Fréttatíminn - 19.10.2012, Qupperneq 64
Niðurstaða:
Jónsmessunótt er
merkilegt og áhrifa-
mikið verk sem varp-
ar fram spurningum
um lífið, fortíðina
og drauma manns-
ins. Þar að auki er
hún hreinlega góð
skemmtun.
Jónsmessunótt
Höfundur: Hávar Sigurjónsson.
Leikstjórn: Harpa Arnardóttir.
Aðstoðarleikstjórn: Stefán Hallur
Stefánsson.
Leikmynd: Finnur Arnar Arnarsson.
Búningar: Kristína R. Berman.
Tónlist: Vala Gestsdóttir.
Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson.
Leikarar: Arnar Jónsson, Atli Rafn
Sigurðarson, Edda Arnljótsdóttir,
Kristbjörg Kjeld, Maríanna Clara
Lúthersdóttir, Þorsteinn Bach-
mann, Þórunn Arna Kristjánsdóttir.
Þ jóðleikhúsið frumsýndi á dögunum Jónsmessunótt eftir leikskáldið Hávar Sigurjónsson.
Þetta er í þriðja skiptið sem Þjóðleik
húsið setur upp verk Hávars og er það
leikkonan Harpa Arnardóttir sem situr
í leikstjórastólnum í þetta skiptið. Titill
verksins er strax áhugaverður en Jóns
messunótt vísar til nætur sem er ein sú
magnaðasta í íslenskri þjóðtrú. Á þeirri
nóttu á allt að geta gerst, náttúran lifnar
við og hegðun mannsins verður sérstök
eftir því.
Fjölskyldudrama með dassi af sápu
Jónsmessunótt Hávars og Hörpu var
sannarlega töfrum gædd. Íslensk fjöl
skylda kemur saman í sumarbústað
til að fagna gullbrúðkaupsafmæli for
eldranna. Fjölskyldufaðirinn, Arnar
Jónsson, leikur á als oddi og leggur sig
fram við að minna alla á afrek og sigra
fjölskyldunnar. Ekki er sjónarhorn allra
eins á þá fögru fortíð sem hann reynir
að halda fram og stendur eiginkona
hans, Kristbjörg Kjeld, við hlið hans
sem samviskuspegill. En ekki skal
spilla góðri sögu með sannleikanum,
veislan á að halda áfram.
Sviðsmynd Finns Arnars Arnarsonar
hélt uppi þema verksins, persónurnar
gengu eftir hringlaga pallstíg sem var
eins og lykkja í gegnum náttúru sum
arbústaðahverfisins. Á göngunni var
varpað fram smæð mannsins gagnvart
hringrás lífsins og að sama skapi þrá
hans til að skilja eitthvað eftir sig. Þor
steinn Bachmann og Atli Rafn Sigurðar
son léku syni hjónanna, braskara sem
sjá sóma sinn í því að standa gegn þeim
gildum sem fyrri kynslóð stendur fyrir.
Vafi leikur á hvort að slíkt viðhorf sé
nógu sterk undirstaða fyrir íslensk
an samtíma þegar staðið er frammi
fyrir efnahagshruni og meðfylgjandi
ævintýrum. Persónur Maríönnu Clöru
Lúthersdóttur og Eddu Arnljótsdóttur
birtust síðan sem andstæðupar. Önnur
er lífsklukkuþerapisti sem trúir á ástina
og hefur svör á reiðum höndum og hin
tekur lífið á kaldhæðninni einni saman.
Þórunn Arna Kristjánsdóttir var fulltrúi
þriðju kynslóðarinnar sem leitar svara
við spurningum sínum en veit ekki til
hverra hún á að snúa sér.
„Draumur“ á Jónsmessunótt
Leikstjórn Hörpu Arnardóttur var
virkilega vel heppnuð. Húmor í bland
við uppgjör persónanna sín á milli,
litað einhvers konar töfraheims dulúð,
skilaði sérlega merkilegri sýningu.
Tónlist Völu Gestsdóttur hélt utan um
dulúðina og tengdi sýninguna aftur við
titilinn Jónsmessunótt og þá ringulreið
sem myndast þegar árstíðaskipti eiga
sér stað. „Draumur“ á Jónsmessunótt
sem var hugðarefni Shakespeare verður
þannig að veruleikahristingi á Jóns
messunótt í Þjóðleikhúsinu.
Frumsýning Leigumorðinginn eFtir Aki kAurismäki
Leigumorðingi á Akureyri
„Við erum tilbúin í þetta,“ segir Hannes
Óli Ágústsson sem fer með eitt af aðal
hlutverkunum í Leigumorðingjanum
eftir Aki Kaurismäki (leikgerð og leik
stjórn; Egill Heiðar Anton Pálsson) sem
Leikfélag Akureyrar frumsýnir í kvöld
en Hannes og kærasta hans, Aðalbjörg
Árnadóttir, fluttu til Akureyrar í haust
til að vinna við leikhúsið og ætla sér
allavega að vera í ár.
„Þetta er búið að vera frábær tími,“
útskýrir Aðalbjörg sem segist ánægð að
vera umkringd svona mikilli náttúru fyrir
norðan.
Parið segir verkið fyrst og fremst gamanleikrit með
sterkum dramatískum undirtóni. Það
fjallar um mann sem ákveður að svipta
sig líf en andspænis dauðanum upplifir
hann þær tilfinningar sem gera okkur
mannleg.
Hannes og Aðalbjörg eru ekki eina par
ið í sýningunni því Einar Aðalsteinsson
og Anna Gunndís Guðmundsdóttir leika
einnig í sýningunni og eru kærustupar.
Ragnheiður Skúladóttir, nýráðinn
listrænn stjórnandi Leikfélagsins, segir
mikinn feng í Agli fyrir litla leikfélagið á
Norðurlandi, en Egill hefur verið að gera
góða hluti í leikhúsi á Norðurlöndunum og
í Þýskalandi síðustu ár. mikaeltorfason@frettatiminn.is
Aðalbjörg Árnadóttir og Hannes
Óli Ágústsson. Ljósmyndari Baldvin
Þeyr Pétursson.
Leikdómur Jónsmessunótt
Veruleikahristingur
á Jónsmessunótt
Þjóðleikhúsið frumsýndi á dögunum Jónsmessunótt eftir leikskáldið Hávar Sigurjónsson.
Sólveig Ásta
Sigurðardóttir
ritstjorn@frettatiminn.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gulleyjan – „Hvílíkt leikhús“ – ÁÞÁ Vikudagur
Bastarðar - fjölskyldusaga (Stóra sviðið)
Fös 26/10 kl. 20:00 fors Mið 31/10 kl. 20:00 4.k Sun 4/11 kl. 20:00 8.k
Lau 27/10 kl. 20:00 frums Fim 1/11 kl. 20:00 5.k Þri 6/11 kl. 20:00 9.k
Sun 28/10 kl. 20:00 2.k Fös 2/11 kl. 20:00 6.k Mið 7/11 kl. 20:00 10.k
Þri 30/10 kl. 20:00 3.k Lau 3/11 kl. 20:00 7.k Fim 8/11 kl. 20:00 11.k
Ný stórsýning frá Vesturporti, loks á Íslandi. Aðeins sýnd í 3 vikur!
Á sama tíma að ári (Stóra sviðið og Hof)
Lau 20/10 kl. 19:00 8.k Lau 17/11 kl. 19:00 9.k Fös 30/11 kl. 20:00 aukas
Lau 20/10 kl. 22:00 aukas Lau 17/11 kl. 22:00 aukas Lau 1/12 kl. 19:00 11.k
Fim 1/11 kl. 20:00 í Hofi Fim 22/11 kl. 20:00 aukas Sun 2/12 kl. 20:00 aukas
Fös 2/11 kl. 20:00 í Hofi Fös 23/11 kl. 20:00 aukas
Lau 10/11 kl. 19:00 í Hofi Lau 24/11 kl. 19:00 10.k
Hjartnæmur og bráðfyndinn gamanleikur. Sýnt í Hofi 1, 2 og 10 nóvember
Gulleyjan (Stóra sviðið)
Lau 20/10 kl. 14:00 13.k Sun 18/11 kl. 14:00 15.k Sun 25/11 kl. 14:00 17.k
Sun 21/10 kl. 14:00 14.k Lau 24/11 kl. 14:00 16.k Sun 2/12 kl. 14:00
Ævintýralegasta fjársjóðsleit allra tíma
Rautt (Litla sviðið)
Fös 19/10 kl. 20:00 19.k Þri 20/11 kl. 20:00 Þri 27/11 kl. 20:00
Lau 20/10 kl. 20:00 20.k Mið 21/11 kl. 20:00 Mið 28/11 kl. 20:00
Sun 21/10 kl. 20:00 21.k Fim 22/11 kl. 20:00
Sun 18/11 kl. 20:00 22.k Sun 25/11 kl. 20:00
Margverðlaunað meistaraverk. Aukasýningar í nóvember.
Gullregn (Nýja sviðið)
Þri 30/10 kl. 20:00 fors Lau 10/11 kl. 20:00 6.k Fim 29/11 kl. 20:00 13.k
Mið 31/10 kl. 20:00 fors Sun 11/11 kl. 20:00 7.k Fös 30/11 kl. 20:00 14.k
Fim 1/11 kl. 20:00 frums Fim 15/11 kl. 20:00 8.k Lau 1/12 kl. 20:00 aukas
Fös 2/11 kl. 20:00 2.k Fös 16/11 kl. 20:00 aukas Fös 7/12 kl. 20:00 15.k
Lau 3/11 kl. 20:00 3.k Lau 17/11 kl. 20:00 9.k Lau 8/12 kl. 20:00 16.k
Sun 4/11 kl. 20:00 4.k Sun 18/11 kl. 20:00 10.k Fös 14/12 kl. 20:00 17.k
Fim 8/11 kl. 20:00 aukas Lau 24/11 kl. 20:00 11.k Lau 15/12 kl. 20:00 aukas
Fös 9/11 kl. 20:00 5.k Sun 25/11 kl. 20:00 12.k Sun 16/12 kl. 20:00 aukas
Mannlegt verk um íslenskt fólk og útlenskt tré
Saga Þjóðar (Litla sviðið)
Fös 26/10 kl. 20:00 1.k Lau 10/11 kl. 20:00 6.k Lau 24/11 kl. 20:00 11.k
Lau 27/10 kl. 20:00 2.k Sun 11/11 kl. 20:00 7.k Fim 29/11 kl. 20:00 12.k
Fös 2/11 kl. 20:00 3.k Fös 16/11 kl. 20:00 8.k Fös 30/11 kl. 20:00 13.k
Lau 3/11 kl. 20:00 4.k Lau 17/11 kl. 20:00 9.k Fös 7/12 kl. 20:00 14.k
Fös 9/11 kl. 20:00 5.k Fös 23/11 kl. 20:00 10.k Lau 8/12 kl. 20:00 15.k
Íslandssagan á hundavaði í tónsjónleik með Hundi í óskilum.
Gói og baunagrasið (Litla sviðið)
Sun 21/10 kl. 13:00 3.k Sun 21/10 kl. 14:30 aukas Sun 28/10 kl. 13:00 4.k
Leikhústöfrar með Góa og Þresti fyrir börn á öllum aldri
Íslenski Dansflokkurinn: Októberuppfærsla (Stóra sviðinu)
Sun 21/10 kl. 20:00 Sun 18/11 kl. 20:00 Sun 25/11 kl. 20:00
It is not a metaphor, Cameron Colbert og Hel haldi sínu, Jérôme Delbey
Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið)
Lau 20/10 kl. 14:00 aukas Sun 11/11 kl. 14:00 19.sýn Sun 9/12 kl. 14:00
Lau 20/10 kl. 17:00 aukas Sun 11/11 kl. 17:00 20.sýn Sun 9/12 kl. 17:00
Sun 21/10 kl. 14:00 13.sýn Sun 18/11 kl. 14:00 21.sýn Lau 29/12 kl. 14:00
Sun 21/10 kl. 17:00 14.sýn Sun 18/11 kl. 17:00 22.sýn Lau 29/12 kl. 17:00
Sun 28/10 kl. 14:00 15.sýn Sun 25/11 kl. 14:00 Sun 30/12 kl. 14:00
Sun 28/10 kl. 17:00 16.sýn Sun 25/11 kl. 17:00 Sun 30/12 kl. 17:00
Sun 4/11 kl. 14:00 17.sýn Sun 2/12 kl. 14:00
Sun 4/11 kl. 17:00 18.sýn Sun 2/12 kl. 17:00
Sýningar í desember komnar í sölu. Tryggið ykkur sæti því miðarnir fljúga út!
Tveggja þjónn (Stóra sviðið)
Fös 19/10 kl. 19:30 3.sýn Fim 8/11 kl. 19:30 9.sýn Fim 22/11 kl. 19:30 15.sýn
Fös 26/10 kl. 19:30 4.sýn Fös 9/11 kl. 19:30 10.sýn Fös 23/11 kl. 19:30 16.sýn
Lau 27/10 kl. 19:30 5.sýn Lau 10/11 kl. 19:30 11.sýn Lau 24/11 kl. 19:30 17.sýn
Fim 1/11 kl. 19:30 6.sýn Fim 15/11 kl. 19:30 12.sýn Fim 29/11 kl. 19:30 18.sýn
Fös 2/11 kl. 19:30 7.sýn Fös 16/11 kl. 19:30 13.sýn Fös 30/11 kl. 19:30 19.sýn
Lau 3/11 kl. 19:30 8.sýn Lau 17/11 kl. 19:30 14.sýn
Óborganlega skemmtilegur nýr gamanleikur!
Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið)
Lau 20/10 kl. 20:30 16.sýn Fim 31/1 kl. 20:30 19.sýn Sun 10/2 kl. 20:30
Sun 21/10 kl. 20:30 17.sýn Sun 3/2 kl. 20:30 20.sýn
Fim 25/10 kl. 20:30 18.sýn Fös 8/2 kl. 20:30 21.sýn
Frábær skemmtun! Takmarkaður sýningafjöldi!
Jónsmessunótt (Kassinn)
Fös 19/10 kl. 19:30 5.sýn Fös 2/11 kl. 19:30 10.sýn Fim 15/11 kl. 19:30 15.sýn
Lau 20/10 kl. 19:30 6.sýn Lau 3/11 kl. 19:30 11.sýn Lau 17/11 kl. 19:30 16.sýn
Sun 21/10 kl. 19:30 7.sýn Sun 4/11 kl. 19:30 12.sýn Fim 22/11 kl. 19:30 17.sýn
Lau 27/10 kl. 19:30 8.sýn Fös 9/11 kl. 19:30 13.sýn Fös 23/11 kl. 19:30 18.sýn
Sun 28/10 kl. 19:30 9.sýn Lau 10/11 kl. 19:30 14.sýn Lau 24/11 kl. 19:30 19.sýn
Meinfyndið nýtt íslenskt verk, svört kómedía beint úr íslenskum samtíma.
Nýjustu fréttir (Kúlan )
Fös 19/10 kl. 22:00 Fim 25/10 kl. 20:00 Mið 31/10 kl. 18:00
Mið 24/10 kl. 20:00 Fös 26/10 kl. 20:00 Fim 1/11 kl. 18:00
Frumsýnt 18. október
Ástin (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 2/11 kl. 22:00 Frums. Sun 4/11 kl. 20:00 Lau 10/11 kl. 22:00
Lau 3/11 kl. 22:00 Mið 7/11 kl. 20:00 Sun 11/11 kl. 20:00
Ólafía Hrönn á trúnó í Þjóðleikhúskjallaranum
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Mið 7/11 kl. 19:30 Fim 8/11 kl. 19:30 Fim 15/11 kl. 19:30
Miðasala hafin. Aðeins þessar fjórar sýningar í nóvember.
Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is
64 leikhús Helgin 19.-21. október 2012