Fréttatíminn - 26.10.2012, Blaðsíða 36
Október, eða ROKKTÓBER eins og
við kjósum að kalla hann, er þétta
sti
viðburðamánuður ársins, þar sem
hæst rís AIRWAVES hátíðin.
Miðborgin iðar og spriklar af mann
lífi þegar tónlistarmenn stökkva fr
am
á sviðið, blaðamenn frá öllum heim
shornum streyma til borgarinnar o
g
áhorfendur flykkjast að til að sjá o
g hlýða á dýrðina.
Tökum tónlistinni fagnandi og njótum saman þessa stórviðburðar í Miðborginni okkar.
Vertu með – þar sem rokkhjart
að slær
NÆR HÁMARKI
Airwaves íMiðborginni
karen Björk er dómari og fyrrum heimsmeistari
Sé mig ekki í hefðbundnu starfi
É g er mjög aktív kona og þessi lífsstíll hentar mér vel, ég þarf að vera mikið á hreyf-
ingu og sé mig ekki í hefðbundnu
starfi,“ segir Karen sem byrjaði
dansferilinn sex ára gömul. „Ég var
mjög hress krakki, algjör stráka-
stelpa, eða allavega passaði ég ekki
alveg í rammann sem stelpum er
sniðinn. Ég var mjög dugleg að taka
mér eitthvað fyrir hendur, svo það
hefur kannski lítið breyst,“ segir
hún og hlær.
Þegar Karen var sextán ára flutti
hún til London þar sem hún fór í
framhaldsnám í dansi. „Ég ætlaði
mér að „meikaða“, það var bara
þannig.“ Í Lundúnum kynntist hún
manninum sínum, Ástralanum
Adam Reeve. „Ég var með dans-
herra frá Rússlandi í skólanum og
hann hafði líka rússneskan dans-
félaga. Ég bjó með þeim og við
kynntumst í gegnum þau.“ Þau
urðu að sögn Karenar miklir vinir
fljótlega sem að síðar leiddi til ástar-
sambands.
Að náminu loknu tóku þau að
dansa saman fyrir Íslands hönd og
árið 2003 urðu þau fyrstu heims-
meistararnir í dansi hér á landi. „Við
bjuggum í ferðatösku, við vorum
alltaf á ferðinni. Dansinn átti okkur
öll og það var bara þannig.“ Þau
fóru síðan að þjálfa og hafa snúið
sér alfarið að þjálfuninni í dag. Þau
opnuðu dansskóla í Ástralíu og
voru þar með annan fótinn þangað
til fyrir fjórum árum þegar þeim
fæðist dóttir.
„Þegar dóttir okkar fæddist
tókum við ákvörðunina um að
setjast alfarið að á Íslandi. Það er
ekki hægt að bjóða ungu barni upp
á þessi endalausu ferðalög.“ Karen
viðurkennir samt að búa ekki við
hefðbundið fjölskyldumunstur. „Ég
á í rauninni fullt af börnum, ég lít
svo á að við eigum mikið í öllum
þeim krökkum sem hjá okkur æfa.
Dagurinn minn snýst í kringum þau
öll og auðvitað dóttur mína, sem
þekkir ekkert annað en að foreldr-
arnir séu á stöðugri hreyfingu.
Þetta er kannski ekki lífið eins og
flestir venjast. Vinnudagurinn minn
einkennist af lotum, sérstaklega
núna þegar þátturinn er farinn í
gang. Það þarf bara að vera skipu-
lagður til þess að allt rúmist innan
dagskrárinnar. Þar kemur dans-
reynslan að góðum notum því að í
dansinum þarf maður mikinn aga.“
Karen er, sem áður sagði, ein af
dómurum þáttanna. „Ég vaknaði
einn morguninn við símtal þar sem
að framleiðandi frá Sagafilm sagði
mér frá hugmyndinni. Mér leist
strax mjög vel á og mætti í pruf-
urnar.“ Hún segir að við það að vera
dómari í þættinum hafi hún farið
nokkuð langt út fyrir sitt þæginda-
svið. „Ég er auðvitað vön því að
vera á hinum enda dómaraborðsins,
svo þetta er krefjandi. Ég hef samt
aldrei verið hrædd við að takast á
við ný verkefni og ögra sjálfri mér.“
Aðspurð segir hún það ómögu-
legt að segja hvort að hún hefði
tekið þátt í svona þætti hefði það
verið í boði á sínum tíma. „Það er
aldrei að vita, ég hef alltaf verið
mjög nýjungagjörn, en ég á erfitt
með að setja mig í þau spor, ég
veit ekkert hverjar aðstæður hefðu
verið.“ Hún segist dást mikið af hug-
rekki keppenda og að í ár séu kepp-
endurnir ekki síðri en í fyrra. „Mín
tilfinning er sú að keppendur séu
jafnvel sterkari og betur undirbúnir
í ár, keppnin verður því ótrúlega
spennandi. Það eru svo svakalega
margir góðir.“
En hver eru skilaboð þín til þeirra
sem að vilja ná jafn langt og þú í
dansinum?
„Ekki gefast upp, sama hve mikið
á reynir. Hafir þú metnaðinn og
ástríðuna eru þér allir vegir færir.
Ekki láta ósigra draga ykkur niður,
berið höfuðið hátt og haldið alltaf
áfram. Þetta er mjög harður heimur
en gefandi,“ segir Karen og er rokin
af stað í næsta verkefni.
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
Það er
sjaldan
lognmolla
í kringum
Karen Björk
og dagurinn
er þétt
skipaður
verkefnum.
Mynd Hari
Karen Björk Björgvinsdóttir er einn dómaranna í sjónvarpsþáttunum Dans dans dans. Hún er sjálf fyrrum heims-
meistari í samkvæmisdönsum en hefur nú snúið sér alfarið að þjálfun ásamt dansfélaga sínum og lífsförunauti,
Ástralanum Adam Reeve. Hún bjó að eigin sögn lengi vel í ferðatösku, þar sem hún flakkaði um heiminn, dansaði
og þjálfaði. Í dag eiga þau hjónin eina dóttur og hafa sest að á Íslandi.
Laugavegur 53b • sími: 552-3737
Aðalstræti 10 • sími: 517 7797 • www.kraum.is
i c e l a n d i c d e s i g n
Litla Jólabúðin
lindsay@simnet.is
Laugavegi 8 Sími: 5522412
101 Reykjavík
Laugavegi 53, 101 Reykjavík
S: 553 1144
TiLboðsdagar
Litla Jólabúðin
Laugavegi 8, 101 Reykjavík
Sími: 552 2412, lind ay@simnet.is
Skólavörðustíg 12
Sími: 519 6030, www.geysir.net
ÞRíR fRakkaR
Baldursgötu 14, 101 Reykjavík
Sími: 552 3939
Skólavörðustíg 42, 101 Reykjavík
Sími: 551 0449
Skólavörðustíg 10,
bílastæðismegin
101 Reykjavík
Sími: 534 6489
JóLaföTin koMin
Laugavegur 58 • s: 551 4884 • still@stillfashion.is • stillfashion.is
36 viðtal Helgin 26.-28. október 2012