Fréttatíminn - 26.10.2012, Blaðsíða 10
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
L ára Kristín Brynjólfsdóttir var í vik-unni svipt forræði yfir sex ára syni sínum á grundvelli geðsjúkdóma sem
yfirlæknir á geðdeild Landspítalans sagði
fyrir dómi að hefðu verið röng greining.
Hann sagði einnig að meðferðin við geð-
sjúkdómunum hefðu gert Láru veika. Land-
spítalinn hefur beðið hana afsökunar á
meðferðinni og rangri greiningu. Enginn
þeirra sem komu fyrir dómarann dró það í
efa að Lára gæti sinnt barninu sínu.
Lára Kristín var í sumar greind með
dæmigerða einhverfu en hefur átt við
mikla erfiðleika að stríða allt sitt líf vegna
hennar. Hún hefur margoft verið lögð inn
á geðdeild og ranglega greind með fjölda
geðsjúkdóma.
Árið 2011 fór barnsfaðir hennar í for-
ræðismál við hana og var í kjölfarið dæmt
að lögheimili sonar þeirra yrði hjá honum
en forræði yfir honum sameiginlegt. Lára
Kristín fékk því minni umgengni við son sinn en hún
var vön. „Í kjölfarið leitaði ég mér aðstoðar sálfræð-
ings á Landspítalanum, þar sem ég var að vinna, vegna
depurðar yfir því að hafa minni umgengnisrétt við son
minn en áður. Vegna þess hve ég á erfitt með að horfa
í augun á fólki, eins og algengt er hjá einhverfum, þá
taldi sálfræðingurinn að ég væri með geðklofa. Hann
hringdi í lækna og lét fjarlægja mig með valdi og
leggja inn á geðdeild þar sem ég var ranglega greind
með geðrof,“ segir Lára. Hún neitaði að taka lyf við
geðrofi og var í kjölfarið svipt sjálfræði svo
hægt væri að gefa henni lyf.
Lögfræðingur Láru, Þuríður Halldórs-
dóttir, segir að sjálfræðissviptingin hafi verið
ein af ástæðunum fyrir því að dómarinn í
forræðismálinu sem dæmt var í nú í vikunni
ákvað að svipta Láru forræði yfir syni sínum.
„Fyrra forsjármálið höfðaði barnsfaðir henn-
ar á grundvelli geðsjúkdóma Láru sem síðan
kom í ljós að var röng greining. Síðara for-
ræðismálið var höfðað í kjölfar ábendingar frá
félagsráðgjafa á geðdeild Landspítalans sem
hafði samband við barnaverndaryfirvöld því
hann taldi Láru ekki færa um að sinna barni
sínu sökum geðsjúkdóma,“ segir Lára.
„Páll Matthíasson yfirlæknir á geðsviði
bar vitni fyrir dómnum og staðfesti að Lára
hefði fengið ranga greiningu á Landspítala og
ranga meðferð. Hann játaði því jafnframt að
lyfin sem henni hefðu verið gefin hefðu gert
hana veikari en ella,“ segir Þuríður.
„Dómarinn dæmir á grundvelli þeirra gagna sem
lágu fyrir í málinu en í þeim kemur fram að Lára sé
með fjölda geðsjúkdóma. Það var ekki fyrr en í aðal-
meðferð málsins sem Páll Matthíasson læknir sagði
frá því að Lára hefði verið ranglega greind og hún væri
einhverf en ekki með geðsjúkdóma. Dómarinn virðist
hins vegar ekki hafa neinn skilning á eðli einhverfu
en einhverfa er ekki sjúkdómur heldur fötlun,“ segir
Þuríður.
Í dómnum segir: „[Lára] hefur átt við andleg veik-
indi að stríða undanfarin ár, hefur barnaverndar-
nefnd þurft að hafa afskipti af [Láru] á heimili
hennar og [hún] verið lögð á geðdeild.“ Að
sögn Þuríðar er það ekki rétt sem þarna
kemur fram. „Í fyrsta lagi hefur Lára ekki
átt við geðsjúkdóma að stríða eins og fram
kom í aðalmeðferð og einu afskipti sem
barnavernd hefur haft af henni er vegna
tilkynningar félagsráðgjafa á Landspít-
alanum sem byggð var á sjúkdómi sem
hún var ekki með,“ segir Þuríður.
Hún segir að matsmaður sem feng-
inn var til að meta hæfni Láru hafi
ennfremur gert matið á henni áður
en greiningin um einhverfuna kom
fram og hann hafi því byggt mat
sitt á rangri greiningu um geð-
sjúkdóma.
„Þetta er allt mjög sorglegt mál
og það hefur verið margbrotið á
þessari stúlku,“ segir Þuríður sem
hefur hvatt Láru til að áfrýja mál-
inu til hæstaréttar.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
DómsmáL EinhvErf kona svipt forræði yfir syni sínum
Röng sjúkdómsgreining grund-
völlur að forræðissviptingu
Ung kona var svipt forræði yfir sex ára syni sínum í vikunni á grundvelli rangrar greiningar um geðsjúkdóma. Hún
greindist nýlega með einhverfu. Yfirlæknir á geðsviði Landspítalans staðfesti að um ranga greiningu hefði verið að ræða
og að lyf sem henni hefðu verið gefin hefðu gert hana veikari.
Lára Kristín Brynjólfsdóttir segist
hafa áhyggjur af samfélagið fatlaðs
fólks og rétti þeirra til að sinna for-
eldrahlutverkinu. Ljósmynd/Hari
Lyf við
ranglega
greindum
geðsjúk-
dómum
gerðu Láru
veikari.
Íslenska hátæknifyrirtækið ReMake
Electric hefur verið útnefnt sem helsta
fjárfestingartækifæri í Evrópu árið
2012 í orkubúnaðar- og tæknigeiranum.
Matið fór fram hjá markaðs- og ráðgjaf-
arisanum Frost & Sullivan sem starfar
um allan heim, en verðlaunin eru hluti
af árlegu „Best Practices Awards“ frá
Frost & Sullivan í Evrópu.
ReMake Electric hannar, framleiðir
og markaðssetur nýjan mæli- og tölvu-
búnað auk hugbúnaðar fyrir raforku-
eftirlit til að ná fram sparnaði og nýtni
í raforkunotkun. Hilmir Ingi Jónsson
framkvæmdastjóri segir útnefninguna
glæsilega viðurkenningu á íslenskri
nýsköpun.
Ásamt ReMake voru fyrirtæki á
borð við Siemens, ABB, Sennheiser og
Hewlett Parkard sem unnu til verðlauna
fyrir sína nýsköpun, samkeppnishæfni
og framsýni en ReMake Electric skarar
fram úr í heildarlausnum til greiningar
og eftirlits á raforkunotkun og álagi.
nýsköpun BEsta fjárfEstingin í orkuBúnaðar- og tæknigEiranum
Íslenskt fyrirtæki verðlaunað
Hilmir Ingi Jónsson, framkvæmdastjóri
ReMake og Gary Jeffery, framkvæmdastjóri
Frost & Sullivan í Bretlandi.
10 fréttir Helgin 26.-28. október 2012