Fréttatíminn - 26.10.2012, Blaðsíða 52
44 snyrtivörur vöru- og fyrirtækjakynningar Helgin 26.-28. október 2012
Húðvörur vítamín
SnyrtiStofa Þórunn KriStín er eigandi SnyrtiStofunnar mizú
Húðvörur Þrjú Þrep
Húðvörur andlitSKrem
Húðvörur dagKrem
Invigorating Night Gel -
Ole Henriksen
a lgjör vítamínsprengja fyrir húðina, inniheldur ávaxtasýrur sem hjálpa til við að endurnýja húðfrumurnar og dregur úr línum.
www.olehenriksen.is
Gentleman‘s Tonic
Séntilmennska við raksturinn. Breska snyrtivöru
línan Gentlaman´s Tonic fer alla leið þegar kemur að
herramennsku. Klassískur keimur af Babbassau &
Bergamont. Fæst í Hygeu.
f ullkomið dagkrem sem dregur úr 10 merkjum öldrunar með stöðugri notkun. Þetta er fyrsta heildarlausn gegn öldrun húðarinnar, allt í einu kremi. Þú færð sléttari
húð, mýkri húð, styrkari húð, bætir
rakamissi, aukinn teygjanleika,
meiri fyllingu, jafnari húðlit, geisl
andi húð og jafnar skarpari línur.
Allir þessir eiginleikar krems
ins halda sér einnig í BB útgáfu af
Revitalift Total
Repair 10, þar
sem þú getur
valið um 2 litar
tóna. Það er í
senn fyrsta BB
krem sem vinn
ur gegn öldrun
húðarinnar.
t öfrandi BB krem sem gefur þér fullkomna náttúrulega húð. Algjör tæknibylting. Kremið er
með örfínum litarögnum sem aðlagast
þínum húðlit. Þú öðlast fallega húð
með fullkominni þekju, eykur náttúru
legt yfirbragð, jafnar húðlitinn, gefur
húðinni 24 tíma raka og veitir henni
SPF 12 og andoxunarefni.
Einnig fáanlegt BB púður frá
L‘Oréal sem gefur húðinni flauels
mjúka áferð.
Revitalift Total Repair 10
BB Nude
Magique
e r þróað af húðlæknum og samanstendur af hreinsun, endurnýjun og raka. Þrjú einföld þrep, kvölds og morgna, sem gerir húðina fullkomna, bjarta og geislandi.
Þriggja þrepa húð-
hirðukerfið í Clinique
Þórunn Kristín Snorradóttir rekur sína eigin snyrtistofu í Borgartúni.
Þú verður að hugsa vel um sjálfa þig
v ið erum flest gjörn á að hugsa fyrst um aðra og svo um okkur sjálf,“ segir
Þórunn Kristín Snorradóttir
sem á og rekur snyrtistofuna
Mizú í Borgartúni 6 (gamla Rúg
brauðsgerðin) en hún bendir á
að í lífinu sé þetta svoldið eins
og með súrefnisgrímurnar í flug
vélunum: „Auðvitað eigum við
fyrst að hugsa um okkur sjálfar
því þannig getum við gefið miklu
meira af okkur.“
Þórunn opnaði snyrtistofuna
2008 þegar hér átti allt að vera í
kaldakoli en þessi hugrakka kona
byrjaði með tvær í vinnu en þær
eru sex í dag. Mizú býður upp á
litun og plokkun, vax og brasil
ískt, nudd, fótaaðgerðir, brúnku
meðferðir, höfuðbeina og spjald
hryggsmeðferð og varanlega
förðun svo eitthvað sé nefnt.
Varanleg förðun?
„Húðflúr eða tattú. Ég fór út til
Bretlands um það leyti sem ég
opnaði stofuna og lærði það hjá
Nouveau Contour. Sem er eitt virt
asta fyrirtæki í heimi,“ útskýrir
Þórunn en þessi kjarnorkukona
lætur sér ekki nægja að reka sitt
eigið fyrirtæki heldur bíða fjögur
börn heima á aldrinum eins og
hálfs til tólf ára. Eiginmaðurinn
stendur þétt við bakið á sinni konu
en hann er málarameistari.
En hvað er væntanlegt?
„Það sem er að koma til landsins
nú í vetur vonandi heitir Meta
therapy og þá er verið að vinna
með þurrar nálar á hrukkur.
Þetta er einskonar hrukkubani og
hann verður næsta stóra trendið,
býst ég við,“ svarar Þórunn og ít
rekar að fólk verði að hugsa vel
um sjálft sig, upp á sjálfsvirð
inguna: „Annars finnst mér ég
persónulega ekki fúnkera dags
daglega.“