Fréttatíminn - 26.10.2012, Blaðsíða 50
42 snyrtivörur vöru- og fyrirtækjakynningar Helgin 26.-28. október 2012
SignatureS of nature Lífræn Snyrtimeðfeð með heim
CeridaL húðvöruLínan
C eridal húðvörulínan er mild og hentar bæði fólki með venjulega húð og viðkvæma.
Vörurnar verja húðina fyrir kulda og
þurrki og hjálpa húðinni að græða
sár. Vörurnar eru mildar og henta því
börnum og fullorðnum jafnvel. Ceridal
er heilsusamleg húðhirðulína fyrir
alla fjölskylduna, laus við öll óþarfa
aukaefni. Hægt er að nálgast hana í
næsta apóteki.
Ceridal er mild húðhirðulína fyrir
þá sem vilja huga sérstaklega að húð-
inni alla daga. Afurðirnar í línunni eru
lausar við ilmefni, paraben, litarefni,
lanólín, fleytiefni og önnur óþörf
aukaefni. Öll innihaldsefni eru sér-
staklega valin þannig að Ceridal henti
bæði þeim sem eru með venjulega
og viðkvæma húð eða húðsjúkdóm.
Ceridal hentar fyrir vikið vel fyrir alla
fjölskylduna.
Helstu vörurnar í línunni eru
fitukrem, húðolía, andlitskrem og
baðolía.
Fitukrem
Þegar haustar að, hvessir og kólnar
í veðri er þurr húð algengt vandamál
hjá mörgum. Þá er mikil-
vægt að verja húðina
vel. Ceridal fitukrem
minnkar hættuna á húð-
skemmdum af völdum
kulda því fitukremið
inniheldur ekki vatn og
húðin andar því eðlilega.
Kremið myndar
hlífðarlag á yfirborði
húðarinnar og kemst
meðfram frumum í ysta
lagi hennar. Fituefnin
haldast lengi í húðinni
og varna því að hún
þorni upp, jafnvel þótt hún sé í snert-
ingu við vatn, svo sem við handþvott
eða í sundlaug.
Auk þess hjálpar fitukremið húðinni
að græða sár. Ef húðin er þurr getur
tekið langan tíma fyrir sár að gróa en
fitukremið varðveitir raka umhverfis
sárin. Kremið gagnast einnig vel á
þurrar og sprungnar varir.
Húðolía
Ef húðin er þeim mun viðkvæmari
gæti Ceridal húðolían verið betri
lausn. Fljótandi fituefni henta vel
á þurra og viðkvæma húð. Olían
inniheldur þrjár tegundir af olíu og
ekkert annað. Hún er þunnfljótandi,
tær fituolía, sem ver húðina gegn
þurrki og kemur í veg fyrir að hún
glati eðlilegum raka sínum. Olían er í
fljótandi formi og því auðvelt að dreifa
henni. Húðolíunni er sprautað beint á
húðina og hún hentar mjög vel á þurra
staði þar sem ekki er ráðlegt að nudda
of mikið. Fyrst í stað virðist húðin
vera fitug en að
örfáum mínútum liðnum hefur hún
drukkið í sig olíuna og húðin verður
mjúk. Ceridal húðolía hentar mjög
vel á sumrin á þurra fótleggi og þurra
húð almennt. Líkt og við á um Ceridal
fitukrem gagnast húðolían einnig vel
á sár.
Krem og andlitskrem
Ceridal krem og andlitskrem eru frá-
bær vörn fyrir viðkvæma húð og hefur
einnig góð áhrif á exem og ofnæmi.
Kremin innihalda jurtaolíur, sem
minna talsvert á olíurnar sem eru í
húðinni frá náttúrunnar hendi. Vörnin
sem kremin veita líkist því vörn húð-
arinnar sjálfrar. Geta húðarinnar til að
endurnýja sig eykst þar af leiðandi og
fyrr en varir verður húðin mjúk.
Ceridal krem er fyrir daglega
umhirðu líkamans. Sérstaklega gott á
hendur, olnboga og hné. Andlitskrem-
ið er ætlað fyrir daglega umhirðu á
andliti og hálsi.
Baðolía
Ceridal baðolía er mild baðolía sem
gerir húðina mjúka og slétta, án þess
að hún verði fitug.
Baðolían er gerð úr olíum á borð
við parafínolíu og vínberjakjarnaolíu,
ásamt mildum hreinsiefnum.
Ólíkt öðrum baðolíum safnast Ceri-
dal baðolía ekki í lag á yfirborðinu,
heldur dreifist hún jafnt í baðvatninu
og kemst þannig í beina snertingu við
húðina. Þegar olían blandast baðvatn-
inu verður það mjólkurhvítt að lit.
Barnvænar vörur
Allar vörurnar í Ceridal húðhirðulín-
unni eru algerlega lausar við ilmefni,
parabena, litarefni, lanólín, fleytiefni
og önnur óþörf aukaefni. Vörurnar
henta því vel fyrir börn og ungbörn
með viðkvæma húð. Börnum sem
nota snuð er hætt við ertingu í kring-
um munninn, en til að koma í veg fyrir
útbrot má bera þunnt lag af Ceridal
fitukremi í kringum munninn.
Ef barnið er með þurra húð er
mikilvægt að bera reglulega á húðina
til að forðast að þurrkurinn breytist í
exem. Oft vilja börn ekki láta bera á
sig. Ceridal húðolía getur gert þetta
auðveldara þar sem þunnfljótandi
olíunni er sprautað á húðina, sem
dregur olíuna fljótt í sig án sviða.
Olían gagnast ennfremur
vel á rauðan bossa og
bleyjuútbrot.
Baðolían hentar
einnig vel fyrir börn
því hún er mjög mild.
Ceridal vörurnar
fást í apótekum og
þar er jafnframt hægt
að fá ráðleggingar um
val á Ceridal vörum
sem hentar hverjum og
einum.
Mildar húðvörur fyrir alla fjölskylduna
h öfum opnað glæsilegan heima spa bar þar sem er, í fyrsta skipti á Íslandi, hægt að fá ferskar, nýbland-aðar og lífrænar snyrtimeðferðir með sér heim!
Einfaldara, þægilegra og ódýrara verður það ekki að fá full-
komna andlits- og/eða líkamsmeðferðir með
frábærum innihaldsefnum og öllum leiðbeining-
um til að dekra við sig heima. Þetta er frábært
fyrir fólk sem vill huga að húðinni á heilbrigðan
hátt og flestir eru að gera þetta til að sjá og finna
mun á húðinni. Signatures of Nature er þekkt
fyrir persónulega þjónustu þar sem traust ríkir
á milli starfsmanna og kúnna og það er ekkert
skemmtilegra en að upplifa að fólkið okkar kem-
ur aftur og aftur til þess að prófa fleiri ólíkar
meðferðir og þakkar okkur fyrir frábær ráð og
einnig er fólk er búið að glíma við húðvanda-
mál í lengri tíma sem auðvelt er að leiðrétta
með réttum ráðum og efnisinnihaldi. Nýjung,
sem við erum núna að bæta inn í barinn til þess
að bæta enn þjónustuna er að hver sá sem vill
stunda reglulega meðferðir til þess að fá enn
betri árangur, er spjaldskrá þar sem við húð-
greinum og hver meðferð er skráð á spjaldið.
Þannig er hægt að fylgjast með því sem er gert
og hvað má betur gera. Enn fremur er frábært
fyrir viðskiptavininn að þurfa ekki að muna í
hvert skipti með hverju við mælum næst. Það
eina sem hann þarf að gera er að mæta og þá er
allt skráð og við ráðleggjum hvað á við í hvert
skipti. En við tökum skýrt fram að við höfum
einnig þurft að vísa fólki til húðsjúkdómalækna,
þar sem það á við.
Við bjóðum upp á meðferðir fyrir allar húðteg-
undir, sérblöndum og setjum saman eftir þínum
þörfum svo að upplifun þín verði sem allra best!
Meðferðirnar er hægt að nálgast í verslun okkar
alla daga.
Hægt er að fá heila meðferð með öllu því sem
til þarf þannig viðkomandi þarf ekki að nota
neitt af því sem hann á heima. Slík meðferð kostar ekki
nema 1590 krónur en hver meðferð er eitt skipti. Við köllum
Hollusta fyrir húðina
Signatures of Nature er stolt af frábærum viðtökum á nýjungum sem
byrjað var á snemma árs en það er heima spa-to go
þetta matseðil fyrir húðina, segir Anna
María Ragnarsdóttir, framkvæmdarstjóri
Signatures of Nature, þar sem við erum
að notast eingöngu við ferskt hráefni og
vítamín sem og næringu fyrir húðina og
fólk sem hugar að hollu matarræði ætti í
raun líka að fara að huga að hollustu fyrir
húðina.
Heima spa barinn hefur slegið i gegn
hjá vinkvennahópum, að fara með þessar
meðferðir í bústaði eða stunda kósí dekur-
kvöld saman. Einnig höfum við keyrt út í
fyrirtæki á fimmtudögum og föstudögum
ef 10 manns eða fleiri panta, því það eru
svo margir sem vilja dekra við sig í lok
erfiðar vinnuviku. Þá er þessi leið tilvalin.
Einnig hefur Signatures of Nature
upp á margar vörur að bjóða fyrir andlit
og líkama, fyrir konur, karla og börn.
Vörurnar eru án allra kemískra efna og
hafa þær vörur Ecocert vottunarstimpil.
Einnig látum við framleiða okkar eigin
ilmkerti sem eru íslensk og handgerð.
Þeir ilmir eru einmitt í stíl við spa líkams-
línuna okkar þannig fólk getur stundað
heildrænar meðferðir heima, bæði á húð
og í andrúmsloftinu. Það er margt nýtt
og spennandi að gerast hjá Signatures of
Nature núna fyrir jólin og hefur versl-
unin einnig verið þekkt fyrir frábærar
tækifærisgjafir.
Njótið!