Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.12.2012, Blaðsíða 104

Fréttatíminn - 07.12.2012, Blaðsíða 104
 Kúbuferð Ný plata frá Sigurði guðmuNdSSyNi og memfiSmafíuNNi Ekki eins ungur og baldinn og maður var S igurður Guðmundsson söng sig inn í hjörtu landsmanna með plötunni Oft spurði ég mömmu sem kom út fyrir fjórum árum. Í kjölfarið kom jólaplatan Nú stendur mikið til sem sömuleiðis naut mikilla vinsælda. Báðar voru plöturnar gerðar undir merkjum Memfismafíunnar, sem er eins konar regnhlífarsamtök tónlistarmanna sem eiga samastað í hljóðverinu Hljóðrita í Hafnarfirði. Óumdeildur foringi hópsins er upptökustjórinn og þúsundþjalasmið- urinn Guðmundur Kristinn Jónsson, Kiddi. Meðlimir Memfismafíunnar bera, auk áðurnefndra platna, ábyrgð á fjölmörg- um vinsælum plötum sem gefnar hafa verið út síðustu ár, plötum Baggalúts og Hjálma, Diskóeyjunni og svo mætti áfram telja. Nú er þriðja platan þar sem Sigurður er í aðalhlutverki komin út. Hún kall- ast Okkar menn í Havana og var tekin upp á Kúbu á tíu daga tímabili í október síðastliðnum. „Þetta var hugmynd sem fyrst kom upp í vor en lagðist svo í dvala. Svo fórum við aftur að velta þessu fyrir okkur í ágúst og fórum þá á fullt að finna leið til að gera þetta. Okkur leist nú ekki á að leggja í þetta fyrr en á næsta ári en Kiddi vildi keyra allt á fullt eins og hann er vanur. Hann er ekki mikið fyrir að sitja og bíða,“ segir Sigurður í samtali við Fréttatímann. Auk Sigurðar og Kidda voru með í för Samúel Jón Samúelsson, Bragi Valdimar Skúlason og Tómas R. Einarsson. Allir eiga þeir lög á plötunni en Bragi Valdi- mar sér alfarið um textagerðina. Auk þess var í föruneytinu kvikmyndagerð- armaður sem skrásetti það sem á daga þeirra dreif. Heimildarmyndin fylgir geisladisknum. Sigurður segir að tónlistin á Okkar mönnum í Havana svipi nokkuð til fyrri verka hópsins. „Í raun er þetta bara næsti kafli, býst ég við. Þetta rann alla vega frekar auðveldlega. Þetta er kannski aðeins annað grúv en þetta er ekki víðsfjarri því sem hefur verið á hinum tveimur plötunum.“ Hitinn hefur ekkert vafist fyrir rauðbirknum, tveggja metra íslenskum söngvara? „Nei, nei, ég vissi sirkabát hvað ég var að fara út í. Maður hefur verið í hita áður, ég var á Spáni í sumar og svo tókum við upp á Jamaíka með Hjálmum. Þetta gekk mjög vel, þangað til ég kvefaðist.“ Útgáfutónleikar plötunnar voru haldn- ir á dögunum, bæði í Hofi á Akureyri og í Háskólabíói, og þóttu heppnast vel. Ekki eru fleiri tónleikar fyrirhugaðir. Sigurður hefur enda í nógu að snúast. Auk fjölda verkefna í tónlistinni eignaðist hann sitt fyrsta barn fyrir skemmstu. „Það tekur auðvitað smá tíma hjá manni. Maður er ekki eins ungur og baldinn og maður var hér um árið.“ Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Sigurður Guðmundsson og félagar í Memfismafíunni fóru til Kúbu í október og tóku upp plötuna Okkar menn í Havana. Með Sigurði í för voru Kiddi Hjálmur, Samúel Jón Samúelsson, Tómas R. Einarsson og Bragi Valdimar Skúlason. Sigurður Guðmundsson kunni vel við sig við upptökur á Kúbu í október. „Kiddi vildi keyra allt á fullt eins og hann er vanur. Hann er ekki mikið fyrir að sitja og bíða.“Sigurður Guðmundsson og félagar með kúbverskum samverkamönnum sínum. Afkastamikill Óskar Óskar Guðjónsson saxófónleikari er ekki maður einhamur því í vikunni komu út þrjár plötur þar sem hann lætur til sín taka. Fyrst ber að geta plötu hans og hins brasilíska Ife Tolentino, söngvara og gítarleikara, Voce Passou Aqui eða Þú komst hér eins og hún myndi kallast á ís- lensku. Á disknum leika einnig Eyþór Gunnarsson píanó- leikari, Matthías Hemstock trommari og Ómar Guðjónsson gítarleikari og bróðir Óskars. Á þriðjudagskvöld kynna Óskar og félagar plötuna á tónleikum í Iðnó. Þeir hefjast klukkan 21 og miðaverð er 2.500 krónur. Þá komu út tvær skífur frá djassveit þeirra bræðra, ADHD. Fyrri tvær skífurnar hafa fengið lofsamlega dóma gagnrýnenda og tónlistaráhugafólks. Ásamt Óskari og Ómari skipa sveitina Davíð Þór Jónsson píanóleikari og Magnús Trygvason Eliassen trommari. Fyrr á árinu sendi Óskar frá sér plötuna The Box Tree ásamt Skúla Sverrissyni bassaleikara. Ótrúlegt ár hjá Óskari. Jónas og Ómar á mölinni Í kjölfar vel heppnaðar tónleikaferðar um landið munu þeir Jónas Sigurðsson og Ómar Guðjónsson halda tónleika í Reykjavík í næstu viku. Tónleik- arnir verða á Kex Hosteli á fimmtudags- og föstudags- kvöld, 13. og 14. desember. Tónleikaferð þeirra félaga vakti nokkra athygli í fjöl- miðlum enda lögðu þeir upp í ferðina í húsbíl en þurftu að verða sér út um fjórhjóladrifinn jeppa þegar vetrarfærðin reyndist hús- bílnum um megn. Alls léku þeir á fjórtán tónleikum á fjórtán dögum. Jónas og Ómar eru vanir að troða upp með hljóm- sveitum en á þessum túr eru þeir tveir einir, með tvö trommusett á sviðinu og úr verður skemmtilegur bræðingur. Tónleikarnir á Kexi hefjast klukkan 21 bæði kvöldin og aðgangseyrir er tvö þúsund krónur. Jónas Sigurðsson og Ómar Guðjónsson. Hljómsveitin ADHD. Frá vinstri eru Óskar, Ómar, Davíð og Magnús. 98 tónlist Helgin 7.-9. desember 2012 Með gjafabréfi á gjofsemgefur.is geturðu styrkt bágstadda fjölskyldu um til dæmis hænu, geit, brunn, matjurtagarð, menntun eða aðrar nauðsynjar. Gefðu skemmtilegar gjafir til verkefna heima og erlendis. GEFÐU GJÖF SEM GEFUR www.gjofsemgefur.is GEFÐU HÆNU P IP A R \T B W A • S ÍA • 102985
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.