Fréttatíminn - 07.12.2012, Blaðsíða 106
Í takt við tÍmann Edda Sif PálSdóttir
Sumum finnst skrítið að ég fari ein í bíó
Edda Sif Pálsdóttir er 24 ára íþróttafréttamaður á RÚV og meistaranemi í blaða- og fréttamennsku við Háskóla
Íslands. Hún dansar við tóna kærastans á skemmtistöðum bæjarins en kann líka vel að meta að vera ein.
Staðalbúnaður
Ég er svolítill geðklofi í þessum fata-
málum og fataskápurinn er mjög
fjölbreyttur. Núna er ég til dæmis í
blómabuxum og Timberland-skóm
en svo á ég til dæmis leðurjakka með
göddum. Rauði þráðurinn er þó að ég
vil vera í þægilegum fötum. Sérstak-
lega í vinnunni þar sem ég þarf að vera
mikið á hlaupum. Ég er ekki mikið
á hælum þar, þó mér finnist alveg
gaman að gera mig fína stundum. Hér
heima versla ég mest í Zöru og Top-
shop en ég versla samt mest í lotum
þegar ég fer til útlanda. Þá er ég mjög
hrifin af H&M og Monki til dæmis.
Hugbúnaður
Þegar ég fer út að skemmta mér fer
ég þangað sem er mest fjör á dans-
gólfinu og dansa eins og enginn sé
morgundagurinn. Það vill svo til að
kærastinn minn er plötusnúður og
það er alltaf mikið fjör þar sem hann
er að spila. Ég komst líka að því um
daginn að það er mjög kósí að sitja á
Næsta bar og maður hittir allskonar
fólk. Það er fínt að byrja þar og fara
svo að dansa. Ég hef aldrei átt líkams-
ræktarkort, mín líkamsrækt er að
fara út að labba með hundinn minn
og fara í sund. Ég fylgist mikið með
íþróttum hvort sem ég er að vinna eða
ekki. Uppáhalds sjónvarpsefnið mitt
er samt Homeland og nú eru mánu-
dagar heilög stund. Ég fer stundum
ein í bíó. Sumum finnst það skrítið
og vandræðalegt og fólk horfir alveg
stundum á mann. Mér finnst það fínt,
það hentar til dæmis mjög vel ef kær-
astinn er að vinna langt fram á nótt.
Ég hef líka farið ein á tónleika. Það
var skrítnara.
Vélbúnaður
Ég gekk í Apple-liðið í fyrra. Ég
keypti mér Apple-tölvu og safnaði
mér svo fyrir iPhone sem ég keypti í
febrúar. Svo var honum stolið þegar
ég fór til Barcelona og ég þurfti að
vera með gamlan síma í mánuð á
eftir, alveg buguð. Það var voða erfitt
að vera án iPhone þegar maður var
búinn að venjast honum. Á hinn
bóginn fylgdi því ákveðin ró og um
tíma fannst mér bara fínt að vita ekki
hvað annað fólk borðaði í hádegismat.
En ég safnaði mér samt fyrir nýjum
iPhone og nú er fátæki námsmaður-
inn og ríkisstarfsmaðurinn búinn að
kaupa sér tvo slíka á einu ári. Ég eyði
alltof miklum tíma á Facebook og
Twitter er hálfgert vinnutæki. Svo er
líka brjálað að gera á Instagram.
Aukabúnaður
Mér finnst mjög gott að borða og við
kærustuparið erum kannski ekki
alveg nógu dugleg að elda. En
við erum að fara að flytja í eigin
íbúð og þá er stefnan að gera
eitthvað róttækt í eldhúsinu.
Ég fer oft á Sushilestina, þar
er fáránlega gott sushi og
ótrúlega gott að sitja þar
og borða í rólegheitunum.
Á Grillmarkaðinum fær
maður mjög góða nauta-
steik og mjög góða kokteila
líka. Annars er ekki gott
fyrir píslir eins og mig að
drekka sterka drykki og
ég panta mér oftast Som-
mersby þegar ég fer á bar.
Ég keypti minn fyrsta bíl
í sumar og ek nú um á fal-
legum, kóngabláum Golf.
Ég hef sérlegan áhuga á
kirkjugörðum eftir að ég
vann í kirkjugarði í þrjú
sumur. Ég reyni að heim-
sækja kirkjugarða þar sem
ég fer. Ég veit að þetta er
mjög skrítið en mér finnst
bara eitthvað róandi að labba
um í kirkjugörðum. Það er svo
mikið af sögum þar.
ÍSLENSKAR BARNABÆKUR
Leyndarmál Kela. Útgáfuhóf í
Eymundsson Skólavörðustíg,
Laugardaginn 8.des. klukkan 17-19.
Nýkomnar í verslanir
Nýja útgáfan af sögunni um Búkollu
er nú loksins komin! Ævintýri sem á
erindi inn á hvert heimili.
Söfnun dagur rauða nEfSinS Er Í dag
Palli frumflytur nýja
útgáfu af Unicef-laginu
Dagur rauða nefsins er í
dag, föstudag. Í kvöld verð-
ur söfnunarþáttur í beinni
útsendingu á Stöð 2 þar sem
þjóðin verður glödd með gríni
og skemmtun en um leið er
vakin athygli á neyð barna
um allan heim og verkefnum
Unicef. Fjölmargir Íslendingar
eru heimsforeldrar hjá Unicef
og nota samtökin daginn til
að hvetja fleiri til að slást í
hópinn.
Einn ötulasti stuðningsmað-
ur Unicef er poppstjarnan Páll
Óskar Hjálmtýsson. Í fyrra
kynnti hann sér aðstæður
barna í Síerra Leóne og verk-
efni Unicef á svæðinu. Í kjölfar
heimsóknarinnar samdi hann
einnig lag dagsins sama ár,
Megi það byrja með mér, sem
hlaut góðar viðtökur.
Í skemmtiþættinum á Stöð
2 í kvöld munu Páll Óskar og
Monika Abendroth frumflytja
nýja útgáfu af laginu, Megi
það byrja með mér, en auk
þeirra treður fjöldi þekktra
skemmtikrafta upp. Sem
dæmi má taka Dóra DNA,
Loga Bergmann Eiðsson,
Önnu Svövu Knútsdóttur, Þór-
unni Antoníu Magnúsdóttur,
Steinda Jr., Halldór Gylfa-
son og Ilmi Kristjánsdóttur.
Útsending Stöðvar 2 hefst
klukkan 19.30.
Páll Óskar með skjólstæðingum Unicef í Síerra Leóne.
Edda Sif Pálsdóttir íþrótta-
fréttakona er búin að kaupa
sér tvo iPhone á þessu ári.
Ljósmynd/Hari
100 dægurmál Helgin 7.-9. desember 2012