Fréttatíminn - 07.12.2012, Blaðsíða 68
www.syn.is dsyn@dsyn.is Sími: 566-5004 / 659 8449
Mögnuð saga frá Draumsýn
Svo heitt varst þú elskaður
Áhrifamikil og grípandi saga
um samskipti feðga þegar
líður að lífslokum föðursins
eftir norska
verðlaunahöfundinn
Nikolaj Frobenius.
62 jól Helgin 7.-9. desember 2012
Fjölskylduskemmtun á aðventunni
jólavættur reykjavíkurborgar
www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
• 123272
Glæsileg armbandsúr
frá þekktum framleiðendum
fyrir dömur og herra.
Fallegt úr
er fullkomin gjöf
Í fyrsta sinn á Íslandi
j ólaævintýrið í Austurbæ hófst um síðustu helgi. Ævintýrið er í rauninni leik-
rit með blöndu úr skemmtiatrið-
um, töfrabrögðum, söng og gleði.
Örn Árnason leikari ásamt fjölda
annarra skemmtikrafta bjóða upp
á allsherjar jólaskemmtun í Aust-
urbæ á aðventunni. „Við vorum
með skemmtun í Vetrargarðinum í
Smáralind í sex eða sjö ár. Svo var
Vetrargarðinum breytt í skemmti-
garð en mig langaði samt sem áður
að halda áfram með þetta. Mig
hefur lengi langað til að vera með
svona jólaskemmtun að breskri
fyrirmynd. Þetta varð svo að veru-
leika fyrir þessi jól. Það var fullt
hjá okkur á síðustu helgi og gekk
mjög vel. Orri Huginn Ágústsson
hefur leikstýrt þessu með mér
og Birgir J. Birgisson sér um alla
tónlist í sýningunni.“
Afi eldist ekkert
Örn segist vilja gera þetta að ár-
vissum viðburði. Afi gamli á Stöð 2
er kominn aftur á kreik eftir langt
hlé. Örn segir að samstarf hans og
Afa gangi vel enda eldist sá gamli
ekki neitt þrátt fyrir að aðdáendur
hans frá fyrri tíð séu komnir á
fullorðinsár. „Samstarfið er mjög
gott. Hann hefur ekki verið sýni-
legur í fjögur ár núna svo það var
kominn tími til. Á sýningunni í
Austurbæ fer Afi með ljóð Jóhann-
esar úr Kötlum um jólasveinana.
Við kíkjum upp í fjall til þeirra
rauðklæddu, svo kemur kokkur
sem er að elda jólamatinn og það
gengur frekar illa hjá honum. Lalli
töframaður gerir alls konar kúnstir
með fólkinu í salnum, Sveppi kem-
ur fram og svo er Sigríður Eyrún
með lag um snjókarlinn. Skröggur
verður líka á staðnum. Hann er
nískari en flest annað en áttar sig
fljótlega á því að það er betra að
gefa af sér og upplifa í staðinn góð
og gleðileg jól.“
Miðasala á sýninguna fer fram
á Miði.is. Næsta sýning er á morg-
un, laugardag, klukkan 14.
r eykjavíkurborg kynnti til sögunnar jólavættir sínar í fyrra. Fyrir þessi jól bætist
ný vættur í hópinn, hvalurinn
Rauðhöfði. Dóra Magnúsdóttir
markaðsstjóri Höfuðborgarstofu
segir tilganginn með því að varpa
fram þessum jólavættum sé að
hvetja fólk til þess að segja sögur.
„Við þekkjum auðvitað þessar jóla-
vættir sem við höfum; jólasvein-
arnir okkar, Grýla og Leppalúði,
auðvitað jólakötturinn og svo
núna hvalurinn Rauðhöfði. Við
erum að kynna þessa arfleifð fyrir
börnunum okkar og svo auðvitað
erlendum ferðamönnum. Það er
gríðarlega skemmtilegt að segja til
dæmis útlendingunum frá jólaketti
sem borðar fólk sem ekki fær ný
föt fyrir jólin.“
Rauðhöfði á rætur sínar að rekja
í þjóðsögur Jóns Árnasonar. Hann
var áður maður sem var ástfang-
inn af álfkonu og eignaðist með
henni barn. Þegar skíra átti barnið
afneitaði Rauðhöfði barninu. Eins
og álfkonur gera svo gjarnan lagði
hún á hann álög og breytti honum
í illhveli. Hann eyddi því sinni
löngu ævi í að hrella sæfarendur
og sökkti mörgum skipum um
ævina. Eins og jólasveinarnir hefur
Rauðhöfði snúist til betri vegar.
Hann ætlar að vera í höfninni fram
að jólum og sinna þar forvörnum
í samstarfi við Slysavarnafélag Ís-
lands. Gunnar Karlsson teiknari
kom honum fyrir á vegg Slysa-
varnahússins við Granda.
„Það verður mjög gaman að
koma í borgina og leita uppi vætt-
irnar. Við ætlum að vera með rat-
leik í kringum það sem er tiltölu-
lega einfaldur og aðgengilegur.
Vættirnar birtast á húsveggjum
víðsvegar um borgina. Leikurinn
gengur svo út á að finna vættirnar
sem eru tíu talsins og svara léttum
spurningum um þær.“
Hægt er að nálgast ratleikinn í
Ráðhúsi Reykjavíkur, verslunum
í miðbænum og á vefnum visi-
treykjavik.is/jolaborgin. Vegleg
verðlaun eru í boði fyrir þann sem
sigrar í leiknum.
Hvalurinn Rauðhöfði
Sinnir forvörnum með Slysavarnafélaginu.
Rauðhöfði búinn að koma sér vel fyrir
við höfnina.
Jólaævintýri í Austurbæ
Örn Árnason leikari á sviðinu í Austurbæ. Ljósmynd/Hari
69% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent júlí-sept. 2012