKA
MEÐ SÚKKULAÐIBRAGÐI.
HOLL OG UPPBYGGILEG NÆRING EFTIR GÓÐA ÆFINGU.
HENTAR VEL FÓLKI MEÐ MJÓLKURÓÞOL.
F orystumenn Sjálfstæðis -f lokksins voru lengstum fremstir í flokki þeirra sem
vildu endurskoða stjórnarskrána
frá grunni. Af ýmsum ástæðum –
sumum skiljanlegum, öðrum síður
– hef ur
orðið þar
breyting
á. Núver-
andi for-
ystumenn
flokksins
segja ann-
aðhvort
óþarft að
endur-
skoða
stjórnar-
skrána í
þá átt sem
tillögur
stjórnlag-
aráðs stefna, eða að minnsta kosti
alveg ótímabært.
Það þykir mér miður. Þar með
segja sjálfstæðismenn sig frá því
að taka þátt í einhverjum mestu
umbótum sem gera má á íslensku
stjórnkerfi frá lýðveldisstofnun
1944. Tillögur stjórnlagaráðs eru
áreiðanlega ekki fullkomnar, en
eins og sá ágæti þingmaður Pétur
H. Blöndal lagði áherslu á í Silfri
Egils á sunnudaginn var, þá eru
þær þó „miklu betri“ en núverandi
stjórnarskrá. Og þó Pétur hefði efa-
semdir um hitt og þetta, þá fannst
mér þau atriði þó ekki lúta að mjög
stórvægilegum atriðum.
Það einkennir raunar þá gagn-
rýni sem tillögur stjórnlagaráðs
hafa orðið fyrir að þar eru tínd til
margvísleg smekksatriði um hitt
og þetta, bæði stór og smá, en mér
vitanlega hefur ekki verið bent á
neina alvarlega byggingargalla
í frumvarpinu. Og – það sem er
kannski enn mikilvægara – ekki
hefur verið bent á neitt sem væri
hugmyndafræðileg „eign“ einnar
stjórnmálastefnu fremur en ann-
arrar.
Ákvæðið um þjóðareign auðlinda
er til dæmis nánast samhljóða því
sem margir forystumenn Sjálfstæð-
isflokksins hafa gegnum tíðina talið
rétt og sjálfsagt að setja í stjórnar-
skrá. Það er sem sagt ekki nein
„vinstrimennska“ í sjálfu sér, og
felur hreint ekki í sér neinar háska-
legar öfgar. Þvert á móti. Það felur í
sér aukna sanngirni og réttlæti, og
samfélag þar sem ríkir sanngirni
úthýsir sjálfkrafa öfgum.
Önnur góð mál sem tekið er á
í frumvarpi stjórnlagaráðs eru
m.a. aukin upplýsingaskylda stjór-
nvalda, vernd fjölmiðla, skýrari
staða forseta Íslands, bætt vinnu-
brögð Alþingis, markvissari ábyrgð
stjórnvalda, betri tilhögun ráðninga
í æðstu stöður, aukin vernd barna,
o.s.frv. Allt eru þetta gild mál sem
allir ættu að geta stutt, burtséð frá
stjórnmálaskoðunum.
Nú er innan við sólarhringur þar
til kjörstaðir opna. Haldið áfram
að kynna ykkur málið eftir megni,
en mætið síðan á kjörstað og takið
endilega þátt í mestu lýðræðisum-
bótum á lýðveldistímanum. Það eru
ekki einhverjir skuggalegir vinstri-
pésar sem standa fyrir þessu, held-
ur vel meinandi fólk alls staðar að af
landinu, af öllu tagi, úr öllum flokk-
um (líka Sjálfstæðisflokknum) og
öllum stéttum. Og byggt er á hug-
myndum sem hafa verið á kreiki
árum saman, og komu fram bæði
á Þjóðfundi og í stjórnlaganefnd.
Sendum Alþingi, sem síðan
tekur við málinu, skýr skilaboð –
að þessar tillögur ættu að verða
grundvöllur að nýrri stjórnarskrá.
Þótt endanlegur frágangur á til-
lögunum bíði afgreiðslu Alþingis,
samkvæmt lögum, og Alþingi hafi
því svigrúm til að laga byggingar-
Endurskoðun stjórnarskrárinnar
Hei sjálfstæðismenn!
hnökra ef einhverjir finnast þá úr
þessu, þá munu þessar hugmyndir
bæta samfélagið. Ég lofa!
Og innleiðing þeirra mun ekki
hafa í för með sér neina hættulega
kollsteypu í íslensku samfélagi.
Bara ótvírætt vera til bóta. Sjálfur
er ég varkár maður og í rauninni
býsna íhaldssamur. Ég mundi
ekki etja út í einhverja ævintýra-
mennsku því samfélagi þar sem
börnin mín eiga að lifa sínu lífi.
Fram til sigurs!
Illugi Jökulsson
Illugi Jökulsson
rithöfundur