Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.10.2012, Blaðsíða 39

Fréttatíminn - 19.10.2012, Blaðsíða 39
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Leynist fjársjóður í þínum Tópaspakka? Taktu þátt í skemmtilegustu fjársjóðsleit allra tíma. Kauptu bláan Tópas, kíktu í lokið og þú gætir unnið: • Playstation portable leikjatölvu • Miða á söngleikinn Gulleyjuna í Borgarleikhúsinu • Risa nammikörfur Niðrandi ummæli um albönsku þjóðina Ummæli Arons Einars Gunnarssonar, fyrirliða karlalandsliðsins í knatt- spyrnu, fyrir leik gegn Albaníu á föstu- daginn vöktu hneykslan. Þar sagði hann Albana mestmegnis vera glæpa- menn og albönsku þjóðina ekki upp á marga fiska. Hann og formaður KSÍ báðust afsökunar. Fyrirliðinn fékk síðan gult spjald í leiknum og var því í leikbanni gegn Sviss á þriðjudaginn. Þingflokksformaður á ný Oddný G. Harðardóttir var kosin for- maður þingflokks Samfylkingarinnar í vikunni en hún lét af því embætti í lok síðasta árs þegar hún settist í stól fjármálaráðherra – sem hún eftirlét Katrínu Júlíusdóttur um síðustu mánaðamót. Magnús Orri Schram vék fyrir Oddnýju úr embættinu en var á sama fundi kosinn varafor- maður þing- flokks- ins. fyrir Oddnýju G. Harðardóttur Góð vika slæm vika fyrir Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliða Fært til bókar Núllin geta skipt talsverðu máli Núllin geta skipt máli, jafnvel talsverðu. Á því vekur Eiður Svanberg Guðnason, fyrr- verandi sendiherra, athygli í pistli sínum um mola og málfar nú í vikunni. Þar vitnar hann orð Vigdísar Hauks- dóttur alþingismanns um kostnað vegna aðilar Evrópusambandsins þar sem núlli var ofaukið, að mati Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Núllið var upp á litla 1440 milljarða króna, að því er þar kemur fram: Eiður segir: „Þingmaður Framsóknarflokksins, Vigdís Hauksdóttir, hefur vakið athygli fyrir með- ferð móðurmálsins. Sum ummæli hennar hafa orðið fleyg og víða farið. Ekki að ástæðulausu. Þingmaðurinn var gestur í morgunþætti Bylgjunnar á þriðjudags- morgni (16.10.2012). Vigdís lætur ekkert tækifæri ónotað til að tala illa um hið alvonda Evrópusamband. Hún fræddi hlust- endur Bylgjunnar á því að ef Íslendingar gerðust aðilar að ESB þyrftu þeir að greiða 1600 milljarða króna, jafnvirði tíu Kára- hnjúkavirkjana og gott ef ekki eins og eitt Icesave til viðbótar í svonefndan Björgunar- sjóð ESB. Hún sagðist hafa reiknað þetta og undirbúið sig vandlega! Upphæðin væri 1600 milljarðar sem kæmi í hlut okkar að greiða. Daginn eftir ræddu stjórnendur Morgunþáttar Bylgjunnar við Vilhjálm Egils- son framkvæmdastjóra Samtaka atvinnu- lífsins. Þau leyfðu hlustendum að hlýða á ummæli þingmannsins frá deginum áður. Vilhjálmur sagði að Vigdís Hauksdóttir hefði misreiknað sig illilega. Upphæðin væri 160 milljarðar ekki 1600 milljarðar. Þarna skakkaði litlum 1440 milljörðum hjá þing- manninum. Framlag í Björgunarsjóðinn yrði aukinheldur ekki bein útgreiðsla, ekki óendurkræft og væri lægra en lánafyrir- greiðslan sem Íslendingar fengu hjá AGS. En nú vaknar sú spurning hvaða tölu Vigdís Hauksdóttir [hefði] nefnt ef hún hefði ekki undirbúið sig og reiknað? Þótt andstæðing- ar ESB svífist einskis og grípi til ósanninda í baráttu sinni er hér líklega um bjánagang að ræða fremur en ásetning, – til þess eru tölurnar of fáránlegar. Og þó. Hver veit?“ Svo mörg voru þau orð sendiherrans. sem hangir á áberandi stað á heim- ili þeirra sæmdarhjóna, er þess órækt vitni. Minninu er því ekki að treysta. Það verður að skoða frum- gögnin. Allt annað er bland minn- inga og meðvitaðs eða ómeðvitaðs skáldskapar. Þetta veit sagnfræð- ingurinn manna best. Og rétt skal vera rétt. Við lesum hverja ævisöguna af annarri þar sem söguhetjan fer yfir langan veg. Það er ekki víst að alltaf sé rétt farið með þar, þótt það standi eins og stafur á bók. Eitt- hvað muna menn, annað ekki og til viðbótar er það sem menn vilja alls ekki muna – eða fegra jafnvel. Sumir halda dagbók. Það er kostur vilji menn rifja eitthvað upp síðar. Það er samt ekki víst að öllu sé til skila haldið eða rétt skráð þar. Hvað verður um það sem ekki er fest á blað? Hverfur það? Svo skiptir víst máli hver skrifar söguna. Sjónarhornið er ekki hið sama hjá öllum. Myndir koma líka til hjálpar við upprifjun. Samt er það svo, þegar lengra líður frá atburðinum, þá man maður eftir myndinni í albúm- inu en ekki endilega atburðinum sjálfum. Nú eru myndaalbúmin liðin tíð svo ekki lengur á þau að treysta. Nóg er að vísu tekið af myndum en þær hverfa flestar inn í óravíddir tölvunnar og geymast – eða gleymast – þar í svartholi. Við það verðum við að sætta okkur. Ævivegurinn er víst svona – ef ég man rétt! Helgin 19.-21. október 2012 viðhorf 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.