Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.12.2012, Blaðsíða 61

Fréttatíminn - 07.12.2012, Blaðsíða 61
Vatnskannan komin á borðið Þ Það orð fer af Skagfirðingum að þeir séu skemmtilegir og taki tilveruna mátulega alvarlega. Þessu góða orðspori viðheldur Björn Jóhann Björnsson, Skagfirðingur og blaðamaður á Morgunblaðinu. Hann gaf út Skagfirskar skemmtisögur fyrir jólin í fyrra. Skemmtisögurnar fengu ekki aðeins góðar viðtökur í Skagafirði heldur um land allt og vermdu metsölulista bókaverslana. Björn Jóhann safnaði því fleiri skagfirskum sögum fyrir þessi jól. Þær eru komnar út á bók, Skagfirskar skemmtisögur 2 – Meira fjör. Líklegt er að þær hljóti ekki síðri við­ tökur. Björn Jóhann er góður félagi og skemmti­ legur. Það þekkir pistilskrifarinn enda vorum við saman í skipsrúmi Jónasar Kristjánssonar á DV á sínum tíma. Jónas á tengingu í Skagafjörðinn, alnafni afa síns, hins kunna læknis á Sauðárkróki til margra ára en Jónas læknir stofnaði síðan Náttúrulækningahælið í Hveragerði. Hann sigldi vestur um haf og kynnti sér nýjungar í læknisfræði, meðal annars næringarfræði. Sú ferð er talin marka upphaf náttúrulækn­ ingastefnunnar hér á landi. Jónas Kristjáns­ son ritstjóri hefur áratugum saman skrifað um mat og matarmenningu, meðal annars barist gegn óhóflegri sykurneyslu – og sækir það ekki í sjöunda lið því Jónas, afi hans, hóf á sinni tíð baráttu fyrir breyttu mataræði Skagfirðinga, að því er fram kemur í bók Björns Jóhanns. Einnig varð Jónasi lækni „tíðrætt um meltingarkvilla eins og harðlífi og áttu menn helst að hafa hægðir þrisvar á dag,“ eins og segir í bók­ inni. „Ekki leist öllum Skagfirðingum vel á þessar nýju kenningar,“ segir enn fremur, „og til varð þessi vísa hjá Gísla Magnússyni í Eyhildarholti: Jónas læknir ætti í eigin barm að líta. Ætl’ann sjálfur yndi því alltaf að vera að skíta?“ Skagfirskir alþýðumenn voru höfðingja­ djarfir, ef marka má bók Björns Jóhanns. Þar segir frá samskiptum Guðmundar Oddssonar, sem lengi bjó á Sauðárkróki, og Jónasar læknis. Guðmundur, sem kallaður var Gvend­ ur snemmbæri, var eitt sinn að skipa upp fiski úr bát sínum þegar lækninn bar að. „Þú hefur aflað vel, Guð­ mundur minn,“ sagði læknirinn. Ekki stóð á svari hjá Gvendi: „Ekki held ég að þér þyki þetta nú mikið, sem tekur mörg hundruð krón­ ur fyrir að rista eina kerlingu á kviðinn.“ Fleiri Skagfirð­ ingar hafa þénað vel en Jónas lækn­ ir. Í bókinni segir af skipverjum togar­ ans Drangeyjar SK sem komu í land á Krókn­ um eftir góðan túr og vænan hásetahlut. „Ekkert fljótfengið vín reyndist til staðar, og lítið til af brugguðu, og því var ákveðið að panta flugvél frá Ísa­ firði til að fljúga með þá skipsfélaga frá Króknum til Siglufjarðar, sem var næsta ríkisverslun í þá daga. Þar var völlur á mönnum, vel keypt af vín­ inu á Sigló og síðan tekið á loft á ný. Upp­ götvaðist þá skýjum ofar, þegar menn tóku vodkaflöskurnar úr kössunum, að gleymst hafði að kaupa blandið. En menn dóu ekki ráðalausir: Förum í Grímsey! Þangað var síðan flogið til að redda gos­ inu en þegar vélin lenti var komið kvöld. Þurfti því að opna verslunina til að bjarga skipverjunum skagfirsku um blandið!“ Ef lagfæra þarf það sem betur má fara eru engir til þess betri en Skagfirðingar. Björn Jóhann segir þannig af Erlingi Erni Péturssyni sem lengi rak verslunina Tinda­ stól á Sauðárkróki, eftir að hafa tekið við rekstrinum af foreldrum sínum. Þegar hann lét af verslunarrekstrinum og flutti suður á mölina, eins og margir aðrir, innritaði hann sig í ensku í öldungadeild MH og gaf eftirfarandi skýringu á skólavistinni: „Ég er að vísu ágætlega að mér í ensku en mér fannst ég þurfa að bæta svolitlu við mig. Ég er nefnilega ekki alveg ánægður með þýðingar Helga Hálfdanarsonar á Shake­ speare!“ Kristmundur Bjarnason á Sjávarborg stundaði hins vegar þýðingar í raun og veru og þýddi meðal annars nokkrar af Ævin­ týrabókunum eftir Enid Blyton. Kristmundi mun hins vegar, að því er fram kemur í skagfirsku skemmtisögunum, hafa leiðst að þýða „kerlinguna“ eins og Blyton hét á heimilinu á Sjávarborg. Þegar tilkynnt var í hádegisfréttum um andlát rithöfundarins á Kristmundur að hafa rekið upp fagnaðaróp í eldhúsinu: „Hún skrifar þá ekki fleiri bækur, fjanda­ kornið!“ „Kristmundur vissi hins vegar ekki þá að Enid Blyton hafði gefið út á sjöunda hundr­ að bóka, langflestar óþýddar!“ Hvort Skagfirðingar eru heilagri en aðr­ ir skal ósagt látið en svo mætti þó álykta af frásögn af Hólahátíð. Þar var „um árið mættur fjöldi presta og kirkjan yfirfull af fólki víða að af Norðurlandi. Einn af prest­ unum, líkast til úr Skagafirði, segir þá við annan: Fátt er hér af guðsbörnum – flestir Akureyringar.“ Sagt hefur verið um skagfirska karla að þeir séu söng­ gleði­ og kvennamenn. Rétt þykir því að ljúka þessum skagfirska pistli með stuttri sögu hins þvottekta Skag­ firðings, Björns Jóhanns Björnssonar „af ónefndum karli á Sauðárkróki sem var þeirrar undarlegu náttúru gæddur að það leið alltaf yfir hann þegar hann hafði mök við konuna sína. Hún varð því að skvetta á hann vatni svo hann rankaði við sér. Á kjaftastæðinu svonefnda við bryggjuna var karlinn stundum heldur glaðhlakkalegur, glotti við tönn og sagði: Jæja piltar. Vatnskannan er komin á borð­ ið í kvöld!“ Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL Te ik ni ng /H ar i Á R N A S Y N IR util if. is MEINDL GÖNGUSKÓR GÆÐI Í GEGN ÚRVALIÐ ER Í ÚTILÍF. Í Réttindagátt getur þú séð greiðslur þínar vegna heilbrigðisþjónustu. Með því að skrá bankareikning og netfang tryggir þú að allar endurgreiðslur verði lagðar inná reikning þinn og þér jafnframt sendur tölvupóstur. SJÚKRATRYGGINGAR ÍSLANDS LAUGAVEGI 114 150 REYKJAVÍK WWW.SJUKRA.IS Kannaðu málið í Réttindagátt á sjukra.is. Átt þú inni endurgreiðslu vegna heilbrigðisþjónustu? www.sjukra.is Hjálpaðu okkur að tryggja rétt þinn. Mötuneyti HB Granda hf Reykjavík auglýsir eftir starfmanni Starð felst í aðstoð í eldhúsi og viðkomandi þarf að geta leyst matráð af í fríum. Nánari upplýsingar gefur Arnbjörn í síma 550-1059 eða með tölvupósti á matsalur@hbgrandi.is Helgin 7.-9. desember 2012 viðhorf 55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.