Fréttatíminn - 19.10.2012, Síða 70
Bækur Illuga um Messi og
Ronaldo koma út í Svíþjóð á
næstu vikum en bók hans um
Barcelona mun koma formlega
út á vegum félagsins á Spáni.
Bækur IllugI Jökulsson hefur skrIfað sex fótBoltaBækur sem koma út í svíþJóð á næstunnI
Illugi til Barcelona
„Jú, jú, þau hafa verið að græja það hjá
útgáfunni,“ segir Illugi Jökulsson rithöf-
undur en bók hans um Barcelona kemur
formlega út á vegum þessa merka knatt-
spyrnufélags á næstunni.
Útgefandi Illuga á Íslandi, Tómas
Hermannsson, er að vonum ánægður
með sinn mann og hafði ekki látið sig
dreyma um að Barcelona tæki höfund-
inn upp á sína arma en í sumar komu út
bækurnar Messi og Ronaldo eftir Illuga
á Íslandi. Þær ásamt fleiri bókum koma
nú út í Svíþjóð líka en von er á bókum
Illuga um Slatan, Real Madrid, Manc-
hester United og auðvitað Barcelona.
„Þetta er svoldið ævintýri,“
segir Tómas en það er Kristinn
R. Ólafsson sem þýðir bók Illuga
fyrir Barcelona á Spáni.
Eins og fyrr segir geta Íslend-
ingar þegar notið bóka Illuga um
Messi og Ronaldo en um mán-
aðamótin koma bækur hans um
Slatan, Real Madrid, Manchester
United og Barcelona út samtímis
hér á Íslandi og í Svíþjóð.
Messi og Ronaldo komu út í
sumar. Hinar koma allar í haust.
Aðalmarkaðurinn er reyndar Sví-
þjóð.
Mikael
Torfason
mikaeltorfason@
frettatiminn.is
Alveg mátulegur
Heimilis
GRJÓNAGRAUTUR
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Yrsa fær dúndurdóma í
Bretlandi
Glæpasagnahöfundurinn Yrsa Sigurðardóttir heldur
áfram að gera það gott á erlendum vettvangi. Bók
hennar, Ég man þig, kemur út í Bretlandi á
fimmtudaginn, 25. október, og hefur þegar
fengið frábæra dóma í hinum útbreidda
tímariti Marie Claire. „Yrsa Sigurðardóttir,
drottning íslensku glæpasögunnar, leitar á
nýjar slóðir í Ég man þig, draugasögu sem
maður ætti alls ekki að lesa einn í myrkri.
Þrír vinir ráðast í endurbætur á sumarhúsi í
yfirgefnu þorpi. Þegar vetrarveðrin bresta
á rennur mesti móðurinn af þeim og allt lítur
býsna ískyggilega út. Á sama tíma reynir
geðlæknir að sætta sig við hvarf sonar síns
um leið og hann aðstoðar lögregluna í tveimur
málum, skemmdarverk í leikskóla og sjálfsmorð
eldri konu. Þegar sögurnar renna saman verður
maður skelfingu lostinn,“ segir í Marie Claire.
Frakkar kaupa Einar blaðamann
Rithöfundurinn Árni Þórarinsson er nýkominn heim úr
fengsælli ferð á glæpasagnahátíð í Toulouse. Hátíðin er
ein sú stærsta sinnar tegundar í Frakklandi og ljóst að
þar í landi fellur aðalpersóna glæpasagna Árna, Einar
blaðamaður, í kramið. Morgunengillinn eftir Árna kom
nýlega út í Frakklandi. Hann áritaði bókina á hátíðinni og
þar seldist hún upp. Þá er Tími nornarinnar nýkomin úr
endurprentun eftir að hún seldist upp í Frakklandi. Á dög-
unum kom ný bók eftir Árna út hér heima. Hann heldur
sig við að sækja titla sína í þekkt lög og kemur nú með Ár
kattarins. Einar blaðamaður er sem fyrr í brennidepli.
Bond
breytir til
Skyfall, 23. James Bond-
myndin, verður frumsýnd
á Íslandi eftir viku. Myndin
markar tímamót í sögu
þessa dáða njósnara
hennar hátignar þar sem
50 ár eru liðin frá því Bond
sást fyrst á hvíta tjaldinu. Af
þessu tilefni verður Bond-
partíi slegið upp á Austur
á í kvöld, föstudagskvöld.
Boðsgestir verða að beygja
sig undir þá kröfu að mæta í
svörtu og hvítu. Litaglöðum
verður ekki hleypt inn. Að
hætti Bonds verður skálað í
Bollinger-kampavíni en ann-
ars er bleik brugðið þar sem
nú verður bjór í boði þar
sem Heineken hefur keypt
sig inn í Skyfall og Bond,
sem er þekktastur fyrir
að drekka vodka martini,
hristan en ekki hrærðan, er
kominn í mjöðinn.
Íris Sveinsdóttir hárgreiðslumeistari er flutt
til Íslands eftir ævintýraleg ár í Þýskalandi.
Hún náði frábærum árangri á mótum í hár-
skurði þar í landi, þrátt fyrir að vera stelpa
að keppa í herraklippingu og sigurvegararnir
hafi mútað dómnefndinni.
É g er lengi búin að ganga með þá hugmynd í höfðinu að búa til bók um hár og hárgreiðslur og loksins lét ég það verða að veruleika,“ segir Íris
Sveinsdóttir hárgreiðslumeistari, en bókin Frábært hár
er væntanleg í lok þessa mánaðar. „Mér finnst ótrúlega
gaman að kenna og sýna og upphaflega átti þessi bók
að vera ætluð fagfólki. Svo tók ég hugmyndina lengra
og ákvað að skrifa hana til stelpna og kvenna sem finn-
ast gaman að breyta til og vantar hugmyndir.“
Í bókinni er að finna allskonar hagnýt og holl ráð
hvernig best er að sinna hárinu sínu og er þar m.a.
að finna allskonar góðar uppskriftir að náttúrulegri
hárnæringu og fleiri góðu fyrir hárið. „Við gleymum
stundum að það er ekki alltaf nauðsynlegt að fara út
í búð og kaupa hárvörur. Við eigum flest hráefnið í
góðar hárnæringar heima í eldhússkáp og það tekur
enga stund að hræra í þær.“ Umhirða er þó ekki eina
umfjöllunarefni bókarinnar, meginefni hennar er hár-
greiðslur af ýmsu tagi þar sem Íris fer gegnum greiðsl-
urnar skref fyrir skref í máli og myndum. „Í bókinni
eru bæði einfaldar og fljótlegar hárgreiðslur ásamt
flóknari greiðslum, fyrir stelpur og konur sem þora.
Ég fer einnig í það hvernig hægt er að búa til einfalt
og ódýrt hárskraut á stuttum tíma. Svo það má segja
að í bókinni sé að finna flest það sem þarf til að geta
skartað glæsilegu og heilbrigðu hári.“
Viska Írisar og upplýsingar sem hún deilir í nýju
bókinni er hugmyndavinna sem hún hefur lengið
unnið að. Hún er enginn byrjandi þegar kemur að hár-
tísku en hún hefur verið að síðan hún var 15 ára. Árið
1986 lauk hún sveinsprófinu, þá 19 ára gömul, og fór
hún strax til Þýskalands þar sem hún hefur verið með
annan fótinn síðan. „Ég fór til Þýskalands eftir sveins-
prófið og fór að vinna hjá Siggi Ebenhock, sem á þeim
tíma var þjálfari þýska landsliðsins í hárskurði. Mig
hafði dreymt um að keppa á stórum mótum og hann
þjálfaði mig og undirbjó fyrir mót.“
Íris lét drauminn rætast og keppti á mörgum
mótum. Hún varð alþjóðlegur CAT meistari Þýska-
lands, landsmeistari Þýskalands og hafnaði í fjórða
sæti á Þýskalandsmeistaramóti, svo fátt eitt sé nefnt.
„Fólk var alveg sjokkerað þegar ég lenti í fjórða sæti
á Þýskalandsmeistarmótinu á sínum tíma. Ekki bara
það að ég var stelpa að keppa í herraklippingu, heldur
voru miklar mútur í gangi og þurftu sigurvegararnir
að eiga nóg af peningum til þess að geta mútað dóm-
nefndinni. Fjórða sætið var því sigur út af fyrir sig, þar
sem ég komst eins nálægt sigri og hægt er, án þess að
múta dómnefndinni.“
Fimm árum eftir að Íris kom fyrst til Þýskalands,
árið 1991, opnaði hún hárgreiðslustofuna Íris Hairart
og hefur sú stofa verið starfandi síðan. „Eftir að ég
flutti aftur heim til Íslands, árið 2007, hef ég verið
með annan fótinn í Þýskalandi þar sem ég rek stofuna
mína.“
Sama ár og Íris opnaði stofuna sína hafði hárvöru-
fyrirtæki Paul Mitchell samband við hana og fór hún
að vinna sem sviðsmanneskja fyrir það. „Ég ferðaðist
mikið á vegum fyrirtækisins og sá bæði um tískusýn-
ingar og sýnikennslu í Ameríku, Dúbaí, Rússlandi og
Tyrklandi, svo fátt eitt sé nefnt. En árið 2005 fór ég
að kúpla mig út úr þessum sýningum, en er þó enn
að vinna fyrir fyrirtækið. Þessi ferðalög og sýningar
reyndu mikið á, enda gríðarleg keyrsla og þurfti ég að
prófa eitthvað nýtt. Langaði að fara að fikra mig aftur
heim til Íslands og taka nýtt skref í lífinu.“ Íris flutti til
landsins fyrir fimm árum og sér hún nú um rakara-
stofu föður síns, Hárbæ á Laugavegi, sem starfrækt
hefur verið í yfir 35 ár.
Kolbrún Pálsdóttir
kolbrun@frettatiminn.is
írIs sveInsdóttIr gefur út hárgreIðsluBók fyrIr kvenfólk
Vann með þjálfara þýska
landsliðsins í hárskurði
Íris Sveinsdóttir hárgreiðslumeistari gefur út bókina Frábært hár.
70 dægurmál Helgin 19.-21. október 2012