Fréttatíminn - 07.12.2012, Blaðsíða 48
H
ugleikur hefur slegið í
gegn með groddalegum
örsögum sínum í bók-
unum sem kenndar eru
við „Okkur“ þar sem
hann grínast með viðkvæm mál með
einföldum spýtuköllum. Opinberun
dregur dám af „Okkur“ bókunum þar
sem spýtukallarnir úr þeim örsögum
mæta plágum Opinberunarbókarinnar.
En nú er allt í lit og þótt Hugleikur sé
búinn að slá í gegn mátti hann láta sig
hafa það að lita teikningar sínar sjálfur.
Stóru karlarnir í myndasögubrans-
anum eru flestir með sér mannskap í
því að lita fyrir sig, svokallaða „inkera“
sem hafa ekki rutt sér til rúms á Ís-
landi. „Það væri óskandi að ég væri
með „inker“ og það væri nú fyndið ef
ég myndi bara teikna þetta allt með
blýanti og ráða síðan fólk til að fara
með liti ofan í línurnar og þessa pínu
litlu kalla,“ segir Hugleikur sem puðaði
lengi við litunina.
„Ég teiknaði þetta allt fríhendis og
svo litaði ég myndirnar í Photoshop.
Það tók miklu lengri tíma en ég gerði
ráð fyrir. Ég hef lengi verið að fikta
í Photoshop en hef aldrei fattað að
tíminn líður öðruvísi á meðan maður
er að þessu. Eitthvað sem tekur fjóra
klukkutíma í Photoshop finnst manni
bara taka svona hálftíma.“
Teiknuð hasarmynd
Hinn svart/hvíti Hugleikur segir að
efni Opinberunarinnar hafi einfaldlega
kallað á liti enda hafi hann stefnt að því
að gera kvikmyndalega myndasögu
undir miklum áhrifum frá ofurspennu-
myndaleikstjóranum Michael Bay
sem hefur gert þær ófáar sprengju-
veislurnar fyrir framleiðandann Jerry
Bruckheimer. „Núna er ég meira að
prófa að fara með þessa spýtukalla í
ýktan Michael Bay-fílíng og einbeiti
mér frekar að ævintýrinu en bröndur-
unum. Þegar ég er í bröndurunum þá
eru þeir sjálfir og „pönslínan“ eiginlega
mikilvægari en teikningin sjálf þannig
að það þarf engan lit þar.“
Hulli sækir innblástur í Opinber-
unarbók Jóhannesar en Biblían býður
að hans mati upp á margt skemmti-
legt sem vinna má með. „Það er fullt
skemmtilegt í Biblíunni en Opinber-
unarbókin er svona alveg klikkuðust.
Fram að henni voru öll ævintýrin búin
að vera einhvern veginn innan ákveð-
ins ramma og í sumum þeirra er meira
að segja eitthvert við. Þau ganga upp á
sinn hátt. Ævintýrið um Nóa og örkina
hans er til dæmis með upphaf, miðju
og endi en Opinberunarbókin er bara
upptalning á brjálæði,“ segir Hulli sem
gerir þó ekki ráð fyrir að sækja sér
frekari efnivið í hina helgu bók. „Ég
hugsa að ég reyni að draga mig í hlé frá
Biblíunni svo ég fái hana ekki of mikið
á heilann. Maður verður að passa sig á
því. Ég ætla að reyna að gera zombíur
næst. Ég er með athyglisverða zom-
bíubók í hausnum og ætla að reyna að
koma handritinu frá mér sem fyrst.“
Hulli er ekki síður á heimavelli í
bíómyndum en myndasögum og hefur
legið yfir hryllingsmyndum lengi og
því þarf enginn að efast um að upp-
vakningar steinliggi ekki fyrir honum.
Vísindaleg staðfesting á fyndni
Borðspilið Skrípó er líklegt til þess að
gera lukku hjá fólki með almennilegt
skopskyn en við spilið er mikill styrkur
fólginn í góðri kímnigáfu. Spilið er
runnið undan rifjum höfunda hins
vinsæla Fimbulfambs en í Skrípó eru
150 teikningar eftir skopmyndateiknar-
ana Hugleik, Halldór Baldursson, Lóu
Hlín Hjálmtýsdóttur og Sigmúnd. Allur
myndatexti hefur verið þurrkaður út af
myndaspjöldunum og það kemur í hlut
spilara að draga myndir og skrifa við
þær fyndinn texta. Eðli málsins sam-
kvæmt kemst síðan sá fyndnasti lengst
áfram í spilinu.
Forlagið gefur Skrípó út en bóka-
útgáfan hefur ekki komið nálægt
spilaútgáfu áður. „Skrípó er bara svo
frábært og fyndið spil að við ákváðum
www.volkswagen.is
Volkswagen Caddy
Caddy er áreiðanlegur, sparneytinn og þægilegur
í allri umgengni. Lipur vinnuþjarkur með frábæra
aksturseiginleika og ríkulegan staðalbúnað.
Hann er fáanlegur með bensín-, dísil- og metan-
vélum frá framleiðanda.
Caddy* kostar aðeins frá
2.990.000 kr.
(kr. 2.382.470 án vsk)
*Miðað við Caddy TSI bensín, 86 hestöfl, beinskiptur.
Aukahlutir á mynd, álfelgur og þokuljós.
Góður
vinnufélagi
Til afgreiðslu strax
Atvinnubílar
Fæst einnig
fjórhjóladrifinn
Myndasögumaðurinn
Hugleikur Dagsson er
sem endranær með mörg
járn í eldinum og lætur
til sín taka á tveim ur
vígstöðvum fyrir þessi
jól. Hann hefur sent
frá sér litskrúðuga og
kynngimagnaða mynda
sögu sem hann byggir á
Opin berunar bókinni og
síðan eru teikningar hans
notaðar í borðspilinu
Skrípó sem gengur út á
glens og grín. Þegar hann
prófaði spilið komst hann
að því að hann er í raun
og veru fyndinn.
Ég er í alvörunni fyndinn
að slá til og skella okkur út í þetta,“ segir Egill
Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins.
Og Hulli tekur í sama streng. „Ég hef prófað að
spila Skrípó og mér finnst þetta frábært spil,
þótt ég segi sjálfur frá. Skemmtanagildið er
ekkert ósvipað og í Fimbulfambi. Eiginlega bara
skemmtilegra fyrir fólk eins og mig þar sem
þetta er myndasögutengt,“ segir Hulli.
Hulli þurfti varla að lyfta litla putta þegar kom
að Skrípó. Eitthvað sem hann kann vel að meta.
„Ég gerði í rauninni ekki neitt. Ég á teikningar
í spilinu ásamt þremur öðrum myndasöguhöf-
undum. Þeir höfðu bara samband, Fimbulfamb-
strákanir, og báðu um að fá að nota myndir
eftir mig og vildu borga fyrir það þannig að ég
sagði bara já. Maður segir oftast já ef maður fær
borgað og þarf ekki að gera neitt.“
Í Fimbulfambi átti að reyna að giska á rétta
merkingu orða eða orðasambanda en í Skrípó
reynir á húmorinn. „Hérna þarftu ekki að hitta á
neitt rétt svar. Þú þarft bara að vera fyndinn og
sá sem er fyndnastur græðir mest. Sá fyndnasti
vinnur. Ég nefnilega spilaði þetta um daginn
og ég vann. Ég rústaði öllum hinum og þá gerði
ég mér grein fyrir því að ég er í raun og veru
fyndinn. Þetta er ekki bara meðvirkni hjá öllum
hinum og þarna er bara komin vísindaleg stað-
hæfing um að ég er í raun fyndinn og það var
ánægjulegt að átta sig loks á því að þetta er ekki
bara eitthvert skrum í kringum mig.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Maður
segir
oftast já
ef maður
fær
borgað
og þarf
ekki að
gera
neitt.
Hugleikur
Dagsson er í
raun búinn að
teikna hasar
bíómynd upp
úr Biblíunni
í bók sinni
Opinberun.
Hann hefur
einnig komist
að því að hann
er í raun og
veru fyndinn.
Mynd/Hari
46 viðtal Helgin 7.9. desember 2012