Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.10.2012, Blaðsíða 31

Fréttatíminn - 19.10.2012, Blaðsíða 31
Hákon sagði að hann teldi að flestir Íslend- ingar litu á sig sem geðsjúkan mann sem myrti einstæða þriggja barna móður. stöðugt ofbeldisfyllri í garð barnsmóður sinnar. Deila þeirra um forræði og umgengni yfir lítilli dóttur þeirra stigmagnað- ist síðan þar til Hákon gekk af göflunum og myrti Sri með því að berja hana í hnakkann með kúbeini þann 4. júlí 2004. Ragnhildur Sverrisdóttir skrifaði sögu Sri, Velkomin til Íslands, fyrir nokkrum árum. Í bók Ragnhildar segir að Hákon hafi í fyrstu virst vera sannur séntílmaður og að ástin hafi blómstrað hjá parinu. Gleðin stóð hins vegar ekki lengi og þegar Sri varð ólétt byrjaði Há- kon að sýna á sér skuggalegar hliðar. Þegar bókin kom út hafði Ragnhildur þetta að segja um samband Hákonar og Sri í sam- tali við DV: „Þetta var dæmigert ofbeldissamband sem hún var í með Hákoni. Og hún brást við eins og svo margar konur í slíku sambandi. Hún virðist hafa reynt eins lengi og hún gat í von um að það batnaði. Alltaf verið að vonast til að þau gætu orðið ham- ingjusöm fjölskylda. Hún, börnin hennar tvö og svo litla stelpan, Irma, sem þau eignuðust síðar saman.“ Grunur féll fljótt á Hákon og hann var hnepptur í gæsluvarð- hald. Þar var hann þögull sem gröfin og gaf ekkert upp um af- drif Sri þannig að leitin að henni hélt áfram. Í viðtali við DV í janúar árið 2005 sagði Hákon að hann teldi að flestir Íslendingar litu á sig sem geðsjúkan mann sem myrti einstæða þriggja barna móður. „Ég get bara sagt ykkur að svona gerist ekkert bara allt í einu, ég var búinn að láta alla vita að var að missa vitið.“ Aðstandendur Sævar Guðmundsson er einn leikstjóra þáttanna. Hann kom einnig að gerð eldri þáttanna og kann því réttu handtökin. „Elsta sakamálið er frá árinu 2000 en það nýjasta frá 2010. Þetta eru auðvitað flest harmþrungin og erfið mál en sögurnar að baki þeim eru áhugaverðar,“ segir Sævar. „Fólk kannast sjálfsagt við málin og hefur lesið eitthvað um þau í bútum í fjölmiðlum án þess kannski að vita nokkurn tíma alla söguna. Þegar þetta er komið svona í samhengi þá verður þetta skýrara.“ Þættirnir byggja að miklu leyti á sviðsettum og leiknum atriðum en einnig er rætt við fjölda fólks sem kom að málunum á einhvern hátt. „Við ræðum við alls konar fólk. Lögfræðinga, aðstand- endur fórnarlamba og fleiri. Fjölskyldur fórnarlambanna eru mjög hlynntar þessu og ég held það megi segja að þær hafi tekið okkur vel í öllum tilfellum,“ segir Sævar. Gerendur eru ekki jafn sam- starfsfúsir en Sævar segir yfir- leitt reynt að bjóða þeim að segja sína hlið á málunum. „En þeir þiggja það nú yfirleitt ekki.“ Sævar segir vissulega vanda- samt að fjalla um erfið og við- kvæm mál sem standi okkur jafn nærri í tíma og raun ber vitni. „Við byggjum vitaskuld líka á dómum sem eru opinber gögn en við förum mjög gætilega í þetta. Sýnum tillitssemi og gæt- um hófs í nafnbirtingum. Fyrst og fremst erum við að segja sögurnar á mannamáli og draga saman í skýra mynd það sem fólk hefur ef til vill bara fengið brotakennda sýn á í fjölmiðlum.“ Þátturinn um hvarf Sri Rahmawati verður frumsýndur á Skjá einum á mánudagskvöld klukkan 21.30. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Ingólfsstræti 3, 2. hæð | 121 Reykjavík | (354) 552 5450 | afs.is VILTU SKIPTINEMI? GERAST Ef þú ert á aldrinum 15-18 ára er enn möguleiki á að sækja um skiptinemadvöl með brottför í sumar/haust. Fjöldi landa í boði. KYNNTU ÞÉR MÁ LIÐ NÁNAR! Opið hús á skrifsto fu AFS nk. þriðjudag, 20. mars frá kl. 17-19. Allir velkomnir! Helgin 19.-21. október 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.