Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.10.2012, Blaðsíða 66

Fréttatíminn - 19.10.2012, Blaðsíða 66
Rof eftir Ragnar Jónasson Ra f- og hl jóð bó k Björk Jakobsdóttir frumsýnir sót- svartan gaman- leik í Gaflara- leikhúsinu í kvöld. Þriðja sóló- plata tónlistar- mannsins Jónasar Sigurðssonar, Þar sem himin ber við haf, er komin út. Platan er með- al annars unnin í samstarfi við Lúðrasveit Þorlákshafnar en Jónas á ættir að rekja til Þorláks- hafnar. Tónlistarband eldri borgara í bænum, Tónar og trix, leggja þessum þekktasta syni Þorlákshafnar sömuleiðis lið auk annarra. Til að fagna útkomu plötunnar verða þrennir tónleikar í reiðhöllinni í Þorlákshöfn um helgina. Að sögn Erlu Gunnarsdóttur, kynningarfulltrúa Jón- asar, verður allt lagt í tónleikana. Leiga á hljóðkerfi og tækjabúnaði kostar ein og sér hátt á aðra milljón króna svo ljóst má vera að ekkert er til sparað. „Færustu tæknimenn landsins koma að þessu og tónleikarnir verða í „surround“.  Ný plata JóNasar sigurðssoNar komiN út Leitar í ræturnar í Þorlákshöfn Jónas Sigurðsson skellti sér í sjóferð með Lúðrasveit Þorlákshafnar. Það hefur ekki verið gert áður að því við best vitum. Sérstök tölvuvinnsla er hluti af sýningunni til að senda ákveðin hljóð út úr hljóðmyndinni út í surround-hljóðkerfið svo hljóðið ferðist kringum áheyrendur,“ segir Erla stolt. En það eru ekki bara íbúar Þorláks- hafnar sem leggja sitt af mörkum. Saumakonan Gestný Sigurðardóttir í Hveragerði hefur setið sveitt við saumavélina undanfarnar vikur til að sauma sérstaka pallíettuboli fyrir lúðrasveitina og tónlistarband eldri borgara. Glitrið á pallíettunum á að minna á hafið. Uppselt er á tónleikana á föstudags- og laugardagskvöld. Enn eru lausir miðar á aukatónleika á sunnudag klukkan 16. Þeir fást á Miðakaup.is.  FrumsýNiNg BJörk JakoBsdóttir FrumsýNir Nýtt verk Björk Jakobsdóttir í Blakkáti Þ etta er sót-svartur gam-anleikur,“ segir Björk Jakobs- dóttir leikkona sem hefur skrifað nýtt verk (hún sló í gegn með Sellófan sem ferðaðist um víða veröld og var eftir hana), Blakkát, sem frumsýnt verður í Gaflaraleikhúsinu í kvöld. Ekki eru um einleik að ræða heldur eru þeir Hjörtur Jóhann Jónsson („getur allt; bæði drama- tík og húmor“) og Magnús Guð- mundsson („einn af mínum uppá- halds“) með henni á sviðinu. Verkið fjallar um konu á aldri við Björk, hana Borg- hildi Sveinsdóttur, en hún vinnur í utanríkis- ráðuneytinu og vaknar eftir blakkát á hótelher- bergi. Hún veit samt að í gær var árshátíð í Hörpu, allt annað er í þoku. „Mig langaði til að skrifa verk sem hefði bæði sársauka og húmor. Mér finnst mér oft takast best upp þegar ég næ því,“ segir Björk um alvarlegan undirtón þessa gamanverks sem Edda Björgvinsdóttir leikstýrir („hún er náttúrulega þvílíkur reynslubolti og ef ég fékk ritstíflu þegar ég var að skrifa verkið fór ég til hennar og fékk soja latte og þessa ógeðslegu grasadrykki hennar og svo aftur heim að berja lyklaborðið,“ segir Björk). En af hverju alkóhólismi? „Já, af hverju? Það er einmitt fyndið að þegar ég var með Sellófan héldu allir að ég væri að tala um kynlífið okkar Gunna (innsk. blm. Gunnar Helga- son, leikari og eiginmaður Bjarkar) og nú spyr fólk: Af hverju ert þú að skrifa um alkóhólisma? Það er enginn alkóhólismi í okkar ætt! Þú ert enginn alkóhólisti,“ útskýrir Björk og hlær og bendir jafnframt á að vissulega sé alkóhól- ismi alvarlegur sjúkdómur en mikið af því AA-fólki sem hún hefur kynnst á lífsleið- inni er oft myljandi fyndið og meinhæðið. Blakkát eftir Björk Jakobsdóttur er, sem fyrr segir, frumsýnt í Gaflaraleik- húsinu í kvöld. Mikael Torfason mikaeltorfason@frettatiminn.is Það er ein- mitt fyndið að þegar ég var með Sellófan héldu allir að ég væri að tala um kyn- lífið okkar Gunna. 66 menning Helgin 19.-21. október 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.