Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.10.2012, Side 42

Fréttatíminn - 19.10.2012, Side 42
42 jólahlaðborð Helgin 19.-21. október 2012  Helgi Björnsson sinnir jólaskyldunni Jólahlaðborð 2012 Grand með helGa bJörns Jólasveifla oG Jólahlaðborð með bJarna ara Grand hótel reykjavík / sigtún 38, 105 reykjavík / sími: 514 8000 / www.grand.is Pantaðu núna í síma: 514 8000 eða á jolahladbord@grand.is Jólahlaðborðið hefst 16. nóvember. Verð f rá 5 .800 t i l 9 .600 krónur Fjölbreytnin ræður ríkjum þegar Helgi Björns treður upp á jólahlaðborð- inu á Grand Hótel og á milli jólalaga kallar Helgi fram svipaða stemningu og Frank Sinatra og félagar gerðu yfir borðum í Las Vegas. Býður upp á bland í poka að loknu hlaðborði Söngvarinn Helgi Björnsson tekur aðventuna með trompi þetta árið og ætlar að skemmta jólahlaðborðsgestum á Grand Hótel með söng og fjölbreyttu lagavali fram að jólum. Hann hefur léttleikandi djasstríó sér til fulltingis og lofar söddum gestum notalegri söngskemmtun. j ólahlaðborðið er fastur liður hjá Grand Hótel og þetta árið ætlar Helgi Björnsson að standa vaktina allar helgar fram að jólum og skemmta matargestum með fjölbreyttu lagavali úr ýmsum áttum. Helgi segist alls ekki líta á tíma jólahlaðborðanna sem vertíð. Hann hafi þó vissulega áður skemmt á hlaðborðum og er þar fyrir utan alltaf „syngjandi sæll og glaður“ og ætlar að skila þeirri tilfinningu ómengaðri inn á Grand Hótel. „Ég ætla nú ekki að syngja yfir borðhaldinu sjálfu og kem fram eftir að fólkið er búið að fá sér að borða af jólahlaðborðinu,“ segir Helgi. „Þetta er klukkutíma tón- leikaskemmtun eða svo þar sem við bjóðum upp á bland í poka. Við erum ekki einungis með jólalög en auðvitað eru þau nokkur til þess að sinna þeirri skyldu. Síðan eru þetta lög héðan og þaðan. Íslenskar dægurperlur og eitthvað af því sem ég hef verið að syngja undanfarið. Svo ætlum við kannski að blanda einhverjum útlendum lögum saman við þetta til þess fá smá „Rat Pack-fíling“ í þetta.“ Djasstríóið sem Helgi hefur með sér er ekki af verri endanum. Kjartan Valdimarsson leikur á flygil, Valdimar Kolbeinn á kontrabassa og Einar Valur Scheving á trommur. „Þetta eru mjög flottir spilarar.“ Helgi segir skemmti- lega stemningu skapast þegar boðið er upp á tónleika í kjölfar borðhalds. „Það má eiginlega segja að þetta sé tónleikaskemmtun og þetta er voða gaman. Kannski dálítið öðruvísi en maður er vanur og það er einhver kvöldverðar Las Vegas-fílingur í þessu. Fólk er búið að borða en situr áfram við borðin, satt og sælt, og fær sér svona eins og einn koníak. Mér finnst þetta skemmtilegt form. Í það minnsta eins og við höfum verið að gera þetta.“ Helgi og félagar ríða á vaðið föstudaginn 16. nóvember og verða síðan öll föstudags- og laugardagskvöld fram að jólum. „Við verðum þarna allar helgar og mér skilst nú að það sé eiginlega að verða uppselt þannig að það er meira að segja búið að bæta einhverjum fimmtudögum inn í þetta.“ Við erum ekki einungis með jólalög en auðvit­ að eru þau nokkur til þess að sinna þeirri skyldu.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.