Fréttatíminn - 07.12.2012, Blaðsíða 84
Helgin 7.-9. desember 201278 tíska
s.512 1733 - s.512 7733
Kringlan - Smáralind
www.ntc.is | erum á
Ökklaskór m/svörtum steinum
16.995.-
Glimmer hælaskór
9.995.-
Hælaskór m/silfurtá og hæl
9.995.-
Blúndu glimmer hælaskór
9.995.-
Hælaskór m/bandi
8.995.-
Ný sending
góð verð
Leðurskór á
0-6 ára 4.100 kr.
Frumleg flétta
Fléttur hafa verið töluvert inni um nokkurt skeið. Hægt er að búa þær til í hinum ýmsu
útfærslum. Þessa hugmynd má sjá, ásamt fleiri, á vefsíðunni pinterest. Skiptu hárinu í
tvo hluta og klemmdu þann efri upp. Hnýttu í þann neðri bandspotta, þeir mega vera
hvernig sem er. Hér er notast við garn en það gæti einnig verið sniðugt að hafa silki-
borða. Þegar þú hefur lokið við að setja böndin í neðri hluta hársins losaðu þá þann
efri og fléttaðu hárið allt saman. Hér á myndinni er gerð fiskiflétta.
Gyðja ColleCtion ilmvatn úr ranGá
Sprengikraftur Heklu fyrir öflugar konur
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, hönnuður og stofnandi og framkvæmdastjóri Gyðja Collection, sendir nú frá sér þriðju ilmvatnstegund
ina og sækir sem fyrr innblástur í íslenska náttúru. Nýi dömuilmurinn frá Gyðju heitir Hekla og er unninn úr vatni sem rennur við
rætur eldfjallsins. Sigrún Lilja segir fara vel á því að kenna ilminn við virkt eldfjall og að Hekla sé góð táknmynd fyrir sterka og
kraftmikla konu.
H ekla er þriðja ilmvatnið frá Gyðja Parfum en fyrir eru dömuilmvatnið EFJ Eyjafjallajökull og herra-ilmurinn VJK Vatnajökull. „Þessir ilmir hafa báðir
gengið vonum framar og þess vegna langaði mig að halda
áfram og bæta þriðja ilmvatninu í ilmvatnsfjölskyldu Gyðju
Parfum. Hekla er hágæða Eau de Parfum dömuilmur sem
sækir innblástur til nöfnu sinnar og er unninn beint upp
úr vatni sem rennur undan Heklurótum í Ytri-Rangá,“ segir
Sigrún Lilja.
„Hekla er drottning íslenskra eldfjalla. Hún er
eitt virkasta eldfjall í heimi og gýs með reglulegu
millibili og er því góð táknmynd fyrir sterka, dug-
lega og kraftmikla konu sem okkur langar einmitt
að sé kennimerki nýja Heklu ilmsins sem er sætur
og rosalega góður.“
Sigrún Lilja segir þróunarvinnuna við Heklu
ilmvatnið hafa verið sérstaklega skemmtilega en
hún hafi þó verið krefjandi þar sem íslensk nátt-
úra sé beisluð í ilminum. „Þetta var flóknara en
venjulega þar sem við byrjuðum á því að sækja
vatnið í Ytri-Rangá áður en framleiðslan hófst. Við
sendum vatnið til hinnar miklu ilmvatnsborgar
Grazze í Suður-Frakklandi þar sem sérfræðingar
í ilmvatnsgerð tóku við og þeir tryggja gæðin.
Þetta er ekta Eau de Parfum sem þýðir að það
þarf minna í einu og anganin endist lengi. Þetta
er alveg einstakt ilmvatn og maður finnur það um
leið og maður spreiar því á sig og ber ilminn sem
er sætur, kvenlegur og munúðarfullur með sætri
vanillu og viðar undirtóni.“
Sigrún Lilja sendi hraunmola út með vatninu og þeir eru
festir við lyklakippu sem er vafin utan um ilmvatnsglasið.
„Það er mjög gaman að bjóða upp á vöru sem er allt í senn
dásamlegt ilmvatn sem nýtist dags daglega ásamt því að
vera kraftmikill, íslenskur minjagripur í hraunmolanum
með dulmögnuðum kröftum íslenskrar náttúru,“ segir
gyðjan sjálf.
Sigrún Lilja segir Íslendinga hafa tekið ilmvötnum
sínum mjög vel og hún hafi viljað þakka fyrir við-
tökurnar með því að sleppa stórum kynningar-
viðburði og færa þess í stað Mæðrastyrksnefnd
andvirði hans í ilmvötnum.
„Mér finnst það í anda jólanna að gefa eitt-
hvað til baka og það er gott að geta glatt
mæður sem ná ekki endum saman
sérstaklega á þessum tíma árs og
langar okkur að leggja okkar af
mörkum með því að gefa ilmvötn í
jólapakkann sem er hugsað sér-
staklega fyrir mæðurnar á þessum
álagstíma sem jólin geta verið,“ segir
Sigrún Lilja sem er komin í ilmandi
jólaskap.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Hekluilmurinn er unnin úr vatni frá rótum Heklu
þannig að segja má að kraftur eldfjallsins hafi
verið beislaður í ilmvatnsglasinu.