Fréttatíminn - 19.10.2012, Page 50
50 bílar Helgin 19.-21. október 2012
Dacia Duster Nýr rúmeNskur sportjeppi
Ódýr en traustur jeppi frá Rúmeníu
Reykjavík
Grjóthálsi 10
Sími 590 6940
Reykjavík
Skeifunni 5
Sími 590 6930
Hafnarfjörður
Hjallahrauni 4
(við Helluhraun)
Sími 590 6900
Kópavogur
Skemmuvegi 6
(bleik gata)
Sími 590 6935
Reykjanesbær
Holtsgötu 52
(við Njarðarbraut)
Sími 590 6970
www.adalskodun.is
Við erum með órar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu
og eina í Reykjanesbæ. Þaulreyndir og þjónustuliprir fagmenn
taka á móti þér á þeim öllum. HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG!
Aðalskoðun, faggildur skoðunaraðili í 18 ár
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
2
-1
9
6
2
HJÁ AÐALSKOÐUN ER BÍLLINN
Í GÓÐUM HÖNDUM
HVAR HENTAR ÞÉR AÐ LÁTA SKOÐA?
20% MINNI
bensíneyðsla á 90
en á 110 km hraða.
Arion banki býður nú kaupleigu og bílalán til að fjármagna
bílakaup. Viðskiptavinir í Vildarþjónustu njóta hagstæðra
kjara og geta sparað sér töluverða fjármuni.
ÁRSAÐILD AÐ FÍB FYLGIR ÖLLUM SAMNINGUM
Á arionbanki.is finnur þú reiknivél sem sýnir með einföldum
hætti muninn á þeim valkostum sem í boði eru.
HAGKVÆM
BÍLAFJÁRMÖGNUN
e kki endilega allt sem þú vilt – allt sem þú þarft. Þannig auglýsir BL nýjan sportjeppa, hinn rúmenska Dacia
Duster sem senn verður sjáanlegur í ís-
lenskri vetrarfærð. Bíllinn, sem er fjórhjóla-
drifinn með 1,5 lítra dísilvél, verður tilbúinn
til afhendingar í lok þessa mánaðar. Dacia
bílarnir eru samstarfsverkefni Nissan/
Renault samsteypunnar. BL, Sævarhöfða 2,
er umboðsaðili. Þar verða bílarnir seldir og
þjónustaðir en þeir verða með þriggja ára
ábyrgð eða að 100 þúsund kílómetra akstri.
Verð á rúmenska sportjeppanum verður
3.990 þúsund krónur og meðaleyðsla er
sögð vera 5,3 lítrar á hundraðið.
Á síðu BL segir meðal annars: „Á þeim lið-
lega sjö árum sem Dacia hefur verið til sölu
hefur framganga Dacia merkisins verið ein
samfelld sigurganga. Á árinu 2012 keyptu
meira en 350.000 viðskiptavinir nýjan
Dacia í 35 löndum um heim allan. Í Frakk-
landi varð Dacia fimmti söluhæsti bíllinn
árið 2011 og í júlí 2012 var Dacia Duster í
sjöunda sæti yfir mest seldu bíla til einstak-
linga í Þýskalandi. Dacia er einnig söluhæst-
ur í löndum eins og Rúmeníu og Marokkó.
Lykillinn að árangrinum er einfaldur:
rúmgóður og áreiðanlegur bíll á mjög góðu
verði. En hvernig er hægt að bjóða svona
veglegan bíl á svona hagstæðu verði? Jú
með því láta einskis ófreistað við að einfalda
hönnun og framleiðslukostnað eins mikið
og hægt er.
Þrátt fyrir ólíkar langanir og óskir gerum
við svipaðar grunnkröfur til bíla og það er
einfaldlega haft að leiðarljósi við hönnun
Dacia. Við smíði Dacia Duster er auk þess
notast við íhluti sem hafa verið reyndir í öðr-
um bílum sem Nissan/Renault samsteypan
framleiðir og reynst hafa vel auk þess sem
reynt er að lágmarka tæknibúnað við það
sem talið getur nauðsynlegt að bjóða.
Dacia bílar eru sem sagt einfaldir að allri
gerð og hagkvæmir í rekstri og af þeim
sökum völdu þýskir bíleigendur Dacia næst
vinsælasta framleiðandann á eftir Audi og á
undan Mercedes-Benz í könnun J.D. Power
Customer Satisfaction fyrir árið 2010.“
Verðið, tæplega fjórar milljónir króna
fyrir dísilknúinn jeppling, er óneitanlega
hagstætt. Á síðu umboðsins eru leidd rök
að því af hverju bíllinn kostar ekki meira.
Þar segir: „Dacia Duster er framleiddur í
Rúmeníu í samstarfi á milli Renault/Nissan
samsteypunnar og rúmönsku bílaverk-
smiðjunnar Pitesti Romania. Í Dacia Duster
eru eingöngu notaðir einfaldir hlutir sem
hafa verið prófaðir í öðrum bílum sem fram-
leiddir eru á vegum samsteypunnar og
reynst hafa vel. Við val á tæknilausnum í bíla
sem framleiddir eru undir merkjum Dacia
á það sama við, ekki gengið lengra en svo
að hægt sé að mæta kröfum kaupenda um
hagkvæmni og tekið mið af að í bílunum sé
það sem þú þarft en ekki endilega allt sem
þú vilt.“
Um reynsluna af Dacia Duster segir á síðu
umboðsins: „Við smíði Dacia bíla er notast
við þekktar aðferðir og íhluti úr öðrum
bílum samsteypunnar sem eru einfaldir,
reyndir og traustir. Því má segja að Dacia
bílar séu einfaldlega traustir og standist
því fyllilega væntingar kaupenda. Þetta er
meðal annars ástæðan fyrir því að Dacia
fylgdi fast á hæla Mercedes-Benz í öðru sæti
í ánægjukönnun J.D. Power 2010 í Þýska-
landi.“
Fram kemur að þessi rúmenski sportjeppi
hafi náð skjótum vinsældum í Evrópu, t.a.m.
í Þýskalandi og í Frakklandi.
Nýr dísilknúinn fjórhjóladrifsbíll býðst senn hérlendis á hagstæðu verði. Dacia er
samstarfsverkefni Nissan/Renault samsteypunnar og smíðaður í Rúmeníu.
Allt sem þarf
í innra rými
Dacia Duster.
Dacia Duster, rúmenskur
sportjeppi með dísilvél sem
senn verður í boði hér á
landi. Bíllinn er smíðaður af
Nissan/Renault samsteypunni
í Pitesti Romania bílaverk-
smiðjunum Rúmeníu.