Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.12.2012, Síða 4

Fréttatíminn - 07.12.2012, Síða 4
YFIR 20 GERÐIR GASGRILLA Á ÚTSÖLUNNI • Stærð: 149 x 110 x 60 cm verðlaunagrill fyrir íslenskar aðstæður FULLT VERÐ 59.900 42.900 Kraftmikið, meðfærilegt og frábærlega hannað gasgrill fyrir heimilið eða í ferðalagið Frábært á svalirnar eða á veröndina Frábært Er frá Þýskalandi YFIR 50 GERÐIR GRILLA Á JÓLATILBOÐI JÓLATILBOÐ www.grillbudin.is Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 3 milljónir á ári í heiðurslaun H yperemesis Gravidarum er alvarleg tegund af morgun­ógleði sem hefur plagað hertogaynjuna af Cambridge, Kate Middleton, sem komin er tæpa þrjá mánuði á leið á meðgöngu, sam­ kvæmt upplýsingum í breskum fjölmiðlum. Þessi tegund morgun­ ógleði leggst á eina af hverjum 50 konum og getur verið hættuleg heilsu verðandi móður og barns því uppköst eru svo mikil að sjúklingur­ inn heldur bókstaflega engu niðri, hvorki fæðu né vökva, og getur leitt til alvarlegs vökvaskorts og eitur­ efna í blóði. Kate var lögð á spítala á mánudag en fékk að fara heim í gær, fimmtu­ dag. „Hún á alla mína samúð,“ segir Agnes Ósk Þorsteinsdóttir sem hefur tvívegis þjáðst af alvarlegri morgunógleði á meðgöngu. Hún á þrjá syni. Fyrsta meðgangan var eðlileg en hún var mjög veik á hin­ um tveimur. Á síðustu meðgöngunni var hún lögð inn á spítala þegar hún var komin þrjá mánuði á leið eins og Kate, og lá þar með næringu í æð þar til barnið fæddist, sex mánuðum síðar. „Ég hafði lést um tíu kíló á fyrstu þremur mánuðunum,“ segir Agnes. „Það var sama hvað ég borðaði, ég hélt engu niðri og þjáðist af mikilli vanlíðan og þrekleysi.“ Læknum tókst að halda þyngdar­ tapinu í skefjum á meðan hún lá á spítalanum enda töldu þeir að heilsa hennar og barnsins stafaði alvarlega hætta af ástandinu. „Ég reyndi að borða á milli þess sem mér var gefin næring í æð á spít­ alanum en ekkert gekk,“ segir hún. Agnes þekkir enga sem hefur gengið í gegnum jafn alvarlega morg­ unógleði. „Flestar mæður kannast við væga morgunógleði sem yfirleitt líður hjá eftir fyrstu þrjá mánuðina. Hjá mér var hún hvorki væg né leið hún hjá,“ segir hún. Á annarri meðgöngunni fékk hún að vera meira heima enda ástandið ekki alveg jafn alvarlegt og á hinni þriðju, þó svo að hún þyrfti að koma reglulega á spítalann og fá næringu í æð. Tvívegis fór fæðingin í gang allt of snemma en tókst að stöðva hana með lyfjum. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Ég reyndi að borða á milli þess sem mér var gefin næring í æð á spítalanum en ekkert gekk.  Heilsa Kate Middleton þjáist af alvarlegri Morgunógleði Lá sex mánuði á spítala með Katrínarveikina Agnes Ósk Þorsteinsdóttir lá sex mánuði á spítala með næringu í æð vegna alvarlegrar tegundar morgunógleði á síðustu meðgöngu sinni. Hún finnur til með hertogaynjunni af Cambridge, Kate Middleton, sem gengur nú í gegn um hið sama á sinni fyrstu meðgöngu. Agnes Ósk Þorsteinsdóttir þjáðist af alvarlegri morgunógleði á meðgöngu, líkt og Kate Middleton glímir nú við, og þurfti að liggja á spítala í hálft ár með næringu í æð. Ljósmynd/Hari Tæp 9000 fengu ekki bætur Alls hefur 8750 atvinnuleitendum verið synjað um atvinnuleysisbætur frá árinu 2008, að því er fram kom í svari velferðarráð- herra við fyrirspurn Vigdísar Hauks- dóttur á Alþingi í gær. Helsta ástæða synjunar er að við- komandi hefur ekki unnið sér inn rétt til atvinnuleysisbóta samkvæmt lögum með þátttöku á vinnumarkaði. -sda 9 einstaklingar smituðust að meðaltali á ári af HIV–veirunni fram til ársins 2010. Þá jókst tíðnin töluvert sem rekja má beint til vanrækslu örfárra sprautufíkla.  Hiv–sMit á Íslandi auKningu Má reKja til srautufÍKla Tvö ný HIV–smit á einum mánuði María Lilja Þrastardóttir marialilja@ frettatiminn.is s amkvæmt upplýsingum frá sóttvarnalækni hefur tíðni HIV–smitaðra aukist töluvert á síðustu þremur árum. Fjöldi smitaðra hefur þó dreg­ ist ögn saman í ár miðað við tvö síðustu. „Það hefur dregið aðeins úr nýsmiti í ár en alls eru þetta 18 greind tilfelli í dag,“ segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir. Athygli vekur að samkvæmt útgefnum tölum frá 1. nóvember voru smitin 16. Það þýðir að tvö smit hafi verið greind síðasta mánuðinn. Haraldur segir að aukningu síðustu ára megi rekja beint til sprautufíkla sem deili nálum. „Þetta voru hópsýkingar þar sem margir fíklar koma saman og skiptast á nálum. Þetta var bundið við tiltölulega þröngan hóp, svo hægt var að bregðast við upp að vissu marki.“ Hann staðfestir að hægt hafi verið að rekja smitin til örfárra einstaklinga sem þó hafi verið ljóst um ástand sitt. Hann segir það vera illgerlegt að taka slíka einstaklinga úr umferð og sönnunarbyrði í málum sem þessum sé erfið. „Það er ekki raunhæf leið þar sem erfitt er að færa sönnur á það hver beri raun­ verulega ábyrgð í slíkum tilfellum og hvor beri sökina þar umfram annan.“ Haraldur segir að áhrifaríkasta leiðin sé í forvörnum en þeim hafi Rauði krossinn verið duglegur að sinna með sprautubílnum, Frú Ragnheiði. Einnig hafi það gefist vel að auðvelt sé að nálgast sprautur og nálar í apótekum, gegn vægu gjaldi. „Brýnast er að hvetja fólk til meðvitundar og stöðva áhættuhegðun hvort sem það er í kynlífi eða eiturlyfjaneyslu. Það gerum við fyrst og fremst með fræðslu.“ Þráinn Bertelsson þing- maður er einn þeirra sem fá tvöföld heiðurs- laun á næsta ári. Annarri umræðu um fjárlög næsta árs lauk á Alþingi í gær og gengur frumvarpið nú til nefndar og svo til þriðju og síðustu umræðu. Meðal þess sem samþykkt var er að heiðurslaun listamanna nær tvöfaldast. 27 manns þiggja heiðurslaun og fengu fyrir hækkun um 1,6 milljón á ári en fá nú um 3 milljónir á ári eða um 250 þúsund á mánuði. Meðal þeirra sem þiggja laun eru Þráinn Bertelsson þingmaður, Atli Heimir Steinsson, Kristbjörg Kjeld, Megas, Matthías Johannessen, Vigdís Grímsdóttir, Ásgerður Búadóttir og Þorsteinn frá Hamri. Horfur á góðri ávöxtun lífeyrissjóðanna Hætta við Evróvisjon Portúgal, Pólland, Kýpur og Grikkland hafa öll hætt við að taka þátt í Evrópsku söngvakeppninni á næsta ári sökum blankheita. Mikill titringur er meðal aðdáenda söngvakeppninnar vegna þessa en öll þessi lönd hafa oft sett mikinn svip sinn á keppnina. Grikkland vann til að mynda keppnina 2005 en þá söng Helena Paparizou lagið My Number One. Eignir lífeyris- sjóðanna jukust um 31 milljarð króna í október og er það mesta aukning eigna í einum mánuði síðan í mars. Það sem af er þessu ári hafa eignir lífeyris- sjóðanna aukist um að meðaltali rétt tæplega 23 milljarða króna í mánuði hverjum. Þessi aukning í október kemur í kjölfar þess að eignirnar jukust um 30 milljarða króna í september og því hafa eignir lífeyris- sjóðanna aukist mikið í haust, að því er fram kemur hjá Greiningu Íslandsbanka. „Nam hrein eign lífeyrissjóðanna í lok október 2.326 milljörðum króna, og hafa eignirnar aukist um 193 milljarða frá því í upphafi árs. Eign sjóðanna í lok október nemur 139% af áætlaðri vergri landsfram- leiðslu þessa árs. Eru sjóðirnir því hlutfallslega mjög stórir í alþjóðlegum samanburði.“ -jh Kate Middleton 2 fréttir Helgin 7.-9. desember 2012
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.