Fréttatíminn - 19.10.2012, Qupperneq 20
20 fréttir vikunnar Helgin 19.-21. október 2012
A uglýsingaherferðin „Bell bajao“ eða „Hringdu bjöllunni“ sem gerð var á Indlandi fyrir nokkrum árum vakti at-
hygli heimsbyggðarinnar. Skilaboðin til fólks
voru að láta heimilisofbeldi ekki afskiptalaust.
Við sáum allskonar fólk í allskonar aðstæðum
sem heyrði að í nærliggjandi húsi var karl að
berja konuna sína. Fólkið brást við með því
að hringja dyrabjöllunni og bera upp eitthvert
erindi. Til dæmis hvort það gæti fengið lánaða
mjólk eða sykur. Bara til að brjóta upp munstr-
ið, koma karlinum í opna skjöldu, koma því á
framfæri að það heyrist til þín. Við erum hérna,
við vitum hvað þú ert að gera.
Hringdu í þjálfarann
Í liðinni viku birtist dómur yfir ofbeldismann-
inum Mark Doninger. Hann barði kærustuna
sína. Tvisvar. Kýldi hana í andlitið, henti henni
í götuna, dró hana á hárinu, hélt fyrir vit henn-
ar, sló hana og skallaði hana í andlitið. Í síðara
tilvikinu heyrðu fjórir fullorðnir karlmenn
hvað gekk á. Fjórir fullvaxnir íþróttamenn.
Þeir unnu það stórkostlega afrek, þá miklu
hetjudáð, að hringja í þjálfarann sinn.
Þegar ég var 13 eða 14 ára passaði ég árs gam-
alt barn fyrir ókunnuga konu eitt kvöld. Hún
var að fara á tónleika. Þegar hún kom heim
var hún svo drukkin að hún gat ekki staðið.
Hún vakti barnið sem ég hafði haft þónokkuð
fyrir að svæfa. Tók það í fangið og datt í gólfið.
Ég greip hana, lagði barnið aftur í rúmið og
Vikan í tölum
240 lög voru send inn í Söngvakeppni Sjón-varpsins þetta árið. Þau hafa aldrei verið fleiri.
Við höfum ekki leyfi til að umbera ofbeldi
V i ð H o r f H i l d a r l i l l i e n d a H l
Atvinnuleysi fimm prósent
Atvinnuleysi var fimm prósent
í síðasta mánuði samkvæmt
vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar.
Í september í fyrra var atvinnuleysi
6% og 7,7% árið 2010.
ASÍ spáir hóflegum hagvexti
Alþýðusambandið spáir aukinni
fjárfestingu og hóflegum hagvexti
næstu þrjú árin. Sambandið óttast
að verðbólga verði of mikil, gengið
veikt og að hægt gangi að vinna á
atvinnuleysi.
Leigir Grímsstaði fyrir 735
milljónir
Fram kemur í kínverskum fjölmiðlum
að leigusamningur Huangs Nubos
um Grímsstaði á Fjöllum sé metinn á
sex milljónir dollara eða rúmlega 735
milljónir íslenskra króna.
Biðlaun vegna ráðherraskipta
Biðlaunakostnaður vegna ráð-
herraskipta nemur rúmum níu
milljónum króna og launatengd gjöld
eru rúmlega tvær milljónir króna.
Árlega sparast um 28 milljónir króna
í launakostnaði vegna fækkunar
ráðherra úr 12 í 8.
Ýmishúsið verður moska
Menningarsetur múslima á Íslandi
hefur fengið Ýmishúsið við Skógarhlíð
í Reykjavík afhent. Til stendur að opna
þar mosku.
Fækka þarf nemendum Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja
Fækka þarf nemendum við Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja um hátt í
fimmtung, að mati skólameistara.
Hann segir að auk 200 nemenda þurfi
að skera niður 12-14 stöðugildi.
Áfram stelpur
Stelpurnar í Gerplu voru í landsliði Íslands
sem varð Evrópumeistari í hópfimleikum
kvenna árið 2010. Nú eru þær aftur
á leiðinni út fyrir hönd Íslands og ætla að
leggja allt í sölurnar við að verja titilinn
dagana 19.–21. október næstkomandi.
Weetos styrkir stelpurnar okkar þar
sem 10 kr. af hverjum seldum pakka
til 5. nóvember renna beint til þeirra.
Styðjum stelpurnar okkar!
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
2
2
76
0
„Ég hringdi ekki
á lögregluna og
ég skammast
mín ennþá„
Knattspyrnumaðurinn
mark doninger var á
dögunum dæmdur fyrir að
lemja kærustuna sína.